Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 285

10. október 2022, kl. 16:30 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 769 liður 11

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. október lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 340 liður 9

    Enginn tók til máls.

    Fundagerð hafnarstjórnar frá 10. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023

    Mál 2208077 Allur ferill málsins

    Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023 lögð fyrir til endanlegrar afgreiðslu. Hafnarstjórn vísar starfs- og fjárhagsáætlun til áframhaldandi vinnu.

  2. 2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023

    Mál 2209172 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023 lögð fram til umræðu. Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá taki mið af verðlagsbreytingum. Verkefnastjóra hafna falið að ganga frá gjaldskrá í samræmi við samþykkt hafnarstjórnar.

  3. 3. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers

    Mál 2210035 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Síldarvinnslunnar um umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers fyrirtækisins. Hafnarstjórn samþykkir að veita umsögn.

  4. 4. Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar

    Mál 2209228 Allur ferill málsins

    Fram lagt erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð.

    Bæjarráð vísaði erindinu til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar.

    Hafnarstjórn þakkar erindið og mun leitast eftir því í störfum sínum að leita álits ungmennaráðs ef málin snerta hagsmuni ungmenna í sveitarfélaginu.

  5. 5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022

    Mál 2202086 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 445.fundar Hafnasambands Íslands