Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 280

28. júní 2022, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 757 liður 10

    Framlögð fundargerð hafnarstjórnar frá 28. júní lögð fyrir fullnaðarafgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð hafnarstjórnar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. Skemmtiferðaskip í Fjarðabyggðarhöfnum

    Mál 2205243 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað verkefnastjóra hafna vegna bókana skemmtiferðaskipa. Hafnarstjórn ræddi málefni skemmtiferðaskipa í Fjarðabyggð.

  2. 2. Öryggismál hafna

    Mál 2206100 Allur ferill málsins

    Erindi barst frá Síldarvinnslunni varðandi öryggi á höfnum. Öryggismál á höfnum Fjarðabyggðar rædd. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að funda með sjávarútvegsfyrirtækjum í Fjarðabyggð.

  3. 3. Stækkun Mjóeyrarhafnar - annar áfangi, umhverfismat

    Mál 2204067 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar matsáætlun vegna 2.áfanga Mjóeyrarhafnar ásamt áliti Skipulagsstofnunar.

  4. 4. 730 Deiliskipulagið Hraun 1, breyting hafnarsvæðis

    Mál 2011129 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að nýju deiliskipulag Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn samþykkir að auglýsa nýtt deiliskipulag Mjóeyrarhafnar á vinnslustigi þar sem óskað verður eftir ábendingum og athugasemdum frá umsagnaraðilum.

  5. 5. Hafnasambandsþing 2022

    Mál 2206091 Allur ferill málsins

    Boðað hefur verið til 43. hafnasambandsþings Hafnasambands Íslands sem haldið verður í Ólafsvík 27.-28.október 2022. Hafnarstjórn mun senda fulltrúa á hafnasambandsþingið.