Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar

Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 5

15. nóvember 2022, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, varaformaður
  • Bjarki Ingason, aðalmaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 773 liður 11

    Fundargerð 4. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 15. nóvember lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 342 liður 4

    Fundargerð 5. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 15. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu. Engin tók til máls

    Fundargerð 5. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 15. nóvember er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Nýting á lóðinni Ægisgötu 6 - 730 til sýninga

    Mál 2210209 Allur ferill málsins

    Fram lagðar hugmyndir skipulags- og umhverfisfulltrúa og forstöðumanns menningarstofu um nýtingu lóðarinnar Ægisgötu 6 á Reyðarfirði til útisýninga listaverka.

    Stjórn menningarstofu og safnastofnunar lýst mjög vel á þær hugmyndir sem fram eru lagðar og felur forstöðumanni menningarstofu í samstarfi við skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna að málinu fyrir næsta sumar.

  2. 2. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2022

    Mál 2204141 Allur ferill málsins

    Framlögð skýrsla forstöðumanns safnastofnunar um starfsemi safnanna á árinu 2022.

  3. 3. Verkefni menningarstofu 2022

    Mál 2109214 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð um starfsemi menningarstofu á árinu 2022 sem fjallar um verkefni og áherslur í starfsemi ásamt umfjöllun sem sveitarfélagið hefur fengið vegna menningarstarfsemi.

  4. 4. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar

    Mál 2211009 Allur ferill málsins

    Menningarstefna Fjarðabyggðar þarfnast endurskoðunar en stefnan var í gildi fyrir árin 2019 til 2021. Umræða um framkvæmd endurskoðun stefnunnar.

    Stjórn felur forstöðumanni menningarstofu að kanna fyrir næsta fund leiðir til endurskoðunar stefnunnar og ræða við aðila sem hafa komið að gerð stefnumörkunar í þessum málaflokkum. Lagt fyrir næsta fund stjórnar.

  5. 5. Bókasafnið Norðfirði viðhaldsverkefni

    Mál 2203109 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir við bókasafnið á Norðfirði og stöðu safnsins. Greinargerð forstöðumanns Safnastofnunar lögð fram á fundi.