Bæjarráð, fundur 762
29. ágúst 2022, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 337 liður 1
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 29. ágúst utan liðar 10 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Skólahald í Tónskóla Neskaupstaðar 2022-2023
Mál 2208046 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri framkvæmdasviðs kynnti þær framkvæmdir og aðgerðir sem farið hefur verið í við endurbætur í Nesskóla.
-
2. Fundur með sveitarstjórn Fljótsdalshrepps
Mál 2208153 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fundaði með sveitarstjórn Fljótsdalshrepps fimmtudaginn 25. ágúst sl. Á fundinum var rætt um ýmis sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna s.s. varðandi orkuskipti, orkuöflun vegna þeirra og fleira. Fundurinn var afar gagnlegur og ákveðið var að framhald yrði á þessu samráði sveitarfélaganna, og mun bæjarstjórn Fjarðabyggðar bjóða sveitarstjórn Fljótsdalshrepps til fundar á næstunni þar sem þessi mál og frekari samvinna sveitarfélaganna verður rædd.
Bæjarráð þakkar sveitarstjórn Fljótsdalshrepps fyrir góðar móttökur og gagnlegar umræður.
-
3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
Mál 2205271 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra, drög að rammaúthlutun vegna fjárhagsáætlunar 2023 auk forsenda tekju- og gjaldaliða. Umræður um fyrstu drög að rammaúthlutun 2023. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2023 og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
4. Rekstrarform Hitaveitu Fjarðabyggðar
Mál 2208146 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað frá KPMG um áhrif þess ef breyting verður gerð á bókhaldslegu rekstrarformi Hitaveitu Fjarðabyggðar með tilliti til skattaumhverfis opinberra orkufyrirtækja. Fjármálastjóra er falið að vinna málið áfram og málinu vísað til kynningar í mannvirkja- og veitunefnd.
-
5. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2021
Mál 2208076 Allur ferill málsins
Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns fyrir árið 2021 lagður fram til undirritunar.
-
6. Barnvænt sveitarfélag 2021-2022
Mál 2109174 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að skipa Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttur og Þórdísi Mjöll Benediktsdóttur í stýrihóp um barnvænt sveitarfélag.
-
7. Umsókn um lóð Hrauntún 7-9
Mál 2208117 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar f.h. Búðinga ehf frá 23.8.2022 þar sem sótt er um lóð að Hrauntúni 7-9 á Breiðdalsvík fyrir parhús. Umsóknin kemur í kjölfar grenndarkynningar sem gerð var fyrr í ágúst. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
8. Umsókn um lóð - 730 Hjallaleira21
Mál 2207134 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Malbikunarstöðvar Austurlands frá 28.júli 2022 um lóð að Hjallaleiru 21, 730 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
9. Umsókn um lóð Öldugata 730
Mál 2208027 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðaumsókn frá RARIK vegna spennustöðvar við Öldugötu. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
10. Umsókn um lóð - Daltún 9
Mál 2207091 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Guðna Þórs Elíssonar frá 15. júlí 2022 um lóð fyrir iðnaðarhúsnæði að Daltúni 9 735 Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
11. Bréf frá Uxavog ehf vegna úthlutunar lóða við Sæbakka
Mál 2208148 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Sigurði Steini Einarssyni f.h. Uxavogs ehf um úthlutun lóða við Sæbakka í Neskaupstað. Bæjarritara falið að svara erindinu og leggja tillögu að svari fyrir bæjarráð.
-
12. Tillögur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um nýtingu vindorku.
Mál 2208114 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá starfshópi umhverfis-, orku-, og loftlagsráðuneytis um nýtingu vindorku þar sem Fjarðabyggð er boðið að koma á framfæri sínum sjónarmiðum um þau málefni sem starfshópnum er ætlað að fjalla um. Atvinnu- og þróunarstjóra er falið að gera tillögu að svari við erindinu og kynna í bæjarráði.
-
13. Fundarboð Íbúasamtaka Breiðdælinga
Mál 2208145 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá íbúasamtökunum Breiðdælinga þar sem óskað er eftir fundi með bæjarstjórn. Bæjarstjóra falið að ræða við stjórn íbúasamtakana.
-
14. Hafnarstjórn - 282
Fundargerð Hafnarstjórnar frá 24. ágúst lögð fram til afgreiðslu.
- 14.1 Grænn orkugarður á Reyðarfirði2108124
- 14.2 Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða2207045
- 14.3 Breyting á eldisfyrirkomulagi Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði2207037
- 14.4 Sjávarútvegssýningin 20222208096
- 14.5 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
- 14.6 Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði2208102
- 14.7 Bryggja við Olís í Neskaupstað2208101
-
15. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 5
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 23. ágúst lögð fram til afgreiðslu
- 15.1 Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða2207045
- 15.2 Strandgata 18a 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2208038
- 15.3 Strandgata 18b 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2208037
- 15.4 Strandgata 16 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2208039
- 15.5 Egilsbraut 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2208035
- 15.6 Grenndarkynning Hrauntún 3-5 og 7-13 raðhúsarlóð2208018
- 15.7 Umsókn um lóð að Hrauntúni 7-92208117
- 15.8 Umsókn um lóð - 730 Hjallaleira212207134
- 15.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2208090
- 15.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2208036
- 15.11 Norðfjarðarflugvöllur2208073
- 15.12 Umsókn um lóð Öldugata 7302208027
- 15.13 Umsókn um lóð fyrir iðnaðarhúsnæði að Daltúni 92207091
- 15.14 Umsókn um lóð Heiðarvegur 7302208028
-
16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 103
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. ágúst lögð fram til afgreiðslu
- 16.1 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar haust 2022 og vor 2023
- 16.2 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023
- 16.3 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
-
17. Fræðslunefnd - 113
Fundargerð fræðslunefndar frá 17. ágúst lög fram til afgreiðslu
- 17.1 Fundaáætlun fræðslunefndar haustið 20222208048
- 17.2 Tæknidagur Fjölskyldunnar 20222205211
- 17.3 Skólahald í Tónskóla Neskaupstaðar 2022-20232208046
- 17.4 Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð2207054
- 17.5 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20232205097
- 17.6 Skólabyrjun skólaársins 2022-20232208060