Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 343

15. desember 2022, kl. 16:15 til 18:00, í Fræðslumolanum Austurbrú. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, forseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026 - síðari umræða

    Mál 2205271 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:01:52

    Bæjarstjóri mælti fyrir fjárhagsáætlun við síðari umræðu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingartillögu við síðari umræðu um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2023 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2024 til 2026.

    Niðurstöður fjárhagsáætlunar fyrir 2023 eru þessar:

    Rekstrarniðurstaða

    Samstæða A-hluta 121 m.kr.

    Samstæða B-hluta 484 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 605 m.kr.

    Fjárfestingar

    Samstæða A-hluta 200 m.kr.

    Samstæða B-hluta 585 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 785 m.kr.

    Afborganir langtímalána og leiguskuldbindinga

    Samstæða A-hluta 420 m.kr.

    Samstæða B-hluta 147 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 567 m.kr

    Skuldir og skuldbindingar A hluta verði 10,4 mi. kr. og samstæðunnar í heild 9,9 mi. kr. í árslok 2023.

    Eigið fé er áætlað að nemi 0,8 mi. kr. í A hluta og 7,6 mi. kr. í samstæðu í árslok 2023.

    Jafnframt er lagt til að texti í starfsáætlun, liður 9.3. verði eftirfarandi: "Innan málaflokks heilbrigðismála er vegna heilbrigðiseftirlits gert ráð fyrir sama fyrirkomulagi og verið hefur. Reiknað er með sama fyrirkomulagi og verið hefur vegna dýraeftirlits. Reiknað er með endurskoðun á samþykkt um gæludýr. Ormalyfsgjöf verður með þeim hætti að koma skal með öll skráð dýr í ormalyfsgjöf á ákveðnum dögum. Gæludýraeigendur geta áfram sótt þjónustuna beint til dýralæknis. Aðstaða vegna fangaðra hunda og katta er til staðar í húsnæði Fjarðabyggðar á Kollaleiru."

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson sem lagði fram bókun, Stefán Þór Eysteinsson sem lagði fram bókun, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Bókun Sjálfstæðisflokks vegna fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023 til 2026

    Miklar áskoranir eru framundan í rekstri sveitarfélagsins. Áfram þokast fjárhagurinn fjær því að teljast sjálfbær þrátt fyrir boðaðar hagræðingaraðgerðir. Að öllu óbreyttu mun rekstur sveitarfélagsins krefjast auknar lántöku á næsta ári. Í fjárhagsáætlunarvinnu sveitarfélagsins hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt áherslu á samstarf allra flokka til að styrkja rekstur sveitarfélagsins. Mikilvægt er að forgangsraða fjármunum og fara í auknar hagræðingar í rekstri til að koma í veg fyrir auknar lántökur og skapa aukið svigrúm fyrir viðhald og uppbyggingu sveitarfélagsins til framtíðar.

    Það eru vonbrigði að markmið bæjarstjórnar í fjárhagsáætlunarvinnunni hafi ekki gengið eftir Niðurstöður fjárhagsáætlunar næsta árs er talsvert frá settum markmiðum rammaúthlutunar og því er nauðsynlegt að áfram verði unnið að hagræðingaraðgerðum til að ná settum markmiðum og forðast auknar lántökur. Jafnframt eru liðir fjárhagsáætlunar óraunhæfir og munu tæpast standast, má þar t.d. nefna vanfjármögnun í viðhaldi, snjómokstri og veikindalaunum. Fyrirsjáanlegt er að útgjaldaliðir munu fara fram úr áætlunum og því er enn mikilvægara að unnið sé áfram að hagræðingaraðgerðum.

    Sjálfstæðisflokkurinn mun áfram leggja fram tillögur að hagræðingaraðgerðum á nýju ári til að styrkja rekstur sveitarfélagsins til skemmri og lengri tíma.

    Bókun Fjarðalista og Framsóknarflokks: Bæjarfulltrúar Fjarðalistans og Framsóknarflokks telja að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2023 gefi raunsanna mynd af rekstri sveitarfélagsins og í henni séu stigin ýmis skref til að lækka rekstur sveitarfélagsins og efla það til framtíðar litið. Við viljum byrja á að þakka starfsmönnum Fjarðabyggðar fyrir góða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar sem og þakka fyrir góða vinnu nefnda sveitarfélagsins.

