Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 3
Mál 2307006 Fyrst á dagskrá 14. júlí 2023, síðast 17. ágúst 2023. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2023
Bæjarráð, fundur 806 liður 4
Framlögð tillaga viðauka 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2023 vegna áhrifa breytinga nýrra kjarasamninga, framkvæmdum við íþrótta- og skólahúsnæði á Eskifirði, auknum kostnaði við barnavernd, breytinga á fjárfestingaráætlun Fjarðabyggðahafna og lántöku.
Hækkun rekstrargjalda í félagsþjónustu vegna barnaverndarþjónustu nemur 118,5 m.kr.
Hækkun á fjárfestingum Eignasjóðs vegna íþróttahússins á Eskifirði nemur 10 m.kr.
Hækkun á fjárfestingum Eignasjóðs vegna skólahúsnæðis á Eskifirði nemur 116 m.kr.
Lesa alla bókunina (104 orð til viðbótar)
Hækkun á launakostnaði samstæðu vegna breytinga á kjarasamningum og tengdra breytinga nemur 70,6 m.kr. sem skiptist milli deilda og sviða innan a- og b-hluta áætlunar.
Lækkun fjárfestinga hafnarsjóðs vegna endurskoðunar áætlunar nemur 110 m.kr.
Aukin langtímalántaka eignasjóðs vegna breytinga á fjárhagsáætlun nemur 134 m.kr.
Hækkun fjármagnsgjalda samstæðu vegna lántöku nemur 8,1 m.kr.
Viðauki hefur þau atriði að sjóðsstreymi samstæðu lækkar um 70 m.kr. og að handbært fé verði um 395 m.kr. í árslok 2023. Lántökuheimild ársins nemur 654 m.kr.
Bæjarráð staðfestir viðauka 3 með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
-
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 3.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 806“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.