Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 764

12. september 2022, kl. 08:30 til 10:40, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 338 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 12. septemer 2022 er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2023

    Mál 2208079 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023.

    Bæjarráð felur sviðsstjórum og slökkviliðsstjóra að vinna fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  2. 2. Veikindalaun 2022

    Mál 2204183 Allur ferill málsins

    Lögð fram greinargerð fjármálastjóra um veikindalaun fyrstu 6 mánuði ársins 2022 ásamt tillögu að meðferð kostnaðar við veikindalaun.

    Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra að framlögum til stofnana til að mæta langtímaveikindakostnaði að fjárhæð 40. m.kr. Vísað til gerðar viðauka.

  3. 3. Svæðisskipulag Austurlands.

    Mál 2102084 Allur ferill málsins

    Svæðisskipulagsnefnd hefur afgreitt tillögu að svæðisskipulag fyrir Austurland. Svæðisskipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórnir sveitarfélaganna fjögurra á Austurlandi, samþykki afgreiðslu nefndarinnar og samþykki svæðisskipulagið og umhverfismatsskýrsluna með þeim lagfæringum sem lýst er.

    Bæjarráð samþykkir skipulagið fyrir sitt leyti og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar. Jafnframt er svæðisskipulaginu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar til kynningar.

  4. 4. Samningur um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsvísu

    Mál 2209032 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samningi um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar sveitarfélag utan höfuðborgarsvæðisins til afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að gerast aðili að sameiginlegu umdæmisráði barnaverndar sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins og vísar til bæjarstjórnar endanlegri staðfestingu aðildar.

  5. 5. Tjaldsvæði 2022

    Mál 2203199 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um stöðu tjaldsvæða í Fjarðabyggð og framtíð þeirra.

    Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna tillögu á grundvelli framlagðs minnisblaðs og umræðna á fundi og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  6. 6. Bréf innviðaráðuneytis

    Mál 2209019 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf innviðaráðuneytisins vegna frumkvæðisathugunar þess á afgreiðslu ráðningarsamnings bæjarstjóra. Jafnframt lögð fram greinargerð lögmanns sveitarfélagsins.

    Fulltrúar Fjarðalista og Framsóknar í bæjarráði Fjarðabyggðar lýsa yfir furðu á erindi frá innviðaráðuneytinu, sem barst til sveitarfélagsins, þar sem virðist boðuð frumkvæðisathugun vegna ráðningar bæjarstjóra með hliðsjón af vanhæfni. Virðist þessi boðaða frumkvæðisathugun byggð á nafnlausri ábendingu sem ráðuneytinu hefur borist. Ljóst er samkvæmt 20 gr. sveitarstjórnarlaganna að vanhæfni myndast ekki þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins og hafa sveitarstjórnarmenn í Fjarðabyggð, líkt og öðrum sveitarfélögum, stuðst við það í störfum sínum. Enda kemur það vel fram í drögum af minnisblaði lögmanns sveitarfélagsins sem sent verður ráðuneytinu til svara vegna málsins. Haldi innviðaráðuneytið sig við að fara í slíka frumkvæðisathugun, eftir að hafa yfirfarið minnisblaðið frá Fjarðabyggð, þá hlýtur það að taka til skoðunar afgreiðslu þessara mála hjá fleiri sveitarfélögum þar sem eðlilega sami háttur hefur verið á. Hlýtur slík athugun þá að leiða til endurskoðunar sveitarstjórnarlaganna hvað varðar vanhæfni sveitarstjórnarmanna. Vonast áðurnefndir fulltrúar til þess að niðurstaða fáist sem fyrst frá innviðaráðuneytinu þannig að sá sem ábendinguna sendi inn til þess geti verið fullviss um að farið hafi verið eftir lögum við ráðningu bæjarstjóra í Fjarðabyggð. Enda hlýtur það sjónarmið að hafa verið ástæða þess að slík ábending var send frekar en um pólitískan leikþátt hafi verið að ræða.

    Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi ráðuneytisins í samráði við lögmann sveitarfélagsins.

  7. 7. Umsókn um lóð Miðdalur 18-20

    Mál 2208085 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn þar sem sótt er um lóðir að að Miðdal 18 - 20 á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðunum.

  8. 8. Umsókn um lóð Heiðarvegur 37b

    Mál 2208028 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs úthlutun lóðarinnar Heiðarvegur 37b á Reyðarfirði fyrir spennistöð Rarik.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  9. 9. Ráðningar í störf

    Mál 2209099 Allur ferill málsins

    Fram lagður tölvupóstur Ragnars Sigurðssonar um ráðningar í störf.

    Lagt er til að allar auglýsingar um störf á vegum Fjarðabyggðar þurfi að hljóta samþykkis bæjarráðs áður en til auglýsingar kemur. Með þessum hætti gefst sveitarfélaginu kostur á að leita leiða til endurskipulagningar og hagræðingar í rekstri með tímabundnum eða varanlegum ráðstöfunum.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra verklagið með stjórnendum.

  10. 10. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 6. september lögð fram til afgreiðslu.

    1. 10.1 Bakkavegur við tjalds - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209006
    2. 10.2 Daltún 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2208139
    3. 10.3 Hafnarbraut 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2208160
    4. 10.4 Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209049
    5. 10.5 Hrauntún 7-9 umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209052
    6. 10.6 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar2107078
    7. 10.7 Neseyri breyting á DSK2208165
    8. 10.8 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði2201189
    9. 10.9 Umsókn um lóð Miðdalur 18-202208085
    10. 10.10 Umsókn um lóð Heiðarvegur 7302208028
    11. 10.11 Umsókn um stöðuleyfi2209024
    12. 10.12 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Urðarteigur 72209016
    13. 10.13 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 472209001
    14. 10.14 Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt2208107
    15. 10.15 Æfingasvæði slökkviliðsins2209029
    16. 10.16 Númeralausir bílar2208149
    17. 10.17 Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða2207045
    18. 10.18 Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs nýáætlun 20222209007
    19. 10.19 Erindi vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík2109186
  11. 11. Félagsmálanefnd - 156

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 6. september lögð fram til afgreiðslu.

    1. 11.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20232208080
    2. 11.4 Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga 15. September 20222208067
  12. 12. Hafnarstjórn - 283

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð Hafnarstjórnar frá 6. september lögð fram til afgreiðslu.

    1. 12.1 Erindi til hafnarstjórnar vegna Breiðdalsvíkurhafnar2208171
    2. 12.2 Erindi vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík2109186
    3. 12.3 Stormpolli á Mjóeyrarhöfn2209023
    4. 12.4 Umsókn um styrk vegna viðhalds á bryggju í Viðfirði2209026
    5. 12.5 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
    6. 12.6 Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða2207045
    7. 12.7 Ráðstefnan Lagarlíf2209012
    8. 12.8 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 20222203147
  13. 13. Fræðslunefnd - 114

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 7. september lögð fram til afgreiðslu.

    1. 13.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20232205097
    2. 13.3 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20222104131
    3. 13.4 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
  14. 14. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar lögð fram til afgreiðslu.

    1. 14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20232208081
    2. 14.2 Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
    3. 14.3 Nesskóli - Tónskóli - bókasafn viðhaldsverkefni2203109
    4. 14.4 Konur, draumar og brauð2207019
    5. 14.5 Söguritun í Fjarðabyggð2207102
    6. 14.6 Drög að stefnu um verndun og rannsóknir á fornleifum og byggingararfi2207106
    7. 14.7 Menningarverðlaun SSA - Óskað eftir tilnefningum 20222208008
    8. 14.8 Uppsetning sýningar um starfsemi2209067