NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 6
6. september 2022, kl. 16:00 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
- Björgvin V Guðmundsson, varamaður
Starfsmenn
- Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 764 liður 10
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 6. september lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 338 liður 3
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 6. september er staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Bakkavegur við tjalds - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2209006 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs á veituhúsnæði MÍLU, hús aflagt. Verður híft af undirstöðum og þær fjarlægðar, Míla ehf mun annast förgun. Rafmagnsheimtaug verður aflögð af RARIK.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
2. Daltún 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2208139 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Guðna Þór Elissonar, dagsett 24.08.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja geymsluhúsnæði á lóð við Daltún 9 á Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
3. Hafnarbraut 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2208160 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hrafnshóll ehf, dagsett 30.08.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús á lóð við hafnarbraut 36 á Norfirði. Byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda varðandi endalega útfærslu á framkvæmdinni.
-
4. Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2209049 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hrafnshóll ehf, dagsett 30.08.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús á lóð við hafnarbraut 38 á Norfirði. Byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda varðandi endalega útfærslu á framkvæmdinni.
-
5. Hrauntún 7-9 umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2209052 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Búðinga ehf í kjölfar grendarkynningar á parhúsi við Daltún 7-9 á Breiðdalsvík.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
6. 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar
Mál 2107078 Allur ferill málsins
Sótt er um stækkun lóðar að Blómsturvöllum 33. Byggingarfulltrúa falið að ræða við aðra hlutaðeigandi og koma með málið aftur fyrir næsta fund.
-
7. Neseyri breyting á DSK
Mál 2208165 Allur ferill málsins
Til samþykktar óveruleg breyting á deiliskipulagi fyrir Neseyri. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Neseyri.
-
8. 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
Mál 2201189 Allur ferill málsins
Kynning á breytingum á deiliskipulaginu Dalur Athafnasvæði, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að klára deiliskipulagið.
-
9. Umsókn um lóð Miðdalur 18-20
Mál 2208085 Allur ferill málsins
Sótt eru um lóðina Miðdal 18-20, 735 Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
-
10. Umsókn um lóð Heiðarvegur 730
Mál 2208028 Allur ferill málsins
Á fundi 4. hjá umhverfis- og skipulagsnefnd var lóðarumsókn frá Rarik varðandi spennistöð við Heiðarveg lögð fyrir. Þeirri umsókn var hafnað í ljósi óheppilegrar staðsetningar. Á 5. fundi umhverfis- og skipulagsnedndar var skipulags- og umhverfisfulltrúa falið að finna nýja staðsetningu fyrir spennistöðina í samráði við Rarik. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að málið færi í grenndarkynningu í Efstagerði 1-3-5-7. Grenndarkynning var gerð en staðsetningin þar felld. Skipulags- og umhverfisfulltrúi hefur fundið nýja staðsetningu í samráði við Rarik að Heiðarvegi 37b. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir nýja staðsetningu spennistöðvar að Heiðarvegi 37b og vísar erindinu til bæjarráðs.
-
11. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2209024 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir þrjá 40 feta gáma á gámasvæði á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir þrjá 40 feta gáma á gámasvæði á Reyðarfirði. Umsækjanda hefur verið tilkynnt að gámasvæði komi til með að flytjast á aðra lóð og hans gámar muni verða fluttir þegar sveitarfélagið fer í þá framkvæmd. Umsækjandi samþykkti það.
-
12. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Urðarteigur 7
Mál 2209016 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi frá Sæþóri Sigursteinssyni varðandi Urðarteig 7, 740 Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
13. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 47
Mál 2209001 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi frá Heiði Dögg Vilhjálmsdóttir varðandi Bleiksárhlíð 47, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
14. Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt
Mál 2208107 Allur ferill málsins
Yggdrasill Carbon ehf hefur óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir 190 ha skógrækt við Eyri, Fáskrúðsfirði. Meginmarkmið verkefnisins er að rækta fjölnytjaskóg. Skv. aðalskipulagi Fjarðabyggðar er gert ráð fyrir 147,7 ha skógræktarsvæði austan við Eyri en ekki vestan. Vestan við Eyri er skilgreint landbúnaðarsvæði. Umsóknin gerir hinsvegar ráð fyrir skógræktarsvæði austan- og vestanmegin við Eyri. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að ræða við umsækjanda varðandi samningssvæði.
-
15. Æfingasvæði slökkviliðsins
Mál 2209029 Allur ferill málsins
Slökkviliðið í Fjarðabyggð fundaði með byggingarfulltrúa og skipulags- og umhverfisfulltrúa varðandi mögulega uppbyggingu á æfingasvæði slökkviliðsins. Um er að ræða gáma sem yrði staflað saman og kæmu til með að vera nýttir til æfinga á reykköfun o.fl. Tekið skal fram að ekki mun verða notast við eld á svæðinu og reykurinn sem er notaður er ekki mengandi að sögn slökkviliðs (sami reykur og notaður er í reykvélum). Umhverfis- og skipulagsnefnd líst vel á fyrirhugaðar áætlanir Slökkviliðsins í Fjarðabyggð varðandi mögulega uppbyggingu á æfingasvæði með þeim fyrirvara að áætlanirnar séu kynntar fyrir og samþykki sé veitt frá eigendum nærliggjandi lóðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
-
16. Númeralausir bílar
Mál 2208149 Allur ferill málsins
Skipulags- og umhverfisfulltrúi kynnir fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd aðgerðir varðandi númeralausa bíla í sveitarfélaginu. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar skipulags- og umhverfisfulltrúa fyrir kynningu á stöðu mála og felur honum að vinna málið áfram í sátt við eigendur.
-
17. Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða
Mál 2207045 Allur ferill málsins
Umhverfis- og skipulagsnefn samþykkir umsögn.
-
18. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs nýáætlun 2022
Mál 2209007 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað verkefnastjóra úrgangsmála um vinnu að svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Austurlandi. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að vinna sé farin af stað með verkefnið.
-
19. Erindi vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík
Mál 2109186 Allur ferill málsins
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfi fyrir gerð göngubryggju á Breiðdalsvík.