Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 12

23. nóvember 2022, kl. 16:00 til 20:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 774 liður 14

    Fundargerð 12. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 23. nóvember lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 343 liður 5

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 23. nóvember staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023

    Mál 2209117 Allur ferill málsins

    Innleiðing hringrásarhagkerfisins. Páll Baldursson verkefnastjóri frá Austurbrú mætti á fundinn og fór yfir breytingar í umhverfi úrgangsmála og svæðisáætlun um meðhöndlun úrgagns á Austurlandi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur verkefnastjóra úrgangsmála að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund.

  2. 2. Strandgata 77B - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2211105 Allur ferill málsins

    Sótt er um leyfi til að endurbyggja núverandi bílskúr á lóð Strandgötu 77b sem lítið sérbýlishús. Núverandi steyptir veggir halda sér en þak verður endurbyggt og húsið einangrað aftur og klætt viðarklæðningu að utan, bárujárn á þaki. Allar lagnir og raflagnir verða endurnýjaðar. Sjá í fylgiskjölum samþykki meðlóðarhafa um skilgreiningu á sérafnotareit fyrir húsið. Jafnframt er óskað eftir leyfi til að leigja húsið til ferðamanna í skammtímaleigu allt árið. Vísað er til þess að á lóðinni hefur alltaf verið rekin atvinnustarfsemi, þ.e. verkstæðishús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Nefndin vísar í gildandi aðalskipulag Fjarðabyggðar varðandi ný gistrými í flokki 2-4. Miðað við það er ekki gert ráð fyrir slíkum gistirýmum á tilteknu svæði. Nefndin felur byggingarfulltrúa að svara umsækjanda.

  3. 3. Strandgata 9A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2211036 Allur ferill málsins

    Sótt er um byggingarheimild fyrir hönd íbúa Strandgötu 9a. Sótt er um leyfi til að reisa 28m2 geymslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. Óseyri 1a, fyrirhugað leiguhúsnæði v. lagers

    Mál 2211048 Allur ferill málsins

    Olís hefur hug á að taka húsnæði á leigu á Reyðarfirði sem stendur við Óseyri 1a, fastanúmer húsnæðis er 2177376, rými nr. 0102.

    Í húsinu verða mestmegnis geymd efni í 1.000 lítra „bömbum“ sem afgreidd verða eftir pöntunum til viðskiptavina á svæðinu.

    Efnin sem um ræðir eru að stærstum hluta Soft Acid Aqua, Soft Acid Aqua M og Formalín (Formaldehyde Solution) en gera má ráð fyrir að allt að 80-100 slíkar einingar verði geymdar í húsinu.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að fá að fylgjast með framgangi mála.

  5. 5. Ósk um tilnefningar í vatnasvæðanefndir

    Mál 2211041 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Umhverfisstofnunar þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa í vatnasvæðanefnd 2. Umhverfis- og skipulagsnefnd tilnefnir Skipulags- og umhverfisfulltrúa Aron Leví Beck sem fulltrúa Fjarðabyggðar í Vatnasvæðanefnd og formann umhverfis- og skipulagsnefndar Þuríði Lillý Sigurðardóttir til vara. Nefndin tilnefnir Heimi Gylfason sem fulltrúa umhverfis- og skipulagsnefndar í Vatnasvæðanefnd. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda inn tilnefningarnar.

  6. 6. Verkefni við mótun aðferðafræði til að mæta afleiðingum loftsagsbreytinga

    Mál 2211042 Allur ferill málsins

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skrifstofa loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, Byggðastofnun og Skipulagsstofnun óska eftir þátttöku nokkurra sveitarfélaga við að móta aðferðafræði fyrir sveitarfélög til þess að bregðast við afleiðingum loftslagsbreytinga. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar erindið.

  7. 7. Nesbraut 3, REY. uppskipting lóðar

    Mál 2211007 Allur ferill málsins

    Nesbraut 3, REY. uppskipting lóðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi Vöruflutningahöfn á Reyðarfirði varðandi Nesbraut 3, Reyðarfirði. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram og vísar erindinu til bæjarráðs.

  8. 8. Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt

    Mál 2208107 Allur ferill málsins

    Yggdrasill Carbon ehf hefur óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir 190 ha skógrækt við Eyri, Fáskrúðsfirði. Meginmarkmið verkefnisins er að rækta fjölnytjaskóg. Skv. aðalskipulagi Fjarðabyggðar er gert ráð fyrir 147,7 ha skógræktarsvæði austan við Eyri en ekki vestan. Vestan við Eyri er skilgreint landbúnaðarsvæði. Umsóknin gerir hinsvegar ráð fyrir skógræktarsvæði austan- og vestanmegin við Eyri.

    Skipulags- og umhverfisfulltrúi fundaði með Vegagerðinni þann 22.11.22 varðandi Suðufjarðaveg. Vegagerð kemur til með að senda skipulags- og umhverfisfulltrúa svör varðandi Suðurfjarðaveg á næstunni. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu þar til svör hafa borist frá Vegagerðinni.

  9. 9. Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði.

    Mál 2210020 Allur ferill málsins

    Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu- og útivistarsvæði í skrúðgarðinum á Fáskrúðsfirði. Ósk um samstarf við Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og samþykkir formlegt samstarf sveitarfélagsins við áhugahóp um fjölskyldu- og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði. Erindinu er vísað til sviðsstjóra framkæmdasviðs.

  10. 10. Fjallskilasamþykkt SSA

    Mál 2208175 Allur ferill málsins

    Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur lögð fram til afgreiðslu og staðfestingar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fjallskilasamþykkt með þremur atkvæðum gegn einu og einn situr hjá.

  11. 11. 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1703117 Allur ferill málsins

    Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði. Kynning á fundi með hagsmunaaðilum og stöðu verkefnissins. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið.

  12. 12. Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður

    Mál 2211108 Allur ferill málsins

    Áhugi íbúa er mikill á Balanum sem er stórt grænt svæði í miðju Stöðvarfjarðar. Hugmyndir íbúa eru að svæðið verði af skjólgóðu fjölskyldusvæði með fjölbreytta afþreyingarmöguleika. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að funda með þeim er málið varða.

  13. 13. Ný staðsetning gámasvæða

    Mál 2209189 Allur ferill málsins

    Ný staðsetning gámasvæða. Upplýsingar varðandi kostnað kynntar. Umhverfis- og skipulagsnefnd fyrirhugaða framkvæmd við gerð á nýju gámasvæði á Símonartúni, Eskifirði.

  14. 14. Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku

    Mál 2209217 Allur ferill málsins

    Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku, tillögur Mannvits. Kostnaðaráætlun fyrir tillögu 3. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að vinna málið áfram.