Hafnarstjórn, fundur 283
6. september 2022, kl. 11:30 til 12:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 764 liður 12
Fundargerð Hafnarstjórnar frá 6. september lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 338 liður 6
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð Hafnarstjórnar frá 6. september er staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Erindi til hafnarstjórnar vegna Breiðdalsvíkurhafnar
Mál 2208171 Allur ferill málsins
Bréf frá Stefáni Höskuldssyni frá 29. ágúst 2022 um málefni sem varða aðstöðu við höfnina á Breiðdalsvík. Hafnarstjórn þakkar Stefáni fyrir ábendingarnar. Brugðist hefur verið við ábendingum um lagfæringar og unnið er að endurbótum.
-
2. Erindi vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík
Mál 2109186 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs varðandi erindi Elís Péturs Elíssonar vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í verkefnið á grundvelli minnisblaðs.
-
3. Stormpolli á Mjóeyrarhöfn
Mál 2209023 Allur ferill málsins
Eimskip óskaði eftir því að settur yrði upp stormpolli vestan við núverandi kant á Mjóeyrarhöfn þar sem hætta væri á því að núverandi búnaður gæfi sig ef hnykkur kæmi á skip þeirra.
Lagðar fram tillögur og teikningar af færanlegum stormpolla sem mun þannig nýtast í framtíðarstækkun Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn samþykkir að hafinn verði undirbúningur að gerð stormpolla. Framkvæmdasviði falið umhald framkvæmdarinnar ásamt því að fá sundurliðun kostnaðar og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
4. Umsókn um styrk vegna viðhalds á bryggju í Viðfirði
Mál 2209026 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Viðfjarðar sf. um styrk vegna viðhalds á bryggju í Viðfirði. Hafnarstjórn samþykkir styrk á grundvelli reglna um viðhald og endurgerð gamalla bryggja. Verkefnastjóra hafna falið að ganga frá afgreiðslu styrksins.
-
5. Fóðurprammi sekkur við Gripalda
Mál 2101071 Allur ferill málsins
Fóðurprammanum Munin var náð upp af hafsbotni og hann fluttur að bryggju á Reyðarfirði. Farið yfir stöðu mála í aðgerðunum. Á næstunni er von á frekari búnaði til aðgerðanna.
-
6. Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða
Mál 2207045 Allur ferill málsins
Lögð fram til samþykkis umsögn Fjarðabyggðar við strandsvæðisskipulagi Austfjarða. Skilafrestur er til 15.september. Hafnarstjórn samþykkir umsögnina með lítilsháttar breytingum í samræmi við umræður á fundinum.
-
7. Ráðstefnan Lagarlíf
Mál 2209012 Allur ferill málsins
Ráðstefnan Lagarlíf verður haldin 20.-21.október á Grand Hótel Reykjavík. Efni ráðstefnunnar verður fiskeldi, í sjó og á landi. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á ráðstefnuna.
-
8. Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2022
Mál 2203147 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar þakkarbréf Sjávarútvegsskóla unga fólksins ásamt frétt sem tekin var saman um skólann.