Hafnarstjórn, fundur 287
7. nóvember 2022, kl. 16:30 til 18:00, í Fræðslumolanum Austurbrú. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ingi Steinn Freysteinsson, varamaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 341 liður 8
Fundargerðir hafnarstjórnar lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 772 liður 15
Fundargerð 286. fundar hafnarstjórnar frá 7. nóvember lögð fram til kynningar
Dagskrá
-
1. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023
Mál 2209172 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023. Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá samkvæmt umræðum á fundi og vísar henni til bæjarstjórnar.
-
2. Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
Mál 2010159 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur áður samþykkt að senda tillöguna í auglýsingu.
-
3. Stækkun Mjóeyrarhafnar - annar áfangi, umhverfismat
Mál 2204067 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar álit Skipulagsstofnunar vegna umhverfismatsskýrslu 2.áfanga Mjóeyrarhafnar
-
4. Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað
Mál 2210158 Allur ferill málsins
Lögð fram kostnaðargreining á gerð sjóvarnargarðs við Egilsbraut 22 og 26 í Neskaupstað. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram í samræmi við framlögð gögn og umræður á fundinum.
-
5. Óhirt og munaðarlaus veiðarfæri
Mál 2210189 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar erindi frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi þar sem óskað er eftir því að fulltrúar hafna snúi sér til samtakanna ef munaðarlaus veiðarfæri eru á þeirra umráðasvæði og fái aðstoð við að ráða úr þeim vanda. Erindið er sent á allar aðildarhafnir Hafnasambands Íslands.
-
6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
Mál 2202086 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 446.fundar Hafnasambands Íslands
-
7. Hafnasambandsþing 2022
Mál 2206091 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar ályktanir sem samþykktar voru á Hafnasambandsþingi sem haldið var í Ólafsvík 27.-28.október síðastliðinn.