Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 806

14. júlí 2023, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 357 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

    Engin tók til máls.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2303071 Allur ferill málsins

    Lögð fram sem trúnaðarmál samantekt fjármálastjóra um tekjur Fjarðabyggðar það sem af er árinu 2023, samatekt um viðhaldliði það sem af er árinu og málaflokkayfirlit yfir rekstur janúar - maí 2023.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024

    Mál 2305073 Allur ferill málsins

    Vísað frá hafnarstjórn til bæjarráðs minnisblaði þar sem farið er yfir framkvæmdir og fjárhag ársins 2023 í samhengi við áætlun 2024.

    Framlagt og kynnt. Bæjarráð samþykkir tillögurnar. Vísar þeim til viðauka númer 3.

  3. 3. Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði

    Mál 2301057 Allur ferill málsins

    Framlögð uppfærð kostnaðaráætlun um framkvæmdir við skólahúsnæðið að Lambeyrarbraut 14 á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir áætluna fyrir sitt leyti og vísar henni til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins. Jafnframt er áætluninni vísað til mannvirkja- og veitunefndar.

  4. 4. Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 3

    Mál 2307006 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga viðauka 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2023 vegna áhrifa breytinga nýrra kjarasamninga, framkvæmdum við íþrótta- og skólahúsnæði á Eskifirði, auknum kostnaði við barnavernd, breytinga á fjárfestingaráætlun Fjarðabyggðahafna og lántöku.

    Hækkun rekstrargjalda í félagsþjónustu vegna barnaverndarþjónustu nemur 118,5 m.kr.

    Hækkun á fjárfestingum Eignasjóðs vegna íþróttahússins á Eskifirði nemur 10 m.kr.

    Hækkun á fjárfestingum Eignasjóðs vegna skólahúsnæðis á Eskifirði nemur 116 m.kr.

    Hækkun á launakostnaði samstæðu vegna breytinga á kjarasamningum og tengdra breytinga nemur 70,6 m.kr. sem skiptist milli deilda og sviða innan a- og b-hluta áætlunar.

    Lækkun fjárfestinga hafnarsjóðs vegna endurskoðunar áætlunar nemur 110 m.kr.

    Aukin langtímalántaka eignasjóðs vegna breytinga á fjárhagsáætlun nemur 134 m.kr.

    Hækkun fjármagnsgjalda samstæðu vegna lántöku nemur 8,1 m.kr.

    Viðauki hefur þau atriði að sjóðsstreymi samstæðu lækkar um 70 m.kr. og að handbært fé verði um 395 m.kr. í árslok 2023. Lántökuheimild ársins nemur 654 m.kr.

    Bæjarráð staðfestir viðauka 3 með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

  5. 5. Fjármálaráðstefna 2023

    Mál 2210132 Allur ferill málsins

    Framlögð tilkynning um að fjármálaráðstefna verður haldin 21. til 22. september.

    Bæjarráð, bæjarstjóri og fjármálastjóri mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  6. 6. Arsreikningur Almannavarnarnefndar Austurlands fyrir árið 2022

    Mál 2307023 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Almannavarnarnefndar Austurlands fyrir árið 2022 lagður fram til kynningar.

  7. 7. Ósk um tilnefningu aðliggjandi sveitarfélaga í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði

    Mál 2306116 Allur ferill málsins

    Innviðaráðuneytið hefur óskað eftir tilnefningu í svæðisráð um strandsvæðaskipulag fyrir Austfirði.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúi Fjarðabyggðar í svæðisráðinu verði Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

  8. 8. Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023

    Mál 2303238 Allur ferill málsins

    Stöðufundur með Deloitte vegna vinnnu við stöðuúttekt stjórnssýslu Fjarðabyggðar.

  9. 9. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira

    Mál 2302021 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað vegna innleiðingar klippikorta á móttökustöðvum úrgangs í Fjarðabyggð. Gert er ráð fyrir því að frá og með 15. september þurfi einstaklingar og rekstraraðilar að framvísa klippikortum á gámavöllum við losun úrgangs. Eitt klippikort verði afhent hverju heimili án endurgjalds en eftir það verði innheimt gjald við afhendingu klippikorta.

    Bæjarráð staðfestir tillögur um klippikort á mótttökustöðvum úrgangs og vísar erindi til kynningar í umhverfis- og skipulagsnefnd.

  10. 10. Erindi er varðar tjaldstæðið á Stöðvarfirði

    Mál 2307013 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál erindi frá íbúa sem varðar tjaldsvæðið á Stöðvarfirði.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur atvinnu- og þróunarstjóra framkvæmdina.

  11. 11. Fundur ríkisstjórnarinnar á Austurlandi 2023

    Mál 2307029 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá framkvæmdastjóra Austurbrúar vegna ríkisstjórnarfundar sem áætlað er að halda á Austurlandi fimmtudaginn 31. ágúst nk.

  12. 12. Erindi til sveitarfélaga frá Bændasamtökum Íslands lausagangaágangur búfjár

    Mál 2307039 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi frá Bændasamtökum Íslands varðandi lausagöngu búfjár.

    Bæjarráð vísar erindi frá Bændasamtökum Íslands til fjallskilanefndar.

  13. 13. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði

    Mál 2306063 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Ívars Ingimarsson og Hrefnu Arnardóttur varðandi skaðabætur vegna ágangsfjár í landi Óseyrar á Stöðvarfirði.

    Bæjarráð vísar erindinu til fjallskilanefndar.

  14. 14. Franskir dagar 2023

    Mál 2209244 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að dagskrá vegna heimsóknar fulltrúa frá Gravelines í tilefni franskra daga 2023.

    Upplýsingafulltrúa er falið að fylgja málinu eftir.

  15. 15. Boð Matvælaráðuneytisins til samráðs vegna stefnumótunar lagareldis

    Mál 2304174 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að umsögn um stefnumótunardrög lagareldis sem kynnt voru af hálfu matvælaráðuneytisins þann 19. og 20. júní 2023.

    Bæjarráð samþykkir að senda umsögn.

  16. 16. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 18

    Mál 2306147 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs stækkun lóðar vegna endurnýjunar lóðarleigusamnings fyrir Hlíðargötu 18 á Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir lóðarleigusamning.

  17. 17. Sumarlokun bæjarskrifstofu 2023

    Mál 2307049 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um lokun bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar sumarið 2023 vikuna fyrir og eftir verslunarmannahelgi. Tillaga gerir fyrir lokun afgreiðslu og símsvörunar á þessum tíma.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna.

  18. 18. Göngustígur utan við fótboltavöll, Stöðvarfirði

    Mál 2302030 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til bæjarráðs beiðni um styrk.

    Bæjarráð samþykkir að veita 15.000 kr. styrk og tekið af liðnum óráðstafað

  19. 19. Deiliskipulag Nes- og Bakkagil

    Mál 2303368 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að auglýsingu nýs deiliskipulags fyrir Nes- og Bakkagil á Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir að nýtt deiliskipulag Nes- og Bakkagils verði auglýst með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

  20. 20. 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar

    Mál 1606100 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir Fólkvang á Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir að breyting deiliskipulags Fólkvangs á Norðfirði verði auglýst með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

  21. 21. Deiliskipulag Drangagil - endurskoðun

    Mál 2307048 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi fyrir Drangagil snjóflóðavarnir.

    Bæjarráð samþykkir að breyting á deiliskipulagi Svæði 1 Drangagil snjóflóðavarnir verði auglýst með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

  22. 22. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023

    Mál 2302093 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 65 lögð fram til kynningar.

  23. 23. Hafnarstjórn - 298

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 10. júlí 2023.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð hafnarstjórnar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

    1. 23.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
    2. 23.2 Viljayfirlýsing um samstarf - TRÚNAÐARMÁL2107010
    3. 23.3 Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði2208102
    4. 23.4 Grútarmengun í Eskifirði2307011
    5. 23.5 Umsókn um styrk vegna Neistaflugs 20232307008
    6. 23.6 Ósk um styrk vegna Siglingaklúbb Austurlands 20232306114
    7. 23.7 Stormpolli á Mjóeyrarhöfn2209023
    8. 23.8 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20232305025
  24. 24. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 30

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 11. júlí 2023 lögð fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

    1. 24.1 Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2302173
    2. 24.2 Göngustígur utan við fótboltavöll, Stöðvarfirði2302030
    3. 24.3 Uppsetning á útiæfingatækjum2107013
    4. 24.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 182306147
    5. 24.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Lundargata 42307026
    6. 24.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2306205
    7. 24.7 Deiliskipulag Nes- og Bakkagil2303368
    8. 24.8 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar1606100
    9. 24.9 Deiliskipulag Drangagil - endurskoðun2307048
    10. 24.10 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 20222112033