Bæjarráð, fundur 757
4. júlí 2022, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 336 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar. Enginn tók til máls.
Dagskrá
-
1. Eftirlit með fjármálastjórn sveitarfélaga og fjármálum 2021
Mál 2206098 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um fjárhagsleg viðmið sveitarfélagsins.
-
2. Framkvæmdasvið verkefni 2022
Mál 2204123 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað um framkvæmdir ársins 2022 til kynningar. Mannvirkja- og veitunefnd fól sviðstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir fjárhagslega stöðu byggingu íþróttahússins á Reyðarfirði við lok verkefnisins og leggja fyrir bæjarráð.
Farið yfir lokakostnað við framkvæmdir íþróttahússins á Reyðarfirði. Ljóst er að lokakostnaður er umfram fjárhagsáætlun ársins.
Bæjarráð samþykkir að vísa umframkostnaði til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2022.
-
3. Verklagsreglur vegna samskiptavanda í stofnunum Fjarðabyggðar
Mál 2206116 Allur ferill málsins
Fram lagðar verklagsreglur til að taka á og leysa úr samskiptavanda í stofnunum Fjarðabyggðar ásamt lausnarferli og hlutverki stjórnenda.
Bæjarráð samþykkir reglurnar í umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi stendur.
-
4. Umsókn um leigu á íþróttahúsinu á Breiðdal
Mál 2206119 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn um leigu á íþróttahúsinu á Breiðdal vegna ættarmóts sem verður þann 15. og 16. júlí næstkomandi.
Bæjarráð getur því miður ekki orðið við beiðninni.
-
5. Forvarna- og öryggisnefnd erindisbréf og fundargerðir
Mál 2110173 Allur ferill málsins
Framlögð fundargerð forvarnar- og öryggisnefndar frá 28. apríl 2022 til kynningar.
-
6. Íslandsdagar 23. til 26. september Gravelines
Mál 2207002 Allur ferill málsins
Framlagt boð á Íslandsdaga í Gravelines 23. til 26. september nk.
Bæjarstjóra falið að ræða við forseta bæjarstjórnar um tilnefningu tveggja fulltrúa Fjarðabyggðar á Íslandsdaga.
-
7. Endurskoðun samþykktar um bygginganefnd í Fjarðabyggð - síðari umræða
Mál 2206094 Allur ferill málsins
Vísað til síðari umræðu í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar drögum að uppfærðri samþykkt um bygginganefnd í Fjarðabyggð vegna breytinga á samþykktum sveitarfélagsins.
Bæjarráð staðfestir samþykkt um bygginganefnd í Fjarðabyggð í umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði fullnaðarafgreiðsluheimild meðan á sumarleyfi hennar stendur.
-
8. Fræðslunefnd - 112
Fundargerð fræðslunefndar frá 15. júní lögð fram til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð fræðslunefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 8.1 Erindisbréf fræðslunefndar2206047
- 8.2 Danskur farkennari haustið 20222205308
- 8.3 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20232205097
- 8.4 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
-
9. Mannvirkja- og veitunefnd - 1
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 29. júní sl. lögð fram til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð mannvirkja- og veitunefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr.
samþykkta Fjarðabyggðar.
- 9.1 Erindisbréf mannvirkja- og veitunefndar2205297
- 9.2 Framkvæmdasvið verkefni 20222204123
- 9.3 Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir2001140
- 9.4 Opin leiksvæði í Fjarðabyggð1810205
-
10. Hafnarstjórn - 280
Framlögð fundargerð hafnarstjórnar frá 28. júní lögð fyrir fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð hafnarstjórnar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
- 10.1 Skemmtiferðaskip í Fjarðabyggðarhöfnum2205243
- 10.2 Öryggismál hafna2206100
- 10.3 Stækkun Mjóeyrarhafnar - annar áfangi, umhverfismat2204067
- 10.4 730 Deiliskipulagið Hraun 1, breyting hafnarsvæðis2011129
- 10.5 Hafnasambandsþing 20222206091