Fræðslunefnd, fundur 112
15. júní 2022, kl. 16:30 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
- Birta Sæmundsdóttir, varamaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 757 liður 8
Fundargerð fræðslunefndar frá 15. júní lögð fram til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð fræðslunefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
Dagskrá
-
1. Erindisbréf fræðslunefndar
Mál 2206047 Allur ferill málsins
Farið var yfir erindisbréf fræðslunefndar. Lagt fram til kynningar.
-
2. Danskur farkennari haustið 2022
Mál 2205308 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri gerði grein fyrir komu dansks farkennara í grunnskóla Fjarðabyggðar haustið 2022. Fjarðabyggð hefur áður tekið þátt í samskonar verkefni og nemendur grunnskólanna sem og dönskukennarar notið góðs af. Fræðslunefnd fagnar framtakinu.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2023
Mál 2205097 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri gerði fundarmönnum grein fyrir undirbúningsvinnu sem farin er af stað vegna starfs- og fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2023. Frekari vinnu er frestað til haustsins.
-
4. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Mál 1808078 Allur ferill málsins
Farið var yfir áherslur í fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar fyrir árin 2020 - 2022. Fræðslunefnd stefnir á að ljúka gerð áherslna fyrir árin 2023-2025 haustið 2022.