Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Fyrst á dagskrá 26. júní 2023, síðast 7. nóvember 2024. 44 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fjallskilanefnd, Umhverfis- og skipulagsnefnd.
Í heiti málsins: Stöðvarfjörður
Í hnotskurn
Landeigendur Óseyrar í Stöðvarfirði hafa frá júní 2023 sent Fjarðabyggð erindi þar sem óskað er eftir smölun ágangsfjár af landi þeirra1. Síðasta skráða skref er að bæjarráð fól bæjarritara í nóvember 2024 að svara nýju erindi landeigenda43.
Staðan
Síðasta skráða skref er að bæjarráð fól bæjarritara að svara erindi landeigenda og bæjarstjórn staðfesti þá fundargerð 7. nóvember 20244344.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2023
Bæjarráð, fundur 804 liður 11
Lagt var fram erindi landeigenda frá 11. júní um smölun ágangsfjár ásamt erindi Lögreglustjórans á Austurlandi, og bæjarráð vísaði málinu til fjallskilanefndar og fól bæjarstjóra að óska eftir verklagsreglum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og svara lögreglustjóra
Endursögn gervigreindar
Framlagt erindi Ívars Ingimarsson og Hrefnu Arnarsdóttur frá 11. júní vegna smölunar á ágangsfé í landi Óseyrar á Stöðvarfirði. Jafnframt er framlagt erindi Lögreglustjórans á Austurlandi um ágang búfjár.
Bæjarráð vísar erindi til fjallskilanefndar. Jafnframt er bæjarstjóra falið að senda Sambandi íslenskra sveitarfélagi erindi um gerð verklegsreglna á grunni álits innviðaráðuneytis um ágang búfjár og svara erindi lögreglustjórans.
-
Bæjarráð, fundur 805 liður 8
Lagt var fram nýtt erindi landeiganda frá 29. júní og bæjarráð vísaði til fyrri bókunar um að málið væri til umfjöllunar hjá fjallskilanefnd
Endursögn gervigreindar
Framlagt erindi landeiganda við Óseyri frá 29.6.23 vegna ágangsfjár.
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið og vísar til fyrri bókunar um málefnið en það er til umfjöllunar fjallskilanefndar.
-
Fjallskilanefnd, fundur 3 liður 1
Arnór Ari Sigurðsson vék af fundi, og nefndin taldi brýnt að endurskoða fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur, fól formanni og bæjarritara að leita lögfræðiálits og tók ekki afstöðu til erindisins að svo stöddu
Endursögn gervigreindar
Við umfjöllun og afgreiðslu máls vék Arnór Ari Sigurðsson af fundi.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu fjallskilanefndar erindi Ívars Ingimarsson og Hrefnu Arnarsdóttur frá 11. júní vegna smölunar á ágangsfé í landi Óseyrar á Stöðvarfirði. Jafnframt er framlagt erindi Lögreglustjórans á Austurlandi um ágang búfjár og svarbréf Fjarðabyggðar.
Fjallskilanefnd telur afar brýnt að endurskoða fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur sem allra fyrst með hliðsjón af ágreiningi um ágang sauðfjár og þess að fjallskilsamþykktin kveður ekkert á um ágang milli svæða innan sveitarfélags. Jafnframt felur fjallskilanefnd formanni fjallskilanefndar og bæjarritara að leita lögfræðiálits um stöðu sveitarfélagsins og leggja fyrir nefnd að nýju. Nefndin getur ekki að svo stöddu tekið afstöðu til erindis landeiganda Óseyrar.
-
Bæjarráð, fundur 806 liður 13
Erindi landeigenda um skaðabætur vegna ágangsfjár var lagt fram og vísað til fjallskilanefndar
Endursögn gervigreindar
Framlagt erindi Ívars Ingimarsson og Hrefnu Arnardóttur varðandi skaðabætur vegna ágangsfjár í landi Óseyrar á Stöðvarfirði.
Bæjarráð vísar erindinu til fjallskilanefndar.
-
Bæjarráð, fundur 807 liður 9
Bréf frá Málflutningsstofu Snæfellsness vegna ágangs búfjár var lagt fram og vísað til fjallskilanefndar
Endursögn gervigreindar
Framlagt bréf frá Málflutningsstofu Snæfellsness vegna ágangs búfjár.
Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar fjallskilanefndar.
-
Fjallskilanefnd, fundur 4 liður 1
Í ljósi álitsgerðar Lögmannsstofu Norðurlands taldi nefndin að sveitarfélaginu bæri ekki að verða við kröfu um smölun, tók ekki afstöðu til bótaskyldu og vísaði málinu til bæjarráðs
Endursögn gervigreindar
Vísað frá bæjarráði bréfi lögmanns landeiganda Óseyrar þar sem ítrekuð er krafa um smölun landsins. Jafnframt er lögð fram álitsgerð frá Lögmannsstofu Norðurlands en fjallskilanefnd óskaði eftir álitsgerð á síðasta fundi þar sem mikil réttaróvissa er í málaflokknum.
Fjallskilanefnd telur í ljósi framlagðs álits lögmannsstofunnar að sveitarfélaginu beri ekki að verða við kröfu landeiganda Óseyrar um smölun lands hans. Fjallskilanefnd tekur ekki afstöðu til erindis sem fjallar um bótaskyldu sveitarfélagsins. Þá telur fjallskilanefnd að sterkar líkur séu á að sauðfé komi frá Breiðdal en jafnframt hafi fé áður komið fram í Stöðvarfirði frá Héraði og Fáskrúðsfirði. Fjallskilanefnd vísar málinu til bæjarráðs.
-
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 31 liður 8.1
Fundargerðin „Fjallskilanefnd - 3“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 31 liður 9.1
Fundargerðin „Fjallskilanefnd - 4“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 808 liður 6
Bæjarráð frestaði afgreiðslu beiðninnar þar til leiðbeinandi álit matvælaráðuneytis og úrskurður innviðaráðuneytis vegna kæru lægju fyrir, og beindi því til Sambands sveitarfélaga á Austurlandi að endurskoða fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur
Endursögn gervigreindar
Vísað frá fjallskilanefnd til bæjarráðs máli landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði. Fjallskilanefnd telur í ljósi framlagðs álits lögmannsstofunnar að sveitarfélaginu beri ekki að verða við kröfu landeiganda Óseyrar um smölun lands hans. Fjallskilanefnd tekur ekki afstöðu til erindis sem fjallar um bótaskyldu sveitarfélagsins. Þá telur fjallskilanefnd að sterkar líkur séu á að sauðfé komi frá Breiðdal en jafnframt hafi fé áður komið fram í Stöðvarfirði frá Héraði og Fáskrúðsfirði.
Lesa alla bókunina (260 orð til viðbótar)
Bæjarráð telur að mikil réttaróvissa sé í tengslum við túlkun laga nr. 38/2013 um búfjárhald og laga nr. 6/1986 um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. Ekki er til staðar leiðbeinandi álit um þau álitaefni sem eru uppi m.a. um framkvæmd afgreiðslu beiðna um smölun ágangsfjár, hvað teljist verulegur ágangur búfjár og hvenær sveitarfélagi beri að bregðast við honum, réttindi og skyldur fjár- og landeigenda til að afstýra óæskilegum ágangi og inngripi sveitarfélags eða lögreglustjóra.
Bæjarráð samþykkir því að fresta afgreiðslu beiðnar landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði um smölun ágangsfjár með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta sveitarfélagsins. Málið verður tekið upp að nýju þegar leiðbeinandi álit matvælaráðuneytis verður gefið út eða öðru því sem greiði úr þeim álitamálum sem uppi eru. Jafnframt er beðið úrskurðar innviðaráðuneytisins en málsmeðferð sveitarfélagsins vegna málsins hefur verið kærð til þess. Bæjarráð telur ekki rétt að hefja stjórnsýslumál sem leitt getur af sér íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun sem byggir ekki á traustum og óumdeildum lagagrunni. Þá tekur bæjarráð ekki afstöðu til meintrar bótaskyldu sveitarfélagsins gagnvart landeiganda Óseyrar. Bæjarráð beinir til stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi að mikilvægt sé að fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur verði tekin til endurskoðunar í ljósi þess að skýra þurfi ágang búfjár nánar ásamt því að skilgreina þurfi réttindi og skyldur fjáreigenda og landeigenda í því sambandi. Þá sé æskilegt að stjórnin hlutist til um að samræma verklagsreglur vegna ágangsmála í framhaldi þess að greitt verði úr álitamálum af hálfu matvælaráðuneytis en fjallskilasamþykktin gildir fyrir fjögur sveitarfélögin á starfssvæði Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
-
Bæjarráð, fundur 808 liður 7
Framlögð tvö bréf landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði.
Bæjarráð vísar í bókun sína í dagskrárlið nr. 6.
-
Bæjarráð, fundur 808 liður 11.1
Fundargerðin „Fjallskilanefnd - 3“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 808 liður 12.1
Fundargerðin „Fjallskilanefnd - 4“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 1.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 804“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 2.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 805“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 3.13
Fundargerðin „Bæjarráð - 806“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 4.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 807“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 5.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 808“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 5.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 808“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 820 liður 12
Nýtt bréf landeiganda vegna smölunar var lagt fram og vísað til fjallskilanefndar
Endursögn gervigreindar
Framlagt bréf landeiganda Óseyrar vegna smölunar.
Bæjarráð vísar erindi til fjallskilanefndar.
-
Fjallskilanefnd, fundur 5 liður 5
Arnór Ari Sigurðsson vék af fundi, og nefndin vísaði til fyrra svars um að ekki hefði verið haldin nákvæm talning á fé sem kom til réttar og áréttaði að meginreglan væri sú að lausaganga búfjár væri heimil nema lög eða stjórnvaldsfyrirmæli kvæðu á um annað
Endursögn gervigreindar
Vísað frá bæjarráði til fjallskilanefndar erindi landeigandi Óseyrar í Stöðvarfirði vegna fjallskila og smölunar sauðfjár í landi Óseyrar.
Arnór Ari vék af fundi undir þessum lið.
Lesa alla bókunina (162 orð til viðbótar)
Fjallskilanefnd þakkar erindið. Vísað er til fyrra svars Fjarðabyggðar þar sem tekið var fram að ekki hafi verið haldin nákvæm talning á því fé sem skilaði sér til réttar og því sé ekki hægt að gefa út staðfesta skrá um eigendur fjár sem komu til réttar. Þess má geta að stór hluti Stöðvarfjarðar var smalaður en ekki einvörðungu land Óseyrar og því engin vissa fyrir því að féð sem kom fram hafi verið meint ágangsfé.
Jafnframt ítrekar nefndin að samkvæmt áliti umboðsmanns og úrskurði dómsmálaráðuneytisins er ekki að finna neina umfjöllun um efnislega túlkun á 33. gr. laga nr. 6/1986. Því er ekki hægt að byggja á því að álitið eða úrskurðurinn hafi breytt réttarstöðu hvað varðar ágangsfé í heimalöndum. Meginreglan er sú að lausaganga búfjár er heimil nema lög eða stjórnvaldsfyrirmæli kveði á um annað. Jafnframt vísar nefndin til vinnu við nýja landskipulagsstefnu og áréttar mikilvægi þess að skýra ágang búfjár í fjallskilasamþykkt fyrir sveitarfélög á starfssvæði Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
-
Bæjarráð, fundur 826 liður 25.5
Fundargerðin „Fjallskilanefnd - 5“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 365 liður 4.5
Fundargerðin „Fjallskilanefnd - 5“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2024
Bæjarráð, fundur 835 liður 5
Lagt var fram erindi landeiganda þar sem óskað var upplýsinga um kostnað við lögfræðiálit, og bæjarritara var falið að upplýsa um kostnaðinn
Endursögn gervigreindar
Framlagt erindi Ívars Ingimarsson dags. 19. febrúar 2024 til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir upplýsingum um kostnað sveitarfélagsins við gerð lögfærðiálits.
Fram lagt og kynnt, bæjarritara falið að upplýsa um kostnað vegna álitsgerðarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 372 liður 1.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 835“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 848 liður 6
Fyrirspurn um viðbrögð við ágangi búfjár 2024
Erindi landeiganda vegna smölunar ágangsfjár sumarið 2024 var lagt fram og bæjarritara falið að svara því
Endursögn gervigreindar
Framlagt erindi landeiganda að Óseyri í Stöðvarfirði vegna smölunar á ágangsfé sumarið 2024.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi í samræmi við umræður á fundinum.
-
Bæjarstjórn, fundur 377 liður 3.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 848“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Fyrirspurn um viðbrögð við ágangi búfjár 2024
-
Bæjarráð, fundur 852 liður 7
Nýtt erindi landeigenda var lagt fram og bæjarritara falið að leggja fram drög að svari á næsta fundi
Endursögn gervigreindar
Framlagt erindi frá landeigendum Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs sauðfjár.
Bæjarráð felur bæjarritara að leggja fyrir drög að svari á næsta fundi bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 853 liður 9
Bæjarráð samþykkti framlögð drög að svari til landeiganda
Endursögn gervigreindar
Mál tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að svari til landeiganda að Óseyri í Stöðvarfirði.
-
Bæjarstjórn, fundur 379 liður 1.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 852“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 379 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 853“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 859 liður 3
Beiðni landeigenda um smölun var lögð fram og vísað til bæjarritara til úrvinnslu
Endursögn gervigreindar
Framlögð beiðni landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði um smölun sauðfjár af landinu.
Vísað til bæjarritara til úrvinnslu.
-
Bæjarstjórn, fundur 380 liður 1.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 859“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 860 liður 4
Bæjarráð samþykkti að haft yrði samband við fjáreigendur sem líkur væru á að ættu féð, þeim gefinn kostur á að smala því og veittur andmælafrestur
Endursögn gervigreindar
Framlagt svar landeigenda að Óseyri í Stöðvarfirði vegna afgreiðslu erindis þeirra um ágangsfé í landi þeirra.
Bæjarráð samþykkir að haft verði samband við fjáreigendur sem líkindi eru til að eigi féð og þeim gefinn kostur á að smala féð og þeim veittur andmælafrestur.
-
Bæjarráð, fundur 861 liður 4
Lagðar voru fram nýjar beiðnir landeigenda og afrit tölvupósta til fjáreigenda, en andmæli höfðu ekki borist og var frestur til 3. september
Endursögn gervigreindar
Framlagðar nýjar beiðnir landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði um smölun sauðfjár sem er á jörðinni ásamt afriti af tölvupóstum sem sendir hafa verið á fjáreigendur sem líkindi eru til að eigi sauðfé sem um ræðir. Andmælafrestur er til 3. september en andmæli hafa ekki borist.
-
Bæjarstjórn, fundur 381 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 860“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 381 liður 2.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 861“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 862 liður 6
Lagt var fram svar fjáreiganda með fyrirspurnum um fjölda fjár og hvað teljist ágangur, og þar sem eignarhald var ekki staðfest var verkefnastjóra umhverfismála falið að fara yfir málið
Endursögn gervigreindar
Lagt fram svar frá fjáreiganda að Þverhamri vegna ábendinga um að sauðfé gangi í landi Óseyrar en í því eru lagðar fram fyrirspurnir um fjölda og hvað teljist til ágangs. Ekki liggur fyrir staðfesting á eignarhaldi á sauðfénu.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að fara yfir málið að nýju og leggja það fyrir bæjarráð.
-
Bæjarráð, fundur 863 liður 7
Samkvæmt greiningu verkefnastjóra umhverfismála var staðfest að fé væri á jörðinni, og bæjarráð skoraði á fjáreigendur að smala því og veitti andmælafrest
Endursögn gervigreindar
Tekin fyrir greining frá verkefnastjóra umhverfismála á ágangi í landi Óseyrar á Stöðvarfirði en staðfest er að fé er á jörðinni.
Bæjarráð skorar á fjáreigendur sem líkindi er til að eigi sauðfé í landi Óseyrar að smala því og veitir hlutaðeigandi andmælafrest.
-
Bæjarstjórn, fundur 382 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 862“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 382 liður 2.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 863“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 865 liður 8
Andmæli fjáreiganda vegna áskorunar bæjarráðs voru lögð fram
Endursögn gervigreindar
Framlögð andmæli frá fjáreiganda Þverhamars vegna áskorunar bæjarráðs um að sauðfé sé smalað af landi Óseyrar.
-
Bæjarstjórn, fundur 383 liður 2.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 865“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 870 liður 6
Lagt var fram erindi landeigenda vegna ágangs búfjár og afgreiðslu tengdra mála, og bæjarritara var falið að svara því
Endursögn gervigreindar
Framlagt erindi landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs búfjár og afgreiðslu mála sem tengist því.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi bréfritara.
-
Bæjarstjórn, fundur 386 liður 4.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 870“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.