Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 282

24. ágúst 2022, kl. 09:00 til 12:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 762 liður 14

    Fundargerð Hafnarstjórnar frá 24. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 337 liður 2

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð Hafnarstjórnar frá 24. ágúst staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Grænn orkugarður á Reyðarfirði

    Mál 2108124 Allur ferill málsins

    Kynningar tengdar Grænum orkugarði.

    Sief Andriopoulos, meistaranema í verkfræði við tækniháskólann í Delft, kynnti lokaverkefni sitt við skólann. Verkefnið ber heitið "Roadmapping the develpment of a green hydrogen industrial port complex - A case study in an Icelandic setting" og var unnið í samstarfi við Rotterdamhöfn með aðstoð Fjarðabyggðar.

    Martijn Coopman og René van der Plas frá Rotterdamhöfn kynntu starfsemi sína og mismunandi möguleika á samstarfi milli hafnanna.

  2. 2. Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða

    Mál 2207045 Allur ferill málsins

    Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn hafnarstjórnar á tillögu um strandsvæðisskipulag Austfjarða. Frestur til að skila inn umsögn er til 15.september næstkomandi. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að skrifa umsögn í samvinnu við skipulags- og umhverfisfulltrúa og leggja fyrir næsta fund.

  3. 3. Breyting á eldisfyrirkomulagi Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði

    Mál 2207037 Allur ferill málsins

    Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn vegna tilkynningar Fiskeldis Austfjarða hf. á breytingu á eldisfyrirkomulagi í Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra að skila umsögn.

  4. 4. Sjávarútvegssýningin 2022

    Mál 2208096 Allur ferill málsins

    Sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo 2022 verður haldin í Laugardalshöll 21.-23.september næstkomandi og verða Fjarðabyggðarhafnir með bás á sýningunni.

  5. 5. Fóðurprammi sekkur við Gripalda

    Mál 2101071 Allur ferill málsins

    Aðgerðir við að ná fóðurpramma Laxa Fiskeldis sem sökk við Gripalda upp af hafsbotni eru hafnar. Farið yfir verkáætlun og stöðu aðgerðanna.

  6. 6. Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði

    Mál 2208102 Allur ferill málsins

    Óskir hafa komið frá Loðnuvinnslunni um breytingar á hafnarsvæðinu á Fáskrúðsfirði. Lögð fram forhönnun og kostnaðarmat þeirra breytinga. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og framkvæmdasviði að funda með Loðnuvinnslunni, vinna málið áfram og leggja fyrir aftur.

  7. 7. Bryggja við Olís í Neskaupstað

    Mál 2208101 Allur ferill málsins

    Lagt fram til bréf frá Olís varðandi bryggju við stöð fyrirtækisins í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir að Olís fjarlægi bryggjuna.