Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjallskilanefnd

Fjallskilanefnd, fundur 4

28. júlí 2023, kl. 10:00 til 11:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Sigurður Max Jónsson, varamaður
  • Marsibil Erlendsdóttir, aðalmaður
  • Sunna Júlía Þórðardóttir, aðalmaður
  • Steinn Björnsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 31 liður 9

    Fundargerð fjallskilanefndar frá 28. júlí lögð fram til afgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd staðfestir fundagerð.

  • Bæjarráð, fundur 808 liður 12

    Fundargerð fjallskilanefndar frá 28. júlí lögð fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð fjallskilanefndar með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði

    Mál 2306063 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði bréfi lögmanns landeiganda Óseyrar þar sem ítrekuð er krafa um smölun landsins. Jafnframt er lögð fram álitsgerð frá Lögmannsstofu Norðurlands en fjallskilanefnd óskaði eftir álitsgerð á síðasta fundi þar sem mikil réttaróvissa er í málaflokknum.

    Fjallskilanefnd telur í ljósi framlagðs álits lögmannsstofunnar að sveitarfélaginu beri ekki að verða við kröfu landeiganda Óseyrar um smölun lands hans. Fjallskilanefnd tekur ekki afstöðu til erindis sem fjallar um bótaskyldu sveitarfélagsins. Þá telur fjallskilanefnd að sterkar líkur séu á að sauðfé komi frá Breiðdal en jafnframt hafi fé áður komið fram í Stöðvarfirði frá Héraði og Fáskrúðsfirði. Fjallskilanefnd vísar málinu til bæjarráðs.

  2. 2. Fjallskil og gangnaboð 2023

    Mál 2307003 Allur ferill málsins

    Framlagt og yfirfarið gangnaboð Fjarðabyggðar 2023.

    Fjallskilanefnd staðfestir gangnaboð og vísar því til staðfestingar bæjarráðs.