Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 284

19. september 2022, kl. 16:30 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, varamaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 766 liður 9

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. september lögð fram til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 339 liður 9

    Til máls tók Arnfríður Eide Hafþórsdóttir.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023

    Mál 2208077 Allur ferill málsins

    Farið yfir forsendur að fjárhagsáætlun ársins 2023. Fjármálastjóri mætti á fundinn. Hafnarstjórn samþykkir forsendur og vísar til áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu.

  2. 2. Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði

    Mál 2208102 Allur ferill málsins

    Málið lagt fyrir að nýju eftir fund hafnarstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs með Loðnuvinnslunni. Hafnarstjórn samþykkir að hefja undirbúning að stækkun Strandarbryggju og vísar málinu til fjárhagsáætlunarvinnu 2023. Framkvæmdasviði er falið umhald málsins.

  3. 3. Sjávarútvegsráðstefnan 2022

    Mál 2209127 Allur ferill málsins

    Sjávarútvegsráðstefnan verður haldin í Hörpu 10.-11.nóvember næstkomandi. Skráning er hafin á ráðstefnuna. Hafnarstjórn samþykkir að ráðstefnan verði sótt.