Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 8

27. september 2022, kl. 16:00 til 18:19, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
  • Björgvin V Guðmundsson, varamaður

Starfsmenn

  • Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 767 liður 16

    Fundargerð 8. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 27. september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 339 liður 11

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar saman til umræðu og afgreiðslu.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 27. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2023

    Mál 2208083 Allur ferill málsins

    Framhald umræðu um fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagssviðs frá síðasta fundi. Lagt fram yfir frá fjármálastjóra um teksturinn í fyrra og í ár ásamt fyrstu tillögu að sundurliðaðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.

  2. 2. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2209218 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Urðarteig 17, Neskaupsstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  3. 3. 740 Melagata 12 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2205208 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Melgötu 12, Neskaupsstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  4. 4. Umsókn um lóð Hafnarbraut 40

    Mál 2209220 Allur ferill málsins

    Sótt eru um lóð að Hafnarbraut 40, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  5. 5. Umsókn um lóðir Hlíðarbrekka 1-3-5-7

    Mál 2209201 Allur ferill málsins

    Sótt eru um lóðirnar Hlíðarbrekku 1-3-5-7, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  6. 6. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2209200 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi fyrir færanleg starfsmanna híbýli að Hlíðarbrekku 1-7. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stöðuleyfi fyrir fjórum íbúðagámaeiningum að uppfylltum skilyrðum viðeigandi stofnana.

  7. 7. Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku

    Mál 2209217 Allur ferill málsins

    Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku.Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að koma með úrlausn á vandamálinu og leggja fyrir að nýju.

  8. 8. Fugladauði

    Mál 2208118 Allur ferill málsins

    Minnisblað varðandi fugladauða í Fjarðabyggð, til kynningar.

  9. 9. Ný staðsetning gámasvæða

    Mál 2209189 Allur ferill málsins

    Tillaga að nýjum gámasvæðum á Hjallaleiru 10, Reyðarfirði og Símonartúni, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögur að nýjum gámasvæðum á Reyðarfirði og Eskifirði. Nefndin felur starfsmönnum sviðsins að sjá til þess að frágangur og ásýnd lóðanna verði til fyrirmyndar.

  10. 10. Geymslusvæði Eskju á Eskifirði

    Mál 2209151 Allur ferill málsins

    Aðgerðir varðandi geymslusvæði Eskju á Eskifirði til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samstarfi við Eskju.

  11. 11. Lystigarðurinn í Neskaupstað

    Mál 2209110 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Lystigarðsnefnd Kvenfélagsins Nönnu í Neskaupstað um lystigarðinn í Neskaupstað. Erindi vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs, garðyrkjustjóra og skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að funda með lystigarðsnefndinni. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir afstöðu bæjarráðs að fela sviðsstjóra framkvæmdasviðs, garðyrkjustjóra og skipulags- og umhverfisfulltrúa að funda með lystigarðsnefndinni. Nefndin tekur undir áhyggjur Lystigarðsnefndar varðandi ásýnd garðsins og styður umbætur á garðinum.

  12. 12. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023

    Mál 2209158 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fela starfsmönnum sviðsins að útfæra gjaldskrá í samræmi við umræðu fundarins.

  13. 13. Gjaldskrá hunda og kattahald 2023

    Mál 2209170 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá hunda- og kattahalds 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, gjaldskrá hunda- og kattahalds 2023. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.

  14. 14. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023

    Mál 2209117 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að vinna áfram að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð í samráði við framkvæmdasvið.

  15. 15. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022

    Mál 2202061 Allur ferill málsins

    Fundargerð 169. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð til kynningar.

  16. 16. Fjallskilanefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    fundagerð fjallskilanefndar 14.9.2022 lögð fram til afgreiðslu

    1. 2208084 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 2023

    Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023. Fjármálastjóri mun mæta á fundin og fara yfir áætlunargerðina. Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt fjallskilastjóra að ástandsskoða fjárréttir í Fjarðabyggð og gera verk- og kostnaðaráætlun á endurbótum.

    2. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA

    Framlagt bréf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um endurskoðun fjallskilasamþykktar en hún hefur tekið breytingum frá því sem hún var upphaflega afgreidd í gegnum landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Fjallskilasamþykkt hefur ekki fengið formlega afgreiðslu í bæjarstjórn.

    Bæjarráð vísaði fjallskilasamþykktinni til umfjöllunar fjallskilanefndar.

    Fjallskilanefnd gerir tillögu að breytingum á 22.gr Fjallskilasamþykktar sveitarfélaga á austurlandi. Þar sem fram kemur að fé skuli ekki ganga á afrétt, upprekstrarheimalandi og/eða heimalandi annarra jarða eftir löggöngur. Nefndin álítur réttara að miða við dagsetningu t.d. 20. nóvember þar sem fullorðnar ær ganga oft í heimalandi eftir löggöngur við gott atlæti.

    Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að koma tillögunni til stjórnar SSA.

    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30

    1. 16.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 20232208084
    2. 16.2 Fjallskilasamþykkt SSA2208175