Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 772

14. nóvember 2022, kl. 08:30 til 11:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 342 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr.772 og 773 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Arndís Bára Pétursdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, og Birgir Jónsson.

    Fundargerðir bæjarráðs nr.772 og 773 eru staðfestar með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2204062 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál rekstraryfirlit yfir rekstur og fjárfestingar Fjarðabyggðar janúar - september 2022 auk yfirlit yfir launakostnað og skatttekjur janúar - október 2022.

  2. 2. Tjaldsvæði 2022

    Mál 2203199 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um rekstrarform tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Bæjarráð er sammála um að hefja undirbúning að breytingu á rekstri tjaldsvæða í Fjarðabyggð til framtíðar. Bæjarstjóra falið umhald málsins.

  3. 3. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023

    Mál 2209172 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn hefur samþykkt fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2023 og vísaði tillögunni til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Gjaldskráin hefur hækkað sem nemur verðlagsbreytingum, nema aflagjöld sem hækka minna.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2023.

  4. 4. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2023

    Mál 2209116 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti framlagða tillögu að gjaldskrá stoðþjónustu 2023, og vísaði henni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Gjaldskráin tekur hækkun m.v. verðlagsbreytingar um 4,9% auk þess sem breytingar eru gerðar á henni samkvæmt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2023.

  5. 5. Verkefni við mótun aðferðafræði til að mæta afleiðingum loftsagsbreytinga

    Mál 2211042 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, Byggðastofnun og Skipulagsstofnu þar sem óskað eftir þátttöku nokkurra sveitarfélaga við að móta aðferðafræði fyrir sveitarfélög til þess að bregðast við afleiðingum loftslagsbreytinga. Bæjarráð þakkar fyrir erindið en Fjarðabyggð mun ekki taka þátt í verkefninu að þessu sinni, en óskar eftir að fá að fylgjast með mótun aðferðarfræðarinnar.

  6. 6. Íbúakönnun 2022

    Mál 2211014 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Gallup þar sem kynnt er könnun á viðhorfi íbúa til þjónustu. Undanfarin ár hefur Gallup mælt viðhorf íbúa til þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins. Niðurstöður nýtast við mat á frammistöðu sveitarfélaga bæði í samanburði við önnur sveitarfélög og fyrri frammistöðu. Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu. Upplýsingafulltrúa er falið að vera í sambandi við Gallup um framhald málsins.

  7. 7. Kauptilboð í Austurveg 1 Reyðarfirði frá Tomasz Patryk

    Mál 2211024 Allur ferill málsins

    Framlagt kauptilboð Tomaszar Patryk í fasteignina Austurveg 1 á Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkti tilboðið í tölvupósti á milli funda. Lagt fram til kynningar.

  8. 8. Fjárframlag til bókakaupa

    Mál 2211004 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá forstöðumönnum bókasafnanna í Fjarðabyggð um fjárframlag til safnanna vegna bókakaupa. Bókakaup eiga að vera innan fjárhagsramma hvers árs. Vísað til bæjarritara til vinnslu.

  9. 9. Áform um lagabreytingar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

    Mál 2211044 Allur ferill málsins

    Innviðaráðuneytið hefur vakið athygli á því að áform um lagabreytingar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Bæjarritara er falið að rita umsögn um málið fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  10. 10. Samráð um frumvarp til breytinga á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga

    Mál 2211025 Allur ferill málsins

    Frumvarp til breytinga á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga hefur verði lagt fram í samráðsgátt. Framlagt og kynnt.

  11. 11. Notendaráð fatlaðs fólks

    Mál 2211046 Allur ferill málsins

    Stjórnandi stoð- og stuðningsþjónustu hefur óskað eftir tilnefningum þriggja kjörinna fulltrúa í notendaráð fatlaðs fólks. Bæjarráð samykkir að eftirtaldir aðilar verði fulltrúar í notendaráðinu:

    Kamilla Borg Hjálmarsdóttir

    Þórhallur Árnason

    Eygerður Ósk Tómasdóttir

  12. 12. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 3. Nóvember 2022

    Mál 2210026 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands lögð fram til kynningar.

  13. 13. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2022

    Mál 2201187 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 52 lögð fram til kynningar.

  14. 14. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 11

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 11. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. nóvember lögð fram til kynningar.

    1. 14.1 Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209049
    2. 14.2 Strandgata 68 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2211017
    3. 14.3 Hraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi, 315 varaaflsbygging2203145
    4. 14.4 Hrauntún 7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2209206
    5. 14.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hátún 112211010
    6. 14.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæberg 122211023
    7. 14.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 142211018
    8. 14.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 182210208
    9. 14.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 22210183
    10. 14.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 12210186
    11. 14.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 62210187
    12. 14.12 Nýting á lóðinni Ægisgötu 6 - 730 til sýninga2210209
    13. 14.13 Nytjamarkaður, Fjb.2004108
    14. 14.14 Ormahreinsun 20222210182
    15. 14.15 Boð um þátttöku í samráði Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir2210058
    16. 14.16 Umsókn um lóð Strandgata 28 Nesk2210106
    17. 14.17 Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar2010159
  15. 15. Hafnarstjórn - 287

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 286. fundar hafnarstjórnar frá 7. nóvember lögð fram til kynningar

    1. 15.1 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20232209172
    2. 15.2 Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar2010159
    3. 15.3 Stækkun Mjóeyrarhafnar - annar áfangi, umhverfismat2204067
    4. 15.4 Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað2210158
    5. 15.5 Óhirt og munaðarlaus veiðarfæri2210189
    6. 15.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20222202086
    7. 15.7 Hafnasambandsþing 20222206091