Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 763

5. september 2022, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 338 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerð bæjarráðs frá 6. september 2022 er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026

    Mál 2205271 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að úthlutun ramma fyrir A hluta Fjarðabyggðar til vinnslu í nefndum vegna ársins 2023, ásamt áætlun um sjóðsstreymi auk umfjöllunar fjármálastjóra um tillöguna og áætlaðan rekstur Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir framlagðan fjárhagsramma áætlunar 2023 og felur bæjarstjóra að gefa þá út til nefnda.

  2. 2. Stytting vinnuvikunar hjá Slökkvilið Fjarðabyggðar

    Mál 2208172 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað slökkvistjóra varðandi útfærslur á styttingu vinnuvikunar hjá Slökkviliði Fjarðabyggðar.

    Lagt fram til kynningar.

  3. 3. Samningur um undirbúningsvinnu vegna þróunarfélags - Trúnaðarmál

    Mál 2209011 Allur ferill málsins

    Lögð fram sem trúnaðarmál drög að samningi við KPMG um vinnu að skilgreiningu og undibúningi að stofnun þróunarfélags um grænan orkugarð í Fjarðabyggð ásamt tillögu að verkefnalýsingu.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að samningi og leggja hann fyrir bæjarráð til staðfestingar.

  4. 4. Björgunarhringir við vötn í Fjarðabyggð

    Mál 2209018 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Slysavarnardeildinni Hafdísi um uppsetningu björgunarhringja við vötn í Fjarðabyggð.

    Vísað til mannvirkja- og veitunefndar til úrvinnslu.

  5. 5. Fjallskilasamþykkt SSA

    Mál 2208175 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um endurskoðun fjallskilasamþykktar en hún hefur tekið breytingum frá því sem hún var upphaflega afgreidd í gegnum landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Fjallskilasamþykkt hefur ekki fengið formlega afgreiðslu í bæjarstjórn.

    Bæjarráð vísar fjallskilasamþykktinni til umfjöllunar fjallskilanefndar og umhverfis- og skipulagsnefndar.

  6. 6. Endurskoðun samnings um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð

    Mál 2209030 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar kröfulýsing vegna sjúkraflutninga og minnisblað sem

    trúnaðarmál vegna endurskoðun samnings um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð við Heilbrigðisstofnun Austurlands.

  7. 7. Yfirlýsing vegna kaupréttar

    Mál 2209031 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um yfirlýsingu og forkaupsréttarákvæði samnings um Hafnargötu 6 á Reyðarfirði sem er orðin virk.

    Bæjarráð samþykkir að virkja forkaupsréttarákvæði og felur bæjarstjóra að hefja viðræður við eigenda fasteignarinnar.

  8. 8. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022

    Mál 2201106 Allur ferill málsins

    Fundargerð 912. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar.