NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 6
10. janúar 2023, kl. 17:00 til 19:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, varaformaður
- Bjarki Ingason, aðalmaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 780 liður 25
Fundargerð 6. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 10. janúar lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 345 liður 11
Fundargerð 6. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar frá 10. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu
Engin tók til máls.
Fundargerð 6. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Menningarstyrkir 2023
Mál 2301046 Allur ferill málsins
Menningarstyrkir fyrir árið 2023. Umræður um og kynning fyrir nýja stjórn á úthlutunarreglum og ferlum við umfjöllun og afgreiðslu umsókna. Auglýsing styrkja fer út í vikunni og er umsóknarfrestur til 12. febrúar. Stefnt að úthlutun 28. febrúar 2023.
-
2. Verkefni menningarstofu 2023
Mál 2301047 Allur ferill málsins
Farið yfir styrkveitingar frá Uppbyggingarsjóði Austurlands og verkefni sem eru framundan hjá menningarstofu. Tvennir styrkir fengust frá Uppbyggingarsjóði, Fjölbreyttar listasmiðjur 2023 og Upptakturinn 2023.
-
3. Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021 - staðfesting stofnsamnings
Mál 2210165 Allur ferill málsins
Fram lögð gögn frá aðalfundi Héraðsskjalasafns Austfirðinga.
-
4. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu Íslenska stríðasárasafnsins en vart hefur orðið mikils leka