Bæjarráð, fundur 807
24. júlí 2023, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 4
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Engin tók til máls.
Dagskrá
-
1. Verðfyrirspurn vegna sundakstur frá Reyðarfirði til Eskifjarðar 2023-2024
Mál 2306120 Allur ferill málsins
Framlagt tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í akstur vegna sundkennslu barna í Grunnskóla Reyðarfjarðar á Eskifirði. Einungis eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í aksturinn og felur bæjarstjóra að undirrita samning þar um.
-
2. Verðfyrirspurn vegna akstur með nemendur í 9. og 10. bekk í VA haustið 2023
Mál 2306105 Allur ferill málsins
Framlagt tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í akstur með nemendur í 9. og 10. bekk í Verkmenntaskóla Austurlands haustið 2023. Einungis eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í aksturinn og felur bæjarstjóra að undirrita samning þar um.
-
3. Verðfyrirspurn vegna íþróttaakstur Eskifjarðarskóla í Íþróttamistöð Reyðarfjarðar
Mál 2306090 Allur ferill málsins
Framlagt tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í akstur vegna íþróttakennslu barna í Eskifjarðarskóla á Reyðarfirði. Einungis eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í aksturinn og felur bæjarstjóra að undirrita samning þar um.
-
4. Verðfyrirspurn vegna skólaakstur nemenda milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar 2023-2024
Mál 2306088 Allur ferill málsins
Framlagt tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í skólaakstur nemenda milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar skólaárið 2023 - 2024. Einungis eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í aksturinn og felur bæjarstjóra að undirrita samning þar um.
-
5. Kaupsamningur Eyji NK-4
Mál 2307079 Allur ferill málsins
Framlagður kaupsamningur Eyji NK-4 vegna fyrirspurnar um hvort sveitarfélagið nýti sér lögboðinn forkaupsrétt að bátnum en hann er seldur með aflaheimildum á sæbjúgum.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Eyji NK-4 með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
-
6. Römpum upp Ísland
Mál 2307101 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um verkefnið römpum upp Ísland og verkefni sem unnið verður að í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu og felur framkvæmda- og umhverfissviði útfærslu þess ásamt upplýsingafulltrúa. Kostnaði við hlutdeild Fjarðabyggðar mætt af liðnum óráðstafað 21-690 en hann nemur um 850.000 kr.
-
7. Bréf til Bæjarráðs
Mál 2307074 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Íbúsamtökum Stöðvarfjarðar um viðhalds- og endurbótaverkefni sem óskað er eftir að hugað verði að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.
Bæjarráð vísar erindi til mannvirkja- og veitunefndar og fjárhagsáætlunargerðar ársins 2024.
-
8. Stjórnsýslukæra
Mál 2307081 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu vegna stjórnsýslukæru frá Ívari Ingimarssyni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara stjórnsýslukæru.
-
9. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Málflutningsstofu Snæfellsness vegna ágangs búfjár.
Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar fjallskilanefndar.
-
10. Drög að samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 Mál nr 1122023
Mál 2306081 Allur ferill málsins
Farið yfir umsögn Fjarðabyggðar vegna samgönguáætlunar fyrir árin 2024 til 2038.
-
11. Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni
Mál 2305266 Allur ferill málsins
Farið yfir málefni slökkviliðs Fjarðabyggðar
-
12. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 10
Framlögð fundargerð stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar frá 12. júlí.
Bæjarráð staðfestir fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.