Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 288

5. desember 2022, kl. 16:30 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 776 liður 20

    Fundargerð 288.fundar hafnarstjórnar frá 5. desember lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 343 liður 9

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar á 5. desember staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Ráðstefnan Lagarlíf 2022

    Mál 2209012 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað frá atvinnu- og þróunarstjóra, sem sótti hluta ráðstefnunnar.

  2. 2. SeaTrade Global 2023

    Mál 2212012 Allur ferill málsins

    Sýningin SeaTrade Global verður haldin í Ft.Lauderdale í Flórída 27. til 30. mars 2023. Cruise Iceland hefur tekið frá svæði óskað eftir skráningum til þátttöku. Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra að senda svar til Íslandsstofu.

  3. 3. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023

    Mál 2209172 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023 lögð fram til kynningar. Gjaldskráin hefur verið samþykkt í bæjarráði.

  4. 4. Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2012071 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað frá Cargow og farið yfir málin varðandi landtengingar á Mjóeyrarhöfn. Eflu verkfræðistofu hefur verið falið að taka saman minnisblað um kostnað við málið sem verður lagt fyrir hafnarstjórn að nýju.

  5. 5. Umsókn um styrk til fjögurra menningarverkefna

    Mál 2211087 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni menningarstofu um fjárstyrk til fjögurra verkefna á sviðum menningar sem ráðist var í á árinu 2022. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.

  6. 6. Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2022

    Mál 2211173 Allur ferill málsins

    Tilkynning frá Fiskistofu um greiðslu strandveiðigjalds til hafna lögð fram til kynningar.

  7. 7. Vinnustofa Hafið tekur ekki lengur við

    Mál 2211088 Allur ferill málsins

    Þann 3.nóvember stóð Umhverfisstofnun fyrir vinnustofu á Grand Hótel um móttöku og meðhöndlun úrgangs sem kemur upp með veiðarfærum. Ragnar Sigurðsson sótti vinnustofuna fyrir hönd sveitarfélagsins. Fyrirlestrar vinnustofunnar lagðir fram til kynningar.

  8. 8. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022

    Mál 2202086 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 447. fundar Hafnasambands Íslands