Bæjarráð, fundur 765
19. september 2022, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 339 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Kristinn Þór Jónasson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 19. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sundlaug á Reyðarfirði og sundkennsla
Mál 2209105 Allur ferill málsins
Framlagt bréf um sundkennslu í Grunnskóla Reyðarfjarðar.
Unnið er að því að taka saman uppfærðar upplýsingar um viðhaldsframkvæmdina við sundlaugarkerið en tímasetningar liggja ekki fyrir um opnun á nýju íþróttahúsi.
Bæjarráð sér ekkert því til fyrirstöðu að sundkennsla fari fram í haust á Eskifirði og vísar erindi þar um til fræðslunefndar.
-
2. Lystigarðurinn í Neskaupstað
Mál 2209110 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Lystigarðsnefnd Kvenfélagsins Nönnu í Neskaupstað um lystigarðinn í Neskaupstað.
Erindi vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs, garðyrkjustjóra og skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að funda með lystigarðsnefndinni.
-
3. Vettvangsferð til Danmerkur á vegum Íslandsstofu vegna vindorkumála.
Mál 2209128 Allur ferill málsins
Framlagt tölvupóstur frá Austurbrú vegna vettvangsferðar til Danmerkur á vegum Íslandsstofu vegna vindorkumála.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í kynnisferðinni.Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
4. Tjaldsvæði 2022
Mál 2203199 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað frá atvinnu- og þróunarstjóra um samkomulag við rekstraraðila tjaldsvæðisins á Breiðdalsvík vegna tafa á afhendingu þjónustuhúss samkvæmt leigusamningi.
Bæjarráð samþykkir að gengið sé frá samkomulaginu og er bæjarstjóra falin undirritun samkomulagsins.
-
5. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2022
Mál 2208049 Allur ferill málsins
Lagt fram skuldabéf við Ofanflóðasjóð að fjárhæð 21.154.206 krónur til samþykktar. Skuldabréfið er í samræmi við þegar samþykkta lánsumsókn í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir skuldabréfið fyrir sitt leyti og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
6. Samningur um skoðun á uppbyggingu græns orkugarðs í Fjarðabyggð - Trúnaðarmál
Mál 2209011 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað bæjar- og fjármálastjóra um grænan orkugarð ásamt drögum að samningi við KPMG um vinnu að skilgreiningu og undibúningi að stofnun þróunarfélags um grænan orkugarð í Fjarðabyggð ásamt tillögu að verkefnalýsingu.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í vinnu við verkefni um grænan orkugarð með KPMG ráðgjöf og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ganga frá samningi þar um. Jafnframt er settur upp vinnuhópur vegna verkefnisins sem í eru bæjarstjóri, atvinnu- og þróunarstjóri, verkefnisstjóri hafna og fjármálastjóri.
-
7. Grænn orkugarður á Reyðarfirði - drög að lóðarleigusamningi - Trúnaðarmál
Mál 2108124 Allur ferill málsins
Lögð fram sem trúnaðarmál drög að lóðarleigusamningi við Copenhaagen Infrasturucture Partners um lóð undir iðnaðarstarfsemi í Reyðarfirði ásamt athugasemdum frá lögmanni Fjarðabyggðar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
8. Bréf frá Uxavog ehf vegna úthlutunar lóða við Sæbakka
Mál 2208148 Allur ferill málsins
Framlögð drög að svari við bréfi Sigurðar Steins Einarssonar f.h. Uxavogs vegna lóðaúthlutunar á lóð við Sæbakka.
Bæjarráð samþykkir svarbréfið.
-
9. Ráðningar í störf
Mál 2209099 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað bæjarstjóra vegna fyrirkomulags um ráðningar í störf hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra. Ragnar Sigurðsson situr hjá.
-
10. Mannvirkja- og veitunefnd - 3
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 7. september lögð fram til afgreiðslu.
- 10.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 20232208082
- 10.2 Rekstrarform Hitaveitu Fjarðabyggðar2208146
- 10.3 Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 20212208075
- 10.4 Álagning vatnsgjalds - breytt aðferð álagningar2002002
- 10.5 Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 20212208076
- 10.6 Fráveitustyrkir - Fjarðabyggð2207109
- 10.7 Bréf frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar2208086
- 10.8 Björgunnarhringir við vötn í Fjarðabyggð2209018
- 10.9 Mannvirkja- og veitunefnd2209034
-
11. Mannvirkja- og veitunefnd - 4
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 12. september lögð fram til afgreiðslu.
-
12. Íþrótta- og tómstundanefnd - 104
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar 12. september 2022 tekin til afgreiðslu.
- 12.1 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vetur 2022
- 12.2 Reglur 2022
- 12.3 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2023
- 12.4 Umsókn Hattar að frístundastyrk Fjarðabyggðar
- 12.5 Beiðni Austra um aðgengi ungmenna að líkamsrækt.
- 12.6 Samstarf Fjarðabyggðar og Austra með leiðbeiningar í líkamsrækt Eskifjarðar
- 12.7 Íþrótta- og tómstundasvið rekstur 2022