Um vefinn, aðferðina og hlutleysisreglurnar
Hnotskurninn er óháður upplýsingavefur um stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Hann er ekki á vegum sveitarfélagsins og ekki á vegum neins stjórnmálaflokks.
Hvað er þetta?
Sveitarfélagið birtir fundargerðir fund fyrir fund. Mál fer hins vegar oft í gegnum margar nefndir, bæjarráð og bæjarstjórn á mörgum mánuðum, og í hverri fundargerð stendur aðeins lítill hluti sögunnar. Hnotskurninn fylgir málinu í staðinn fyrir fundinum. Öllum færslum með sama málsnúmeri er safnað saman og raðað í tímaröð.
Tilgangurinn er einn: að auðvelda fólki að sjá hvað stjórnvöld í sveitarfélaginu eru að gera. Vefurinn tekur ekki afstöðu til mála.
Nú eru hér 10.240 mál, 2.210 fundargerðir 20 nefnda og ráða frá 3. mars 2009 til 12. nóvember 2026, 1.887 yfirlit og 142 bæjarstjórnarfundir með upptöku.
Í fundargerðunum eru 11.977 málsnúmer. Af þeim eru 1.737 ekki mál heldur heilar fundargerðir sem fengu eigið númer þegar þær voru lagðar fram á öðrum fundi. Þær eru sýndar á síðu viðkomandi fundar. Eftir standa 10.240 mál.
Heimildir
- Fundargerðir af fjardabyggd.is. Texti þeirra er birtur óbreyttur og auðkenndur sem tilvitnun. Við hverja færslu er tengill í opinberu fundargerðina.
- Upptökur af fundum bæjarstjórnar á YouTube. Tengill fer beint á þá sekúndu þar sem umræða um málið hefst.
Vefurinn er uppfærður á hverri nóttu. Síðasta uppfærsla var 14. nóvember 2026.
Hlutur gervigreindar
Gervigreind kemur við sögu á þremur stöðum. Allt sem hún býr til er merkt.
1. Stutt yfirlit um mál
Málalíkanið Claude Opus frá Anthropic skrifar kaflann „Í hnotskurn“ og stuttar endursagnir við færslur. Það fær eingöngu fundargerðirnar og uppskrift af upptökum málsins og á að enda hverja setningu á tilvísun í heimild. Vefurinn breytir hverri tilvísun í tengil. Setning sem vísar ekki í gilda heimild er ekki birt. Skrifuð hafa verið 1.927 yfirlit. Af þeim eru 1.887 birt við mál. 40 voru skrifuð um heilar fundargerðir og eru ekki birt, 0 voru stöðvuð í skimun og 0 reyndust ónothæf. Önnur mál, 8.353 talsins, sýna aðeins ferilinn úr fundargerðum.
Yfirlitin hafa ekki verið lesin yfir af manneskju eitt og eitt. Villutíðni þeirra hefur ekki verið mæld. Lestu þau sem leiðarvísi og treystu heimildinni.
2. Uppskrift af upptökum
Íslenskt talgreiningarlíkan (Whisper, þjálfað af Language and Voice Lab við Háskólann í Reykjavík) skrifar upp það sem sagt er á fundum bæjarstjórnar. Uppskriftin er full af villum, sérstaklega í nöfnum og tölum. Hún er aldrei sett fram sem orðrétt tilvitnun. Hún er falin þar til þú opnar hana og upptakan sjálf er heimildin.
3. Tenging upptöku við dagskrárliði
Málalíkön merkja hvaða dagskrárlið hver kafli upptökunnar fjallar um. Á fjórum fundum sem voru bornir saman við handunna merkingu var rétt merkt í 98 til 100 af hverjum 100 línum þegar litið er á aðalliði dagskrár. Undirliðir fundargerða eru erfiðari: á einum fundi sem var prófaður voru 86 af hverjum 100 línum réttar. Tímasetning getur því skeikað.
Sjálfvirk skimun
Áður en yfirlit er birt er leitað í því að gildishlöðnum orðum af lista. Yfirlit sem inniheldur slíkt orð er ekki birt fyrr en manneskja hefur skoðað það. Í þessari útgáfu voru 0 yfirlit stöðvuð. Listinn er: umdeil, harðar umræður, harðri umræðu, hörð umræða, heitar umræður, loksins, því miður, sem betur fer, hneyksl, fáránleg, augljóslega, að sjálfsögðu, réttilega, ranglega, furðuleg, klúður, skammarleg, harðlega, harðorð. Þetta er einföld orðaleit og hún finnur ekki allt.
Ónafngreint fólk er kallað „fulltrúi“, ekki „hann“ eða „hún“. Sjálfvirk leiðrétting var gerð á 56 setningum þar sem það var öruggt.
Hlutleysisreglur
- Heimild fyrst. Hver setning á málssíðu vísar í línu í fundargerð eða tímasetningu á upptöku. Engin fullyrðing án heimildar.
- Lýsa, aldrei dæma. Yfirlit segja hvað var lagt til, hvað var sagt og hvað var ákveðið. Engin lýsingarorð um afstöðu fólks, engir sigurvegarar og engir taparar.
- Jöfn meðferð. Sama sniðmát fyrir öll mál. Í umræðu fær hver ræðumaður sitt meginatriði, í þeirri röð sem talað var.
- Málið er í forgrunni, ekki fólkið. Kjörnir fulltrúar og starfsmenn koma fram með nafni eins og í fundargerðum. Það eru engar einkunnir og engir listar yfir fólk á forsíðu. Einstaklingar utan stjórnsýslunnar fá aldrei eigin síðu og eru ekki nafngreindir í yfirlitum.
- Flokkar eru aðeins merkimiði. Stjórnmálaflokkur er aldrei notaður til að flokka, lita eða raða. Á þessum vef er hann hvergi sýndur nema í óbreyttum texta fundargerða.
- Vélritað efni er merkt. Aðferðin er opin á þessari síðu og á hverri síðu er tengill til að senda leiðréttingu.
- Skimun fyrir birtingu. Yfirlit eru skimuð fyrir gildishlöðnum orðum eins og lýst er hér að ofan.
- Engir peningar frá flokkum eða frambjóðendum. Aldrei.
Röð á listum er alltaf tímaröð, númeraröð eða stafrófsröð. Ekkert er raðað eftir því hversu mikið var deilt um það. Guli liturinn er litur vegvísa og var valinn vegna þess að hann er ekki litur neins flokks í bæjarstjórn.
Flokkun eftir stöðum og efni
Mál er sett undir stað ef nafn staðarins kemur fyrir í heiti málsins í einhverri beygingarmynd. Mál er sett undir efni ef eitthvert þessara orða eða orðhluta er í heitinu:
- Byggingar og framkvæmdir: byggingarleyf, framkvæmdaleyf, viðbygging, nýbygging, húsnæði, stöðuleyf
- Fjármál og gjaldskrár: fjárhagsáætl, ársreikning, viðauk, gjaldskr, lántök, fjármál, fasteignagj, útsvar, rekstraryfirlit
- Hafnir: höfn, hafn, bryggj
- Íþróttir og tómstundir: íþrótt, sundlaug, skíða, tómstund, félagsmiðst
- Lóðir: lóð
- Menning og söfn: menning, safn, bókasafn, hátíð
- Samgöngur: vegur, vegir, vegagerð, jarðgöng, göng, snjómokst, almenningssamg, flugv, umferð
- Sjávarútvegur og fiskeldi: fiskeld, laxeld, sjókví, loðn, sjávarútveg
- Skipulag: skipulag
- Skólar og fræðsla: skól, fræðslu
- Styrkir: styrk
- Umhverfi og veitur: sorp, úrgang, fráveit, vatnsveit, hitaveit, umhverfis, ofanflóð, snjóflóð
- Velferð: félagsþjónust, barnavernd, fatlað, aldrað, hjúkrunarheimil, velferð, húsnæðisstuðn, félagsleg
Þetta er einföld orðaleit. Mál getur lent í flokki sem á ekki við og mál vantar í flokk ef heitið nefnir ekki staðinn eða efnið. Leitin nær til allra mála.
Þekkt takmörk
- Nokkrar eldri fundargerðir bæjarstjórnar eru ekki lengur á vef sveitarfélagsins og vantar því hér.
- Í elstu fundargerðum vantar stundum málsnúmer. Þá getur ferill máls verið ófullkominn.
- Upptökur eru aðeins til af fundum bæjarstjórnar, ekki nefnda eða bæjarráðs.
- Yfirlit geta verið eldri en nýjustu færslur. Þá stendur það á síðunni.
- Leitin nær til heita mála og málsnúmera, ekki texta fundargerða.
Persónuvernd
Vefurinn notar engar vafrakökur, enga rakningu og sækir ekkert frá öðrum vefþjónum þegar síða er opnuð. Letur og leit eru hýst hér. Eina undantekningin er myndbandsspilarinn: þegar þú ýtir á „Spila upptöku“ sækir vafrinn myndbandið frá YouTube (youtube-nocookie.com) og YouTube sér þá að beiðnin kemur frá þessum vef. Fram að því fer ekkert til YouTube.
Nöfn einstaklinga utan stjórnsýslunnar eru tekin út úr leitarskránni, þannig að ekki er hægt að leita að þeim hér. Þau geta samt staðið í óbreyttum texta fundargerða, eins og á vef sveitarfélagsins.
Villur og leiðréttingar
Ef eitthvað er rangt, villandi eða ósanngjarnt, sendu línu á dadi@tolvuhvislarinn.is og segðu hvaða síðu þú átt við. Villur í okkar eigin efni eru leiðréttar. Villur í fundargerðum sjálfum þarf sveitarfélagið að leiðrétta.
Vefinn smíðar Tölvuhvíslarinn.