Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 10

25. október 2022, kl. 16:00 til 18:27, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 771 liður 30

    Fundargerð 10. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 25. október lögð fram til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 341 liður 5

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Sigurjón Rúnarsson, Jón Björn Hákonarson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 25. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1703117 Allur ferill málsins

    Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði kynnt af starfsmanni Eflu. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar Eflu fyrir kynninguna. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að taka samtal við Skíðafélag Fjarðabyggðar, Brettafélag Fjarðabyggðar og staðarhaldara.

  2. 2. Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar

    Mál 2010159 Allur ferill málsins

    Deiliskipulag Mjóeyrarhafnar - tillaga til augl. skv. 41. gr. skipulagslaga. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að senda deiliskipulagið í auglýsingu.

  3. 3. Strandgata 14 - 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2210093 Allur ferill málsins

    Síldarvinnslan hf. um byggingarleyfi fyrir við viðbyggingur á Strandgötu 14 740. Óskað er eftir minniháttar breytingu á deiluskipulagi vegna þess að viðbygging fer út fyrir byggingarreit. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir málið til grenndarkynningar.

  4. 4. Stekkjarholt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2210029 Allur ferill málsins

    Þetta mál hefur þegar verið afgreitt.

  5. 5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Selnes 42

    Mál 2210139 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Selnes 42, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  6. 6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólheimar 12

    Mál 2210112 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólheima 12, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  7. 7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Melagata 14

    Mál 2210110 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Melagötu 14, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  8. 8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 4

    Mál 2210107 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólhvelli 4, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  9. 9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hátún 16

    Mál 2210108 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hátún 16, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  10. 10. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæberg 4

    Mál 2210100 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sæberg 4, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  11. 11. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólheimar 6

    Mál 2210095 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólheima 6, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  12. 12. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæberg 13

    Mál 2210098 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sæberg 13, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  13. 13. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 6 ESK

    Mál 2210075 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Strandgötu 6, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  14. 14. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 8 ESK

    Mál 2210074 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Strandgötu 8, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  15. 15. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólheimar 8

    Mál 2210092 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólheima 8, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  16. 16. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólheimar 2

    Mál 2210094 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólheima 2, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  17. 17. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamning Sólbakka 2

    Mál 2210089 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólbakka 2, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  18. 18. Umsókn um lóð Strandgata 28 Nesk

    Mál 2210106 Allur ferill málsins

    Umsókn Nestaks ehf. um lóð að Strandgötu 28 Nesk fyrir raðhús, 3 íbúðir, kringum 140 m2 hver íbúð. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur Skipulags- og umhverfisfulltrúa að láta útbúa lóðarblað fyrir Strandgötu 28 og leggja fyrir nefnd að nýju.

  19. 19. Umsókn um lóð Strandgata 12 Nesk

    Mál 2210105 Allur ferill málsins

    Umsókn Nestaks ehf. um lóð að Strandgötu 12 Nesk, milli Strandgötu 10 og 14 fyrir einbýlishús, kringum 150 m2 hver íbúð. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að áformin séu sett í grenndarkynningu.

  20. 20. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2210067 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á lóð Stekkjarholts 3-5. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á lóðum Stekkjarholts 3-5, Reyðarfirði til eins árs. Nefndin áréttar að gámur skuli vera staðsettur a.m.k. 3 metra frá lóðarmörkum. Ekki er hægt að verða við því að gefa leyfi fyrir gámnum á plani fyrir ofan lóðir þar sem það er nýtt sem geymslusvæði í snjómokstri.

  21. 21. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2210104 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gáma á gámasvæði á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gáma á gámasvæði á Reyðarfirði. Umsækjanda hefur verið tilkynnt að gámasvæði komi til með að flytjast á aðra lóð og hans gámar muni verða fluttir þegar sveitarfélagið fer í þá framkvæmd. Umsækjandi samþykkti það.

  22. 22. Beiðni um framkvæmdir

    Mál 2210084 Allur ferill málsins

    Beiðni um framkvæmdir í Hafnarnesi. Um er að ræða land í einkaeigu og telur nefndin sveitarfélagið hafa uppfyllt sín ákvæði samningsins sem gerður var í sambandi við flutning á Franska spítalanum. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að kanna aðstæður og vinna málið áfram.

  23. 23. Áætlun um loftgæði 2022-2033 - Drög til haghafa

    Mál 2210081 Allur ferill málsins

    Áætlun um loftgæði 2022-2033 - Drög til haghafa.

  24. 24. Uppfæra umferðarsamþykkt Lambeyrarbraut

    Mál 2210085 Allur ferill málsins

    Uppfæra umferðarsamþykkt Lambeyrarbraut, Eskifirði. Gatan er nú 30 gata en skv. skipulagi er hún vistgata. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að uppfæra umferðarsamþykkt.

  25. 25. Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2023

    Mál 2210060 Allur ferill málsins

    Uppfærð gjaldskrá gatnagerðargjalda 2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti uppfærða gjaldskrá gatnagerðargjalda 2023.

  26. 26. Skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 20018 - 2021

    Mál 2210115 Allur ferill málsins

    Skýrsla Ofanflóðanefndar 2018-2021 til kynningar.

  27. 27. Beiðni um umsögn vegna umsóknar Laxa Fiskeldis ehf. um breytingar á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði

    Mál 2210114 Allur ferill málsins

    Beiðni um umsögn vegna umsóknar Laxa Fiskeldis ehf. um breytingar á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir áhyggjur umsagnaraðila og áréttar fyrri yfirlýsingar um mikilvægi þess að sveitarfélagið hafi skipulagsvaldið. Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að senda inn umsögn þess efnis.

  28. 28. Ný staðsetning gámasvæða

    Mál 2209189 Allur ferill málsins

    Minnisblað til kynningar varðandi nýja staðsetningu gámasvæða á Reyðarfirði og Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar nýju gámasvæði á Símonartúni og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að útfæra nánar gámasvæði að Hjallaleiru 10, Reyðarfirði í samræmi við umræður af fundinum.

  29. 29. Stöðvun óleyfisframkvæmdar

    Mál 2210123 Allur ferill málsins

    Minnisblað vegna stöðvunar óleyfisframkvæmdar kynnt. Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur alla framkvæmdaraðila að tilkynna það sem telst tilkynningarskylt.

  30. 30. Umsókn um framkvæmdarleyfi

    Mál 2210128 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir að fá að halda áfram með strenglögn á Eskifirði í göngustíg með ströndinni út að Strandgötu 58. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.

  31. 31. Ljósmyndasýning Ægisgötu 6

    Mál 2210130 Allur ferill málsins

    Ljósmyndasýning Ægisgötu 6 til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar tilkomu ljósmyndasýningar að Ægisgötu 6. Nefndin hefði gjarnan kosið snyrtilegri útfærslu á sýningunni og felur byggingarfulltrúa í samráði við Alcoa að gæta þess að gámurinn verði festur.

  32. 32. Páskahellir fyrirspurn

    Mál 2210141 Allur ferill málsins

    Hjálagt minnisblað varðandi fyrirspurn um Páskahelli. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fylgja eftir tiltekt á svæðinu og vísar viðhaldsmálum svæðisins til framkvæmdasviðs með von um skjót viðbrögð.

  33. 33. Hraðahindrun Bakkagerði

    Mál 2210149 Allur ferill málsins

    Ósk nefndarmanns um hraðahindrun í Bakkagerði. Málið er í höndum framkvæmdasviðs.

  34. 34. Boð um þátttöku í samráði Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir

    Mál 2210058 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá umhverfis, orku-, og loftlagsráðuneytinu vegna beiðnar um þátttöku í umsagnarferli máls 188/2022 - Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir". Umsagnarfrestur er til og með 21.10.22. Umhverfis- og skipulagsnefnd lýsir yfir vonbrigðum með stuttan umsagnarfrest á málum sem þessum.