Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar

Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 2

7. september 2022, kl. 16:30 til 18:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, varaformaður
  • Bjarki Ingason, aðalmaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 764 liður 14

    Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 338 liður 7

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 7. september er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023

    Mál 2208081 Allur ferill málsins

    Framlögð samþykkt fjárhagsramma fyrir menningarmálaflokkinn 2023. Fjármálastjóri kynnti fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og markmið með áætlunargerðinni fyrir árið 2023.

    Stjórn felur bæjarritara og starfsmönnum málaflokksins að vinna að markmiðum áætlunargerðarinnar og gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár og leggja fyrir næsta fund stjórnarinnar sem verður þriðjudaginn 20. september 2022.

  2. 2. Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir á fundi stjórnar 24.6.2022 sem samþykkti að vísa frekari umfjöllun til fundar stjórnarinnar um fjárhagsáætlun ársins 2023.

    Stjórnin samþykkir að fela forstöðumanni safnastofnunar að kanna möguleika á heimsókn nema námsbrautar í safnafræði hjá HÍ til að meta valkosti sem fram koma í minnisblaði starfshópsins. Miðað verði við að heimsókn þeirra verði á vorönn. Tekið fyrir á næsta fundi.

  3. 3. Nesskóli - Tónskóli - bókasafn viðhaldsverkefni

    Mál 2203109 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni bókasafns á Norðfirði.

    Forstöðumaður safnastofnunar fór yfir viðhaldsframkvæmdir í safninu og verður safnið lokað næstu vikur. Ef áætlanir ganga eftir þá verður safnið opnað seinnipart september.

  4. 4. Konur, draumar og brauð

    Mál 2207019 Allur ferill málsins

    Vísa frá bæjarráði til umsagnar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar beiðni um styrk til gerðar heimildarmyndar, Konur, draumar og brauð. Um er að ræða 80 mín leikin heimildarmynd og þakkaróður til kvenna sem hafa staðið vaktina við matargerð, bakstur og þjónustu við gesti og gangandi í gegnum tíðina.

    Stjórnin vísar erindi áfram til úthlutunar nefndarinnar í febrúar 2023.

  5. 5. Söguritun í Fjarðabyggð

    Mál 2207102 Allur ferill málsins

    Ritun sögu Fáskrúðsfjarðar er lokið. Útgáfuhóf verður haldið 15. september 2022 í Skrúði með upplestri og kynningu bókarinnar.

    Stjórnin fagnar útgáfu verksins og þakkar söguritara og þeim sem komu að og studdu við útgáfu ritverksins sem er í þremur bindum.

  6. 6. Drög að stefnu um verndun og rannsóknir á fornleifum og byggingararfi

    Mál 2207106 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að stefnuskjali ásamt minnisblað um bátaarfinn til kynningar.

    Aðgerðaáætlun fylgir stefnunni.

  7. 7. Menningarverðlaun SSA - Óskað eftir tilnefningum 2022

    Mál 2208008 Allur ferill málsins

    Tilnefning til menningarverðlauna SSA árið 2022. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða félagasamtökum á Austurlandi fyrir eftirtektarvert framtak á sviði menningar á undanförnum árum/áratugum eða einstaks menningarafreks sem er öðrum fyrirmynd.

    Fram lagt og kynnt.

  8. 8. Uppsetning sýningar um starfsemi

    Mál 2209067 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Alcoa Fjarðaáli um uppsetningu sýningar um starfsemi fyrirtækisins og starfsmenn þess, „Lífið í þorpinu“.

    Stjórninni líst vel á hugmyndina og felur forstöðumanni menningarstofu að vinna að uppsetningu sýningarinnar og þá í samstarfi við skipulags- og umhverfisfulltrúa.