Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 286

24. október 2022, kl. 16:30 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 771 liður 32

    Fundargerð 286. fundar hafnarstjórnar Fjarðabyggðar frá 24. október lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 341 liður 7

    Fundargerðir hafnarstjórnar lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 24. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Til umsagnar 9. mál frá nefndasviði Alþingis

    Mál 2210090 Allur ferill málsins

    Bæjarráð hefur tekið fyrir umsagnarbeiðni vegna þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis. Málið lagt fram til kynningar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn tekur undir hugmyndir bæjarráðs að umsögn um málið.

  2. 2. Beiðni um umsögn vegna umsóknar Laxa Fiskeldis ehf. um breytingar á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði

    Mál 2210114 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsagnarbeiðni Laxa Fiskeldis vegna breytinga á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði.

    Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna umsögn í samræmi við fyrri umsagnir um málið.

  3. 3. Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað

    Mál 2210158 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Guðröðar Hákonarsonar, fyrir hönd Hildibrand slf., um fund með hafnarstjórn vegna sjóvarna við Beituskúrinn, Egilsbraut 26, Neskaupstað.

    Hafnarstjórn felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að vinna kostnaðargreiningu á gerð sjóvarna neðan við Egilsbraut 22 og 26 og leggja fyrir næsta fund.

  4. 4. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Hoffell

    Mál 2210157 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskip dags. 14. október 2022 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Yevhen Hrushevinchuk, skipstjóra á MS Samskip Hoffell.

    Hafnastjórn samþykkir umbeðna undanþágu.

  5. 5. Reglur um undanþágu frá hafnsöguskyldu í Fjarðabyggðarhöfnum

    Mál 2210160 Allur ferill málsins

    Endurskoðun á skilyrðum veitingar undanþágu frá hafnsögu í Fjarðabyggðarhöfnum.

    Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að yfirfara reglurnar og leggja fyrir að nýju.