Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 773

21. nóvember 2022, kl. 08:30 til 10:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 342 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr.772 og 773 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Arndís Bára Pétursdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, og Birgir Jónsson.

    Fundargerðir bæjarráðs nr.772 og 773 eru staðfestar með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026

    Mál 2205271 Allur ferill málsins

    Lögð fram ný þjóðhagsspá að vetri frá Hagstofu Íslands auk minnisblaðs hagdeildar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun milli umræðna. Forsendur verðlags breytast frá fyrri spá og gert er ráð fyrir 5,6% hækkun verðlags en við gerð fjárhagsáætlunar var gert ráð fyrir 4,9% hækkun.

    Bæjarráð samþykkir að nýttar verðir nýjar forsendur við gerð fjárhagsáætlunar fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð samþykkir að útfæra gjaldskrár sveitarfélagsins miðað við þessar forsendur og tekur þær formlega til afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs. Vísað til kynningar í nefndum breytingum á forsendum og þeim hækkunum sem verða á gjaldskránum.

  2. 2. Viðauki vegna barnaverndar 2022

    Mál 2211112 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað fjölskyldusviðs um aukna fjárþörf vegna úrræða á vegum barnaverndar sem ekki er gert ráð fyrir í gildandi fjárhagsáætlun að upphæð 15.000.000 kr.

    Bæjarráð samþykkir aukin útgjöld til barnaverndarnefndar og vísar þeim til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2022.

  3. 3. Rekstrarkostnaður grunnskóla sveitarfélaga árið 2021

    Mál 2211066 Allur ferill málsins

    Lögð fram samantekt frá Sambandi íslenska sveitarfélaga með útreikningi fjármálastjóra á rekstrarkostnaði grunnskóla sveitarfélaga á árinu 2021.

    Bæjarráð vísar samantektinni til frekari vinnslu í fræðslunefnd.

  4. 4. Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og Samtakanna 78

    Mál 2211055 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samstarfssamningi Fjarðabyggðar og samtakanna ´78 fyrir árin 2023 - 2025.

    Bæjarráð tekur undir bókun félagsmálanefndar ásamt því að samþykkja samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  5. 5. Þjóðlendumál á Austfjörðum - kynning á kröfum ríkisins

    Mál 2202036 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Óbyggðanefnd þar sem kynntar er kröfur og athugasemdir sem Óbyggðanefnd hafa borist vegna þjóðlendumála á Austfjörðum. Kynning á heildarkröfum stendur yfir frá 15. nóvember 2022 - 15. desember 2022.

    Fram lagt og kynnt en gögn munu liggja frammi á bæjarskrifstofu á kynningartíma að beiðni óbyggðanefndar. Vísað til kynningar í umhverfis- og skipulagsnefnd.

  6. 6. Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði um endurbætur Melbæ

    Mál 2211090 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá stjórn Félags eldri borgara á Eskifirði vegna endurbóta á húsnæði félagsins í Melbæ.

    Í viðhaldsáætlun sveitarfélagsins fyrir næsta ár er gert ráð fyrir endurbótum á húsnæði. Vísað til framkvæmdasviðs til útfærslu í viðhaldsframkvæmdum.

  7. 7. Starfshópur um húsnæðismál myndlistarsafns Tryggva Ólafssonar

    Mál 2211102 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Myndlistarsafni Tryggva Ólafssonar þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa í starfshóp sem skoði húsnæðismál safnsins.

    Bæjarráð samþykkir að Jón Björn Hákonarson verði fulltrúi sveitarfélagsins í starfshópnum.

  8. 8. Reglugerð um íbúakosningar - umsögn

    Mál 2211103 Allur ferill málsins

    Með lögum nr. 83/2022, sem Alþingi samþykkti í sumar, var mælt fyrir um breytingar á ákvæðum sveitarstjórnarlaga sem fjalla um íbúakosningar sem fram fara á vegum sveitarfélaga. Umsagnarfrestur er til 28. nóvember í samráðsgátt.

    Fram lagt og kynnt.

  9. 9. Tillaga til þingsályktunar um öruggt farsímasamband á þjóðvegum, 46. mál.- beiðni um umsögn

    Mál 2211113 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar tillögu til þingsályktunar um öruggt farsímasamband á þjóðvegum, 46. mál. Frestur til að skila umsögnum er til 2. desember. Fram lagt og kynnt.

  10. 10. Barnaverndarnefnd 2022

    Mál 2202112 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar frá 16.nóvember lögð fram til afgreiðslu.

  11. 11. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 4. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 15. nóvember lögð fram til afgreiðslu.

    1. 11.1 Nýting á lóðinni Ægisgötu 6 - 730 til sýninga2210209
    2. 11.2 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20222204141
    3. 11.3 Verkefni menningarstofu 20222109214
    4. 11.4 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
    5. 11.5 Bókasafnið Norðfirði viðhaldsverkefni2203109
  12. 12. Félagsmálanefnd - 159

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 159. fundar félagmálanefndar frá 15.11 tekinn til afgreiðslu

    1. 12.1 Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar2209228
    2. 12.2 Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 20232210044
    3. 12.3 Umsókn um styrk vegna barnabókaefnis á táknmáli2210164
    4. 12.4 Til umsagnar 382. mál frá nefndasviði Alþingis um útlendinga2210198
    5. 12.5 Styrkbeiðni vegna Stígamóta 20232211045
    6. 12.6 Samningur við Brák-Bríet um félagslegt húsnæði2211026
    7. 12.7 Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og Samtakanna 782211055
  13. 13. Fræðslunefnd - 118

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 118. fundar fræðslunefndar frá 16. nóvember lögð fram til afgreiðslu.

    1. 13.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-20232210162
    2. 13.2 Sumarlokun leikskóla 20232210192
    3. 13.3 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
    4. 13.4 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078