Fræðslunefnd, fundur 113
17. ágúst 2022, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
- Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 762 liður 17
Fundargerð fræðslunefndar frá 17. ágúst lög fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 337 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 17. ágúst staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Fundaáætlun fræðslunefndar haustið 2022
Mál 2208048 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að fundaáætlun fræðslunefndar fyrir haustið 2022. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
-
2. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2022
Mál 2205211 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar afgreiðsla á beiðni VA um aðstöðu í Íþróttamiðstöð Norðfjarðar fyrir Tæknidag fjölskyldunnar 2022. Bæjarstjórn hefur samþykkt beiðnina. Tæknidagur fjölskyldunnar mun fara fram laugardaginn 1. október 2022. Fræðslunefnd fagnar því að Tæknidagurinn verði aftur haldinn hér eystra.
-
3. Skólahald í Tónskóla Neskaupstaðar 2022-2023
Mál 2208046 Allur ferill málsins
Rætt um óvissu í kringum húsnæði Tónskóla Neskaupstaðar. Rætt um stöðu framkvæmda og mögulegt húsnæði fyrir skólann ef flytja þarf alla starfsemi skólans í annað húsnæði á komandi skólaári. Málið verður til umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs. Fræðslunefnd telur brýnt að vel verði að málum staðið með ákvarðanatöku og hagsmunir nemenda og starfsfólks hafðir að leiðarljósi.
-
4. Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð
Mál 2207054 Allur ferill málsins
Fyrir liggur niðurstaða úr Íslensku æskulýðsrannsókninnni (ÍÆ), en það er rannsókn sem Menntavísindastofnun Háskóla Íslands framkvæmir fyrir Mennta- og barnamálaráðuneytið á grundvelli 12 gr. æskulýðslaga nr.70/2007. Markmið verkefnisins er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungs fólks og gera niðurstöður aðgengilegar til að styðja við stefnumótun. Niðurstöðurnar eru úr fyrirlögn í Fjarðabyggð með samanburði við landstölur. Rannsóknin var rafræn og náði til nemenda í 4., 6. 8. og 10. bekk skólaárið 2021-2022. Rannsóknin verður lögð fyrir árlega. Rannsóknarniðurstöður verða kynntar í fræðslu-, íþrótta- og tómstundar og félagsmálanefnd, auk þess sem niðurstöðurnar eru kynntar starfsfólki sveitarfélagsins sem vinna með börnum og ungmennum. Lagt fyrir sviðsstjóra að taka saman stutta kynningu fyrir nefndina yfir helstu niðurstöður. Vísað til Ungmennaráðs Fjarðabyggðar.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2023
Mál 2205097 Allur ferill málsins
Farið var yfir undirbúningsvinnu vegna starfs- og fjárhagsáætlunargerðar í fræðslumálum fyrir árið 2023. Fræðslunefnd leggur til að skipaður verði starfshópur sem annist gerð aðgerðaráætlunar í fræðslu- og frístundamálum fyrir árin 2023-2025. Lagt er til að starfshópurinn verði skipaður fulltrúa úr fræðslunefnd og íþrótta- og tómstundanefnd ásamt starfsmönnum þeirra nefnda. Fræðslunefnd tilnefnir Birgir Jónsson sem fulltrúa fræðslunefndar. Vísað til íþrótta- og tómstundanefndar. Frekari umræðu um starfs- og fjárhagsáætlun vísað til næsta fundar nefndarinnar.
-
6. Skólabyrjun skólaársins 2022-2023
Mál 2208060 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri gerði grein fyrir stöðunni í leik-, grunn- og tónlistarskólum í Fjarðabyggð, mönnun og framkvæmdir. Búið er að ráða í flestar stöður. Fræðslunefnd leggur áherslu á að framkvæmdir við skóla og skólalóðir séu þannig að ekkert rask verði á skólastarfi. Þessi mál verða að vera unnin með hagsmuni nemenda og starfsfólks í fyrirrúmi.