Hafnarstjórn, fundur 281
26. júlí 2022, kl. 16:30 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 760 liður 11
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. júlí sl. lögð fram til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir fundargerð hafnarstjórnar með fullnaðarumboði til afgreiðslu mála meðan leyfi bæjarstjórnar stendur.
Dagskrá
-
1. Styrkumsókn - Útsæði - 2022
Mál 2206114 Allur ferill málsins
Bæjarhátíðin Útsæði sem haldin er á Eskifirði óskar eftir styrk. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja bæjarhátíðina Útsæði.
-
2. Bátaafgreiðsla Fáskrúðsfirði
Mál 2207064 Allur ferill málsins
N1 ehf sækir um leyfi til að færa olíuafgreiðslu frá núverandi stað yfir á nýjan stað við Hafnargötu 29 á bryggjuna, einnig er óskað eftir því að setja upp 10m3 geymi í stað 6m3.
Hafnarstjórn samþykkir umsóknina.
-
3. Bátaafgreiðsla Eskifjörður
Mál 2207063 Allur ferill málsins
N1 ehf sækir um leyfi til að færa olíuafgreiðslu frá núverandi stað yfir á nýjan stað við nýju bryggjuna.
Hafnarstjórn samþykkir umsóknina.
-
4. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
Mál 2202086 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 444. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands.