NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 3
20. september 2022, kl. 16:30 til 19:05, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, varaformaður
- Bjarki Ingason, aðalmaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 766 liður 8
Fundargerð menningar- og safnastofnunar frá 20. september lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 339 liður 14
Enginn tók til máls.
Fundargerð stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
Mál 2208081 Allur ferill málsins
Framlögð drög að áætlun sem rædd var á síðasta fundi og farið yfir rekstrarþætti sem skoðaðir verða betur.
Stjórn menningar- og safnastofnunar felur sviðsstjóra að vinna áfram að áætlunargerð og leggja fyrir nefndina að nýju 11. október n.k. Stjórnin vísar til mannvirkja- og veitunefndar að kanna með hagræðingu orkukaupa vegna reksturs húsnæðis í málaflokknum.
-
2. Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2023
Mál 2209114 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrám minjasafna og bókasafna til umfjöllunar.
Jafnframt lögð fram tillaga forstöðumanna bókasafna um endurskoðun gjaldskrá fyrir bókasöfn.
Stjórnin vísar afgreiðslu gjaldskráa í málaflokknum til næsta fundar og felur sviðsstjóra að meta tillögur að einföldun á gjaldskrá bókasafna.
-
3. Skapandi sumarstörf 2022
Mál 2209055 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar skýrsla um skapandi sumarstörf árið 2022.
Stjórnin lýsir ánægju sinni með árangursríkt starf.
-
4. Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021 - staðfesting stofnsamnings
Mál 2111170 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar staðfestur stofnsamningur fyrir Héraðsskjalasafn Austfirðinga.
-
5. Innkaup bóka til almennings- og skólabókasafna
Mál 2209173 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá forstöðumönnum bókasafna um innkaup á bókum til safnanna. Jafnframt lögð fram drög að innkaupaáætlun.
Stjórn samþykkir að fela forstöðumannni safnastofnunar að leita leiða ásamt forstöðumönnum safnanna og innkaupafulltrúa Fjarðabyggðar til að nýta sem best það fjármagn sem til ráðstöfunar verður til bókakaupa á árinu 2023.