Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Strandgata 77B - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Mál 2211105 Fyrst á dagskrá 23. nóvember 2022, síðast 15. desember 2022. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Umhverfis- og skipulagsnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 12 liður 2

    Sótt er um leyfi til að endurbyggja núverandi bílskúr á lóð Strandgötu 77b sem lítið sérbýlishús. Núverandi steyptir veggir halda sér en þak verður endurbyggt og húsið einangrað aftur og klætt viðarklæðningu að utan, bárujárn á þaki. Allar lagnir og raflagnir verða endurnýjaðar. Sjá í fylgiskjölum samþykki meðlóðarhafa um skilgreiningu á sérafnotareit fyrir húsið. Jafnframt er óskað eftir leyfi til að leigja húsið til ferðamanna í skammtímaleigu allt árið. Vísað er til þess að á lóðinni hefur alltaf verið rekin atvinnustarfsemi, þ.e. verkstæðishús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Nefndin vísar í gildandi aðalskipulag Fjarðabyggðar varðandi ný gistrými í flokki 2-4. Miðað við það er ekki gert ráð fyrir slíkum gistirýmum á tilteknu svæði. Nefndin felur byggingarfulltrúa að svara umsækjanda.

  2. Bæjarráð, fundur 774 liður 14.2

    Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 12“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 343 liður 5.2

    Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 12“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is