NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 11
7. nóvember 2022, kl. 16:15 til 18:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 341 liður 6
Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndara frá 7. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 772 liður 14
Fundargerð 11. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. nóvember lögð fram til kynningar.
Dagskrá
-
1. Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2209049 Allur ferill málsins
Hafnarbraut 38 - 40, umsögn við athugasemdum á auglýsingartíma skipulags.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykir með 3 atkvæðum gegn einu að fela byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskildum gögnum hefur verið skilað. Meirihluti Framsóknarflokksins og Fjarðarlistans telur athugasemndir við grendarkynningu ekki vera þess eðlis að hafna slíkri uppbyggingu í Neskaupsstað.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð harma niðurstöðu nefndarinnar um úthlutunar byggingaleyfis á lóðunum hafnarbraut 38-42 í Neskaupstað í ljósi óánægju íbúa vegna framkvæmdar grendarkynningar. Þar sem ekki var viðhöfð nægilega vönduð vinnubrögð við grenndarkynningu og hún ekki samrýmst reglum skipulagsstofnunar um grendarkynningar samkvæmt athugasemdum hefðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð viljað sjá betri grenndarkynningu vera lagða fyrir íbúa til að ná sátt um framkvæmdina. Einnig óskum við hér með eftir að Umhverfis og skipulagsnefnd sækist eftir sátt við íbúa um frekari framkvæmdir í Fjarðabyggð og vandi sig við grendarkynningar og frekari áform um breytingar á skipulagi og uppbyggingu innan sveitarfélagsins.
-
2. Strandgata 68 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2211017 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Tvíhólma ehf. um leyfi til að breyta notkun á húsnæði við Strandgötu 68 735 Eskifjörður. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
3. Hraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi, 315 varaaflsbygging
Mál 2203145 Allur ferill málsins
Alcoa Fjarðarál sf. sækir um byggingarleyfi fyrir nýrri byggingu undir varaafl rofabúnaðar við Hraun 1. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins vegna hugsanlegra umhverfisárhrifa gaseiganagrandi rofabúnaðar sem verður í byggingunni. Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að skoða málið frekar og leggja fyrir nefnd að nýju.
-
4. Hrauntún 7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2209206 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyf Búðingar ehf. 23.09.2022 Þar sem sótt er um leyfi að byggja parhús við Hrauntún 7-9. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hátún 11
Mál 2211010 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hátún 11, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæberg 12
Mál 2211023 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sæberg 12, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 14
Mál 2211018 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Strandgötu 14, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 18
Mál 2210208 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hlíðargötu 18, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 2
Mál 2210183 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólvelli 2, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
10. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 1
Mál 2210186 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Austurveg 1, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
11. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 6
Mál 2210187 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólvelli 6, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
12. Nýting á lóðinni Ægisgötu 6 - 730 til sýninga
Mál 2210209 Allur ferill málsins
Fram lagðar hugmyndir skipulags- og umhverfisfulltrúa og forstöðumanns Menningarstofu um nýtingu lóðarinnar Ægisgötu 6 á Reyðarfirði til útisýninga listaverka. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samvinnu við Menningarstofu.
-
13. Nytjamarkaður, Fjb.
Mál 2004108 Allur ferill málsins
Nytjamarkaður í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í hugmynd um nytjamarkað og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundinum. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamnt formanni umhverfis- og skipulagsnefndar að funda með þeim aðilum sem lýstu yfir áhuga á verkefninu.
-
14. Ormahreinsun 2022
Mál 2210182 Allur ferill málsins
Skipulags- og umhverfisfulltrúi kynnir nefndinni fyrir ormahreinsun hunda og katta í Fjarðabyggð árið 2022. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur miður að ekki megi senda ormalyf heim til umráðamanna hunda og katta.
-
15. Boð um þátttöku í samráði Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir
Mál 2210058 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð þar sem kynnt er skýrsla um stöðu og áskoranir þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða 9. nóvember n.k.
-
16. Umsókn um lóð Strandgata 28 Nesk
Mál 2210106 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Strandgata 28 Nesk. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnun sviðsins að setja málið í grenndarkynningu og vísar erindinu til bæjarráðs.
-
17. Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
Mál 2010159 Allur ferill málsins
Álit Skipulagsstofnunar, vegna 2. áfanga stækkunar Mjóeyrarhafnar. Málið hefur verði kynnt fyrir nefnd.