Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 7

20. september 2022, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Guðný Gunnur Eggertsdóttir, embættismaður
  • Jón Björn Hákonarson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 766 liður 10

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. september tekin til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 339 liður 10

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar saman til umræðu og afgreiðslu.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2023

    Mál 2208083 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023. Fjármálastjóri mun mæta á fundin og fara yfir áætlunargerðina. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur sviðstjóra, fjármálastjóra og starfsmönnum sviðsins að halda áfram vinnu við fjárhagsáætlun og leggja fyrir á nefndarfundi.

  2. 2. Fyrirspurn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Björgunum í Reyðarfirði

    Mál 2109139 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og skipulagsnefnd ítrekar fyrri afstöðu varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Björgum í Reyðarfirði. Landið er í eigu Fjarðabyggðar og hefur sveitarfélagið ekki hug á að láta af hendi nýtingu þess. Í ljósi breyttra aðstæðna í sveitarfélaginu varðandi uppbyggingu og fyrirhugaðar stórar framkvæmdir er nauðsynlegt fyrir Fjarðabyggð og Fjarðabyggðarhafnir að hafa greiðan aðgang að efni. Nefndin hvetur umsækjanda til að finna heppilegri staðsetningu fyrir starfsemina eða kaupa efni úr námum sem eru nú þegar til staðar. Nefndin felur byggingarfulltrúa að senda rökstuðning fyrir höfnun á umsókn um framkvæmdaleyfi.

  3. 3. Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2209049 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hrafnshóls ehf, dagsett 30.08.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús á lóð við Hafnarbraut 40 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að fara með fyrirhugaða framkvæmd í grenndarkynningu.

  4. 4. Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2209049 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hrafnshóls ehf, dagsett 30.08.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús á lóð við Hafnarbraut 38 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að fara með fyrirhugaða framkvæmd í grenndarkynningu.

  5. 5. Skólavegur 57 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2209050 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Jónasar Benediktssonar, dagsett 06.09.2022, þar sem sótt er um breytta notkun á Skólavegi 57, breyta því úr iðnaðarhúsnæði í íbúðarhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.

  6. 6. Strandgata 58 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2209103 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn SM Fasteigna ehf um leyfi til að endurbyggja hús sem stendur við Strandgötu 58 á Eskifirði, heimild Minjastofnunar liggur fyrir.

    Áður hefur verið lögð fram umsókn um rif á húsinu og var það tekið fyrir á 3. fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.

  7. 7. Umsókn um lóð Sæbakki 17

    Mál 2209132 Allur ferill málsins

    Sótt eru um lóðina Sæbakki 17, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  8. 8. Umsókn um lóð Bakkabakki 2b

    Mál 2209144 Allur ferill málsins

    Sótt eru um lóðina Bakkabakki 2b, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  9. 9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Holtagata 5

    Mál 2209107 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi frá Agli Jónssyni varðandi Holtagötu 5, 730 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  10. 10. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2208016 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi fyrir 40 feta gáma á gámasvæði á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 40 feta gáma á gámasvæði á Reyðarfirði. Umsækjanda hefur verið tilkynnt að gámasvæði komi til með að flytjast á aðra lóð og hans gámar muni verða fluttir þegar sveitarfélagið fer í þá framkvæmd. Umsækjandi samþykkti það.

  11. 11. Svæðisskipulag Austurlands - fundargerðir ofl.

    Mál 2102084 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 2. september 2022 til kynningar.

  12. 12. Fjallskilasamþykkt SSA

    Mál 2208175 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um endurskoðun fjallskilasamþykktar en hún hefur tekið breytingum frá því sem hún var upphaflega afgreidd í gegnum landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Fjallskilasamþykkt hefur ekki fengið formlega afgreiðslu í bæjarstjórn. Bæjarráð vísaði fjallskilasamþykktinni til umfjöllunar fjallskilanefndar og umhverfis- og skipulagsnefndar.

  13. 13. Tilnefning fulltrúa í stýrihóp sjálfbærniverkefnis

    Mál 2209064 Allur ferill málsins

    Tilnefning fulltrúa Fjarðabyggðar í stýrihóp sjálfbærniverkefnis Alcoa og Landsvirkjunar í stað umhverfisstjóra. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að Aron Leví Beck skipulags- og umhverfisfulltrúi Fjarðabyggðar taki sæti í stýrihóp sjálfbærniverkefnisins.

  14. 14. Svæðisskipulag Austurlands - fundargerðir ofl.

    Mál 2102084 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í umhverfis- og skipulagsnefnd. Svæðisskipulagsnefnd hefur afgreitt tillögu að svæðisskipulag fyrir Austurland. Svæðisskipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórnir sveitarfélaganna fjögurra á Austurlandi, samþykki afgreiðslu nefndarinnar og samþykki svæðisskipulagið og umhverfismatsskýrsluna með þeim lagfæringum sem lýst er. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar nýju svæðisskipulagi fyrir Austurland.

  15. 15. Fundaáætlun USK fyrir síðari hluta ársins 2022

    Mál 2209155 Allur ferill málsins

    Fundaáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir síðari hluta ársins 2022 lögð fram til samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu að fundaáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar.