Bæjarráð, fundur 808
10. ágúst 2023, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 357 liður 5
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Engin tók til máls.
Dagskrá
-
1. Yfirlýsing vegna kaupréttar
Mál 2209031 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar matsgerð dómskvaddra matsmanna vegna fasteignarinnar Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
-
2. Fjallskil og gangnaboð 2023
Mál 2307003 Allur ferill málsins
Vísað frá fjallskilanefnd til staðfestingar bæjarráðs tillögu að gangnaboði 2023 frá fjallskilanefnd.
Bæjarráð samþykkir gangnaboð 2023 með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
-
3. Lystigarðsnefnd Kvenfélagsins Nönnu
Mál 2308009 Allur ferill málsins
Lystigarðsnefnd Kvenfélagsins Nönnu í Neskaupstað vekur athygli bæjaryfirvalda á því að Lystigarðurinn í Neskaupstað verður 90 ára á næsta ári 2024. Af því tilefni leggjum við til að sett verði á laggirnar afmælisnefnd skipaða konum úr lystigarðsnefnd Nönnu auk fulltrúa/um frá Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar verði Helga Björk Einarsdóttir garðyrkjustjóri og vísar til umhverfis- og skipulagsnefndar skipun eins fulltrúa að auki í afmælisnefnd.
-
4. Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023
Mál 2303238 Allur ferill málsins
Deloitte heldur vinnustofur 22. ágúst og heldur fund með bæjarráði 21. ágúst, mánudag. Fram lagt og kynnt.
-
5. Stjórnsýslukæra
Mál 2307081 Allur ferill málsins
Kynnt svarbréf vegna stjórnsýslukæru.
-
6. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Vísað frá fjallskilanefnd til bæjarráðs máli landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði. Fjallskilanefnd telur í ljósi framlagðs álits lögmannsstofunnar að sveitarfélaginu beri ekki að verða við kröfu landeiganda Óseyrar um smölun lands hans. Fjallskilanefnd tekur ekki afstöðu til erindis sem fjallar um bótaskyldu sveitarfélagsins. Þá telur fjallskilanefnd að sterkar líkur séu á að sauðfé komi frá Breiðdal en jafnframt hafi fé áður komið fram í Stöðvarfirði frá Héraði og Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð telur að mikil réttaróvissa sé í tengslum við túlkun laga nr. 38/2013 um búfjárhald og laga nr. 6/1986 um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. Ekki er til staðar leiðbeinandi álit um þau álitaefni sem eru uppi m.a. um framkvæmd afgreiðslu beiðna um smölun ágangsfjár, hvað teljist verulegur ágangur búfjár og hvenær sveitarfélagi beri að bregðast við honum, réttindi og skyldur fjár- og landeigenda til að afstýra óæskilegum ágangi og inngripi sveitarfélags eða lögreglustjóra.
Bæjarráð samþykkir því að fresta afgreiðslu beiðnar landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði um smölun ágangsfjár með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta sveitarfélagsins. Málið verður tekið upp að nýju þegar leiðbeinandi álit matvælaráðuneytis verður gefið út eða öðru því sem greiði úr þeim álitamálum sem uppi eru. Jafnframt er beðið úrskurðar innviðaráðuneytisins en málsmeðferð sveitarfélagsins vegna málsins hefur verið kærð til þess. Bæjarráð telur ekki rétt að hefja stjórnsýslumál sem leitt getur af sér íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun sem byggir ekki á traustum og óumdeildum lagagrunni. Þá tekur bæjarráð ekki afstöðu til meintrar bótaskyldu sveitarfélagsins gagnvart landeiganda Óseyrar. Bæjarráð beinir til stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi að mikilvægt sé að fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur verði tekin til endurskoðunar í ljósi þess að skýra þurfi ágang búfjár nánar ásamt því að skilgreina þurfi réttindi og skyldur fjáreigenda og landeigenda í því sambandi. Þá sé æskilegt að stjórnin hlutist til um að samræma verklagsreglur vegna ágangsmála í framhaldi þess að greitt verði úr álitamálum af hálfu matvælaráðuneytis en fjallskilasamþykktin gildir fyrir fjögur sveitarfélögin á starfssvæði Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
-
7. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Framlögð tvö bréf landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði.
Bæjarráð vísar í bókun sína í dagskrárlið nr. 6.
-
8. Slökkviliðsstjóri auglýsing
Mál 2308029 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að auglýsingu fyrir starf slökkviliðsstjóra.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa stöðuna.
-
9. Drög að samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 Mál nr 1122023
Mál 2306081 Allur ferill málsins
Farið yfir umsögn Fjarðabyggðar vegna samgönguáætlunar fyrir árin 2024 til 2038.
-
10. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 31
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 1. ágúst lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 10.1 Umsókn um lóð2307046
- 10.2 Sólbakki 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2307089
- 10.3 Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2306156
- 10.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2307108
- 10.5 Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði2302013
- 10.6 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
- 10.7 Umsókn um framkvæmdarleyfi - vegalagning, gönguslóðar og fleira2307135
- 10.8 Fjallskilanefnd - 32307001F
- 10.9 Fjallskilanefnd - 42307013F
- 10.10 Ystidalur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2306106
-
11. Fjallskilanefnd - 3
Fundargerð fjallskilanefndar frá 13. júlí lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð fjallskilanefndar með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 11.1 Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði2306063
- 11.2 Erindi til sveitarstjórna vegna ágangs búfjár - minnisblað sambandsins2302037
- 11.3 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
- 11.4 Fjallskil og gangnaboð 20232307003
- 11.5 Sauðfé í þéttbýli - úrræði2103192
-
12. Fjallskilanefnd - 4
Fundargerð fjallskilanefndar frá 28. júlí lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð fjallskilanefndar með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 12.1 Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði2306063
- 12.2 Fjallskil og gangnaboð 20232307003