Bæjarráð, fundur 766
26. september 2022, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 339 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 26. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Drög að upplýsingastefnu stjórnvalda
Mál 2209168 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar "Drög að upplýsingastefnu stjórnvalda". Umsagnarfrestur er til og með 09.10.2022.
-
2. Erindi leikskólastjóranna um vinnutíma
Mál 2209175 Allur ferill málsins
Framlagt bréf leikskólastjóra í Fjarðabyggð um um opnunartíma leikskóla í Fjarðabyggð. Erindinu er vísað til fræðslunefndar til umfjöllunar.
-
3. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2022
Mál 2204177 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 1. september sl.
-
4. Umsókn um stofnframlag á árinu 2022
Mál 2203070 Allur ferill málsins
Brák íbúðafélag hses hefur verið stofnað og flytja þarf úthlutun stofnframlaga vegna tveggja verkefna frá Fjarðabyggð til Brákar. Bæjarráð samþykkir að flytja áður úthlutuðum stofnframlögum Fjarðabyggðar og HMS með formlegum hætti til Brákar vegna Hafnarbrautar í Neskaupstað og Árdals á Eskifirði.
-
5. Úthlutun stofnframlaga ríkisins 2021
Mál 2112130 Allur ferill málsins
Brák íbúðafélag hses hefur verið stofnað og flytja þarf úthlutun stofnframlaga vegna tveggja verkefna frá Fjarðabyggð til Brákar. Bæjarráð samþykkir að flytja áður úthlutuðum stofnframlögum Fjarðabyggðar og HMS með formlegum hætti til Brákar vegna Búðarmels á Reyðarfirði. Jafnframt samþykkir bæjarráð yfirtöku Brákar á kaupsamningi Fjarðabyggðar við Nýjatún ehf um Búðarmel.
-
6. Umsókn um lóð Sæbakki 17
Mál 2209132 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar um lóð að Sæbakka 17 í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
7. Umsókn um lóð Bakkabakki 2b
Mál 2209144 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Vilhjálms Skúlasonar um lóð að Bakkabakka 2b, í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
8. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 3
Fundargerð menningar- og safnastofnunar frá 20. september lögð fram til afgreiðslu
- 8.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20232208081
- 8.2 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 20232209114
- 8.3 Skapandi sumarstörf 20222209055
- 8.4 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021 - staðfesting stofnsamnings2111170
- 8.5 Innkaup bóka til almennings- og skólabókasafna2209173
-
9. Hafnarstjórn - 284
Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. september lögð fram til afgreiðslu
- 9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20232208077
- 9.2 Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði2208102
- 9.3 Sjávarútvegsráðstefnan 20222209127
-
10. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 7
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. september tekin til afgreiðslu
- 10.1 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20232208083
- 10.2 Fyrirspurn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Björgunum í Reyðarfirði2109139
- 10.3 Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209049
- 10.4 Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209049
- 10.5 Skólavegur 57 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209050
- 10.6 Strandgata 58 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209103
- 10.7 Umsókn um lóð Sæbakki 172209132
- 10.8 Umsókn um lóð Bakkabakki 2b2209144
- 10.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Holtagata 52209107
- 10.10 Umsókn um stöðuleyfi2208016
- 10.11 Svæðisskipulag Austurlands - fundargerðir ofl.2102084
- 10.12 Fjallskilasamþykkt SSA2208175
- 10.13 Tilnefning fulltrúa í stýrihóp sjálfbærniverkefnis2209064
- 10.14 Svæðisskipulag Austurlands - fundargerðir ofl.2102084
- 10.15 Fundaáætlun USK fyrir síðari hluta ársins 20222209155