Fjallskilanefnd, fundur 3
13. júlí 2023, kl. 14:00 til 15:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Arnór Ari Sigurðsson, varaformaður
- Sigurður Max Jónsson, varamaður
- Sunna Júlía Þórðardóttir, aðalmaður
- Arnar Ingi Ármannsson, varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 31 liður 8
Fundargerð fjallskilanefndar frá 13. júlí lögð fram til afgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd staðfestir fundargerð.
Bæjarráð, fundur 808 liður 11
Fundargerð fjallskilanefndar frá 13. júlí lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð fjallskilanefndar með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
Dagskrá
-
1. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Við umfjöllun og afgreiðslu máls vék Arnór Ari Sigurðsson af fundi.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu fjallskilanefndar erindi Ívars Ingimarsson og Hrefnu Arnarsdóttur frá 11. júní vegna smölunar á ágangsfé í landi Óseyrar á Stöðvarfirði. Jafnframt er framlagt erindi Lögreglustjórans á Austurlandi um ágang búfjár og svarbréf Fjarðabyggðar.
Fjallskilanefnd telur afar brýnt að endurskoða fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur sem allra fyrst með hliðsjón af ágreiningi um ágang sauðfjár og þess að fjallskilsamþykktin kveður ekkert á um ágang milli svæða innan sveitarfélags. Jafnframt felur fjallskilanefnd formanni fjallskilanefndar og bæjarritara að leita lögfræðiálits um stöðu sveitarfélagsins og leggja fyrir nefnd að nýju. Nefndin getur ekki að svo stöddu tekið afstöðu til erindis landeiganda Óseyrar.
-
2. Erindi til sveitarstjórna vegna ágangs búfjár - minnisblað sambandsins
Mál 2302037 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um ágang búfjár frá því í febrúar 2023.
-
3. Fjárréttir í Fjarðabyggð
Mál 1808042 Allur ferill málsins
Fjallað um ástand fjárrétta í Fjarðabyggð.
Fjallskilanefnd telur ekki þörf á sérstöku viðhaldi fjárrétta í Fjarðabyggð að undanskilinni rétt í Norðfirði. Reisa þarf nýja rétt sem hentar aðstæðum.
Fjallskilastjóra í samstarfi við skipulags- og umhverfisfulltrúa og verkefnastjóra umhverfismála falið að afmarka lóð og hefja undirbúning framkvæmdar.
-
4. Fjallskil og gangnaboð 2023
Mál 2307003 Allur ferill málsins
Fjallað um undirbúning gangnaboðs fyrir haustið 2023.
Vísað til næsta fundar.
-
5. Sauðfé í þéttbýli - úrræði
Mál 2103192 Allur ferill málsins
Fé hefur farið inn fyrir þéttbýlismörk innan Fjarðabyggðar.
Fjallskilanefnd telur mikilvægt að girðingum kringum þéttbýli sé vel við haldið til losna við ágang sauðfjár inn í þéttbýlin.