Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Samningur um skoðun á uppbyggingu græns orkugarðs í Fjarðabyggð - Trúnaðarmál

Mál 2209011 Fyrst á dagskrá 5. september 2022, síðast 6. október 2022. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Bæjarráð, fundur 763 liður 3

    Samningur um undirbúningsvinnu vegna þróunarfélags - Trúnaðarmál

    Lögð fram sem trúnaðarmál drög að samningi við KPMG um vinnu að skilgreiningu og undibúningi að stofnun þróunarfélags um grænan orkugarð í Fjarðabyggð ásamt tillögu að verkefnalýsingu.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að samningi og leggja hann fyrir bæjarráð til staðfestingar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 338 liður 2.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 763“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Samningur um undirbúningsvinnu vegna þróunarfélags - Trúnaðarmál

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 765 liður 6

    Lagt fram minnisblað bæjar- og fjármálastjóra um grænan orkugarð ásamt drögum að samningi við KPMG um vinnu að skilgreiningu og undibúningi að stofnun þróunarfélags um grænan orkugarð í Fjarðabyggð ásamt tillögu að verkefnalýsingu.

    Bæjarráð samþykkir að farið verði í vinnu við verkefni um grænan orkugarð með KPMG ráðgjöf og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ganga frá samningi þar um. Jafnframt er settur upp vinnuhópur vegna verkefnisins sem í eru bæjarstjóri, atvinnu- og þróunarstjóri, verkefnisstjóri hafna og fjármálastjóri.

  4. Bæjarstjórn, fundur 339 liður 1.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 765“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is