Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Æfingasvæði slökkviliðsins

Mál 2209029 Fyrst á dagskrá 6. september 2022, síðast 14. september 2022. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Umhverfis- og skipulagsnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 6 liður 15

    Slökkviliðið í Fjarðabyggð fundaði með byggingarfulltrúa og skipulags- og umhverfisfulltrúa varðandi mögulega uppbyggingu á æfingasvæði slökkviliðsins. Um er að ræða gáma sem yrði staflað saman og kæmu til með að vera nýttir til æfinga á reykköfun o.fl. Tekið skal fram að ekki mun verða notast við eld á svæðinu og reykurinn sem er notaður er ekki mengandi að sögn slökkviliðs (sami reykur og notaður er í reykvélum). Umhverfis- og skipulagsnefnd líst vel á fyrirhugaðar áætlanir Slökkviliðsins í Fjarðabyggð varðandi mögulega uppbyggingu á æfingasvæði með þeim fyrirvara að áætlanirnar séu kynntar fyrir og samþykki sé veitt frá eigendum nærliggjandi lóðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.

  2. Bæjarráð, fundur 764 liður 10.15

    Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 6“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 338 liður 3.15

    Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 6“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is