    Í hefðbundnu árferði eru áskoranir í rekstri sveitarfélaga umtalsverðar en á þessu ári hefur mikil óvissa verið í efnahagslífinu og má þar nefna mikla verðbólgu og mikla vexti, en hvoru tveggja hvetur til aukins aðhalds í fjármálastjórn sveitarfélaga. Einnig er ljóst að ýmis verkefni sveitarfélagsins skortir fjárframlög ríkisins og má þar einna helst nefna málefni fatlaðs fólks.

    Fulltrúar Fjarðalistans og Framsóknarflokks hafa í því ljósi lagt áherslu á að sýna ábyrga fjármálastjórn og er sú fjárhagsáætlun sem lögð er hér fram til marks um það. Þrátt fyrir þessar áskoranir heldur sveitarfélagið áfram að sýna styrkleika sinn sem öflugt samfélag og leggur áherslu á velferð fjölskyldufólks í Fjarðabyggð. Lagt var upp með metnaðarfull áform um hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins með það að leiðarljósi að straumlínulaga reksturinn samhliða því að bæta þjónustu. Ljóst er að sú vegferð mun taka tíma og verður árið nýtt til þess að hagræða áfram í rekstri sveitarfélagsins með það markmið fyrir augum að tryggja að sveitarfélagið verði fjárhagslega sjálfbært en um leið góður staður til að búa í.

    Bæjarstjórn staðfestir með 5 atkvæðum fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2023 og þriggja ára fjárhagsáætlun áranna 2024 til 2026. Hjá sitja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Sigurðsson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Kristinn Þór Jónasson og Jóhanna Sigfúsdóttir.

  2. 2. Bæjarráð - 774

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:41:32

    Fundargerðir bæjarráðs lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson.

    Lið 2 í fundargerð, Grænn orkugarður á Reyðarfirði - drög lóðaleigusamnings er vísað til frekari vinnslu.

    Fundargerð bæjarráðs frá 28. nóvember utan liðar 2 er staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 20262205271
    2. 2.2 Grænn orkugarður á Reyðarfirði - drög að lóðaleigusamningi - Trúnaðarmál2108124
    3. 2.3 Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 202322111450:42:00
    4. 2.4 Fjallskilasamþykkt SSA2208175
    5. 2.5 Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 20222208049
    6. 2.6 Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 20232211141
    7. 2.7 Upplýsingatækni - spjallmenni2211137
    8. 2.8 Þórsmörk - leigusamningur2211104
    9. 2.9 Þorrablót Reyðfirðinga 2022 - beiðni um afnot af nýja íþróttahúsi2211134
    10. 2.10 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 20222201187
    11. 2.11 Ungmennaráð 202222031010:42:56
    12. 2.12 Mannvirkja- og veitunefnd - 72211016F
    13. 2.13 Íþrótta- og tómstundanefnd - 1082211015F
    14. 2.14 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 122211009F
  3. 3. Bæjarráð - 775

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:50:52

    Fundargerðir bæjarráðs lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 5. desember er staðfest með 9 atkvæðum

    1. 3.1 Gjaldskrá slökkviliðs 20232209121
    2. 3.2 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20232209112
    3. 3.3 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20232209171
    4. 3.4 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20232210052
    5. 3.5 Gjaldskrá fráveitu 20232210061
    6. 3.6 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20232209158
    7. 3.7 Gjaldskrá hunda og kattahald 20232209170
    8. 3.8 Gjaldskrá félagsheimila2210047
    9. 3.9 Gjaldskrá leikskóla 20232209161
    10. 3.10 Gjaldskrá frístundaheimila 20232210051
    11. 3.11 Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla 20232209166
    12. 3.12 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20232210054
    13. 3.13 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20232209116
    14. 3.14 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20232209172
    15. 3.15 Gjaldskrá félagsmiðstöðva 20232211111
    16. 3.16 Jólasjóður 20222211094
    17. 3.17 Rekstrarform Hitaveitu Fjarðabyggðar2208146
    18. 3.18 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20222201106
    19. 3.19 Bréf innviðaráðuneytis22090190:50:52
    20. 3.20 Rekstrarfyrirkomulag vegna skíðasvæðisins í Oddsskarði2211101
  4. 4. Bæjarráð - 776

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:43:52

    Fundargerðir bæjarráðs lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 12. desember er samþykkt með 9 atkvæðum

    1. 4.1 Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL2204062
    2. 4.2 Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 42212027
    3. 4.3 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 20262205271
    4. 4.4 Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 20222208049
    5. 4.5 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 202322091170:45:44
    6. 4.6 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 20232209114
    7. 4.7 Gjaldskrá bókasafna 20232210048
    8. 4.8 Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 20232209113
    9. 4.9 Gjaldskrár sundlauga 20232209115
    10. 4.10 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 20232209160
    11. 4.11 Gjaldskrá skíðasvæðis 20232209157
    12. 4.12 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 20232209163
    13. 4.13 Gjaldskrá íþróttahúsa 20232209164
    14. 4.14 Reglur um kjör kjörinna fulltrúa2212036
    15. 4.15 Erindi frá áhugahóp um framtíð íþróttamála á Eskifirði22120540:43:52
    16. 4.16 Erindi til bæjarráðs frá íbúasamtökum Eskifjarðar2212067
    17. 4.17 Stytting vinnuvikunnar, betri vinnutími2008127
    18. 4.18 Endurnýjun kjarasamningsumboðs og samkomulag um launaupplýsingar2211117
    19. 4.19 Mannvirkja- og veitunefnd - 82212005F
    20. 4.20 Hafnarstjórn - 2882212004F
    21. 4.21 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 132211023F
    22. 4.22 Íþrótta- og tómstundanefnd - 1092211020F
  5. 5. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 12

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:57:24

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 23. nóvember staðfest með 9 atkvæðum

    1. 5.1 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20232209117
    2. 5.2 Strandgata 77B - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2211105
    3. 5.3 Strandgata 9A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2211036
    4. 5.4 Óseyri 1a, fyrirhugað leiguhúsnæði v. lagers2211048
    5. 5.5 Ósk um tilnefningar í vatnasvæðanefndir2211041
    6. 5.6 Verkefni við mótun aðferðafræði til að mæta afleiðingum loftsagsbreytinga2211042
    7. 5.7 Nesbraut 3, REY. uppskipting lóðar22110070:57:52
    8. 5.8 Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt22081070:58:48
    9. 5.9 Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði.22100200:59:44
    10. 5.10 Fjallskilasamþykkt SSA2208175
    11. 5.11 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði1703117
    12. 5.12 Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður2211108
    13. 5.13 Ný staðsetning gámasvæða2209189
    14. 5.14 Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku2209217
  6. 6. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 13

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:00:12

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð umhverfis- og skiplagsnefndar frá 6. desember staðfest með 9 atkvæðum

    1. 6.1 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 202322091171:00:12
    2. 6.2 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði17031171:03:00
    3. 6.3 Strandgata 9A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2211036
    4. 6.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 3C2212007
    5. 6.5 Umsókn um leyfi fyrir staðsetningu flugeldasýningar 20222211174
    6. 6.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85A2212009
    7. 6.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Lambeyrarbraut 102212011
    8. 6.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 302212008
    9. 6.9 Þjóðlendumál á Austfjörðum - kynning á kröfum ríkisins2202036
    10. 6.10 Tilkynning fyrir brennur 20222211126
    11. 6.11 Girðingar í Breiðdal2211131
    12. 6.12 Ákall eftir endurnýjun á lóðaleigusamningum2212004
    13. 6.13 Ný staðsetning gámasvæða2209189
    14. 6.14 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Helgafell 32212024
    15. 6.15 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 152212019
    16. 6.16 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Víðimýri 32212022
    17. 6.17 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Heiðarvegur 142212020
    18. 6.18 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hamarsgata 142212021
    19. 6.19 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 322212018
    20. 6.20 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Blómsturvellir 372212028
  7. 7. Mannvirkja- og veitunefnd - 7

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:03:56

    Fundargerðir mannvirkja- og veitunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 23. nóvember staðfest með 9 atkvæðum

    1. 7.1 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 202322091171:04:24
  8. 8. Mannvirkja- og veitunefnd - 8

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir mannvirkja- og veitunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 6. desember staðfest með 9 atkvæðum

    1. 8.1 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20232209117
  9. 9. Hafnarstjórn - 288

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:06:16

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar á 5. desember staðfest með 9 atkvæðum

    1. 9.1 Ráðstefnan Lagarlíf 20222209012
    2. 9.2 SeaTrade Global 20232212012
    3. 9.3 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20232209172
    4. 9.4 Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn2012071
    5. 9.5 Umsókn um styrk til fjögurra menningarverkefna2211087
    6. 9.6 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 20222211173
    7. 9.7 Vinnustofa Hafið tekur ekki lengur við2211088
    8. 9.8 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20222202086
  10. 10. Íþrótta- og tómstundanefnd - 108

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir íþrótta- og tómstundnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 21. nóvember staðfest með 9 atkvæðum

    1. 10.1 Ungmennaráð 2022
    2. 10.2 Heilsukort Fjarðabyggðar
    3. 10.3 Rekstrarfyrirkomulag vegna skíðasvæðisins í Oddsskarði
    4. 10.4 Aukin samvinna spretts og íþrótta- og tómstundamála í forvörnum
    5. 10.5 Bréf frá foreldrum á miðsstigi Grunnskóla Reyðarfjarðar vegna opnunartíma Zveskjunar
    6. 10.6 UÍA styrkur íbúaframlG
    7. 10.7 Gjaldskrá skíðasvæðis 2023
    8. 10.8 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2023
    9. 10.9 Gjaldskrár sundlauga 2023
    10. 10.10 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2023
    11. 10.11 Gjaldskrá íþróttahúsa 2023
    12. 10.12 Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2023
    13. 10.13 Styrkur frá Alcoa til að efla sjálfsvitund og styrkja ungmenni í Múlaþingi og Fjarðabyggð
    14. 10.14 Gjaldfrjáls afnot íþróttafélaga af líkamsræktarstöðvum Fjarðabyggðar
  11. 11. Íþrótta- og tómstundanefnd - 109

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir íþrótta- og tómstundanefnda teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 5. desember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 11.1 Gjaldskrár sundlauga 2023
    2. 11.2 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2023
    3. 11.3 Gjaldskrá skíðasvæðis 2023
    4. 11.4 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2023
    5. 11.5 Gjaldskrá íþróttahúsa 2023
  12. 12. Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur - fyrri umræða.

    Mál 2208175 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:06:44

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir fjallskilasamþykkt.

    Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu bæjarstjórnar fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Bæjarstjórn samþykktir með 9 atkvæðum að vísa fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur til síðari umræðu bæjarstjórnar.

  13. 13. Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2023

    Mál 2211141 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:09:04

    Bæjarstjóri mælti fyrir staðfestingu endurgreiðsluhlutfalls.

    Vísað frá bæjarráð til afgreiðslu bæjarstjórnar endurgreiðsluhlutfalli réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar en lagt er til að hlutfallið nemi 74%.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að endurgreiðsluhlutfall ársins 2023 verði 74 % til réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar.

  14. 14. 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1703117 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:11:24

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir auglýsingu deiliskipulags.

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að auglýsa deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði sbr. 41. gr. skipulagslaga.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykktir með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulag fyrir Skíðasvæði í Oddskarði.

  15. 15. Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 4

    Mál 2212027 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:12:20

    Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2022.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka við fjárhagsáætlun 2022.

    Framlagður viðauki 4 við fjárhagsáætlun ársins 2022 vegna framlags til barnaverndar, tekjum slökkviliðs og fjármagns til viðhalds og framkvæmda eignasjóðs.

    15 m.kr. hækkun kostnaðar barnaverndar, útgjöld í A hluta aukast sem því nemur. Sjóður og eigið fé aðalssjóðs og samstæðu lækkar samsvarandi.

    92 m.kr. hækkun tekna slökkviliðs, tekjur í A-hluta aukast sem því nemur. Sjóður og eigið fé A-hluta og samstæðu hækkar samsvarandi um 92 m.kr.

    37 m.kr. hækkun framkvæmdakostnaðar eignasjóðs vegna sundlaugar Eskifjarðar. Sjóður og eigið fé A-hluta og samstæðu lækkar samsvarandi.

    12 m.kr. hækkun framkvæmdakostnaðar eignasjóðs vegna Sæbergs 3 á Breiðdalsvík. Sjóður og eigið fé A-hluta og samstæðu lækkar samsvarandi.

    30 m.kr. hækkun framkvæmdakostnaðar eignasjóðs vegna Búðareyrar 2 á Reyðarfirði. Sjóður og eigið fé A-hluta og samstæðu lækkar samsvarandi.

    40 m.kr. lækkun framkvæmdakostnaðar eignasjóðs vegna Leikskólans Dalborgar. Sjóður og eigið fé A-hluta og samstæðu hækkar samsvarandi.

    24,5 m.kr. lækkun fjárfestinga vegna tækjamiðstöðvar. Sjóður og eigið fé A-hluta og samstæðu hækkar samsvarandi.

    66 m.kr. hækkun framkvæmdakostnaðar eignasjóða vegna Nesskóla. Sjóður og eigið fé A-hluta og samstæðu lækkar samsvarandi.

    Samandregnar breytingar eru að rekstrarniðurstaða í A hluta hækkar um 81,7 m.kr., í B hluta er hún óbreytt og er því hækkun samstæðu um 81,7 m.kr. Rekstrarniðurstaða samstæðu er áætluð jákvæð um 551 m.kr. í árslok en rekstrarniðurstaða A hluta áætluð neikvæð um 30,5 m.kr. Fjárfestingar í A hluta aukast um 80,5 m.kr. en eru óbreytt í B hluta. Eigið fé einstakra stofnana og viðskiptareikningar þeirra við Aðalsjóð breytast til samræmis. Áætlað er að sjóðsstaða Fjarðabyggðar verði jákvæð í árslok 2022 um 45 milljónir króna.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Jón Björn Hákonarson.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2022.

  16. 16. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2022

    Mál 2208049 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:28:40

    Bæjarstjóri mælti fyrir lántöku.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar lántöku að fjárhæð 32.761.000 kr. hjá Ofanflóðasjóði vegna hlutdeildar Fjarðabyggðar í framkvæmdum við ofanflóðavarnir á árinu.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum lántöku hjá Ofanflóðasjóði að fjárhæð 32.761.000 kr. og felur bæjarstjóra undirritun skuldabréfsins og frágang lánaskjala.

  17. 17. Reglur um kjör kjörinna fulltrúa

    Mál 2212036 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:31:28

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á reglum.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar breytingum á reglum um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð vegna ungmennaráðs og uppfærslu á nefndum sveitarfélagsins.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.

  18. 18. Endurnýjun kjarasamningsumboðs og samkomulag um launaupplýsingar

    Mál 2211117 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:32:52

    Bæjarstjóri mælti fyrir staðfestingu á kjarasamningsumboði.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar endurnýjun á kjarasamningsumboði Fjarðabyggðar en um er að ræða uppfærslu umboðsins sem felur í sér fullnaðarframsal kjarasamningsgerðar til Sambands íslenskra sveitarfélaga.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningagerðar fyrir Fjarðabyggð og felur bæjarstjóra undirritun þess ásamt samningum um afhendingu gagna.

  19. 19. Fundaáætlun bæjarstjórnar

    Mál 2210125 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:33:48

    Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu um fundartíma bæjarstjórnar fyrri hluta ársins 2023.

    19. janúar

    2. febrúar

    16. febrúar

    2. mars

    16. mars

    30. mars (fyrri umræða ársreiknings)

    13. apríl

    27. apríl (síðari umræða ársreiknings)

    4. maí

    25. maí

    8. júní

    22. júní

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum fundaáætlun bæjarstjórnar.