Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjallskilanefnd

Fjallskilanefnd, fundur 2

14. september 2022, kl. 14:00 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Arnór Ari Sigurðsson, varaformaður
  • Sunna Júlía Þórðardóttir, aðalmaður
  • Steinn Björnsson, aðalmaður
  • Arnar Ingi Ármannsson, varamaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 8 liður 16

    fundagerð fjallskilanefndar 14.9.2022 lögð fram til afgreiðslu

    1. 2208084 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 2023

    Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023. Fjármálastjóri mun mæta á fundin og fara yfir áætlunargerðina. Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt fjallskilastjóra að ástandsskoða fjárréttir í Fjarðabyggð og gera verk- og kostnaðaráætlun á endurbótum.

    2. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA

    Framlagt bréf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um endurskoðun fjallskilasamþykktar en hún hefur tekið breytingum frá því sem hún var upphaflega afgreidd í gegnum landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Fjallskilasamþykkt hefur ekki fengið formlega afgreiðslu í bæjarstjórn.

    Bæjarráð vísaði fjallskilasamþykktinni til umfjöllunar fjallskilanefndar.

    Fjallskilanefnd gerir tillögu að breytingum á 22.gr Fjallskilasamþykktar sveitarfélaga á austurlandi. Þar sem fram kemur að fé skuli ekki ganga á afrétt, upprekstrarheimalandi og/eða heimalandi annarra jarða eftir löggöngur. Nefndin álítur réttara að miða við dagsetningu t.d. 20. nóvember þar sem fullorðnar ær ganga oft í heimalandi eftir löggöngur við gott atlæti.

    Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að koma tillögunni til stjórnar SSA.

    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30

  • Bæjarráð, fundur 768 liður 18

    Fundargerð fjallskilanefndar frá 14. september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 340 liður 11

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson.

    Fundagerð fjallskilanefndar frá 14. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 2023

    Mál 2208084 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023. Fjármálastjóri mun mæta á fundin og fara yfir áætlunargerðina. Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt fjallskilastjóra að ástandsskoða fjárréttir í Fjarðabyggð og gera verk- og kostnaðaráætlun á endurbótum.

  2. 2. Fjallskilasamþykkt SSA

    Mál 2208175 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um endurskoðun fjallskilasamþykktar en hún hefur tekið breytingum frá því sem hún var upphaflega afgreidd í gegnum landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Fjallskilasamþykkt hefur ekki fengið formlega afgreiðslu í bæjarstjórn.

    Bæjarráð vísaði fjallskilasamþykktinni til umfjöllunar fjallskilanefndar.

    Fjallskilanefnd gerir tillögu að breytingum á 22.gr Fjallskilasamþykktar sveitarfélaga á austurlandi. Þar sem fram kemur að fé skuli ekki ganga á afrétt, upprekstrarheimalandi og/eða

    heimalandi annarra jarða eftir löggöngur. Nefndin álítur réttara að miða við dagsetningu t.d. 20. nóvember þar sem fullorðnar ær ganga oft í heimalandi eftir löggöngur við gott atlæti.

    Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að koma tillögunni til stjórnar SSA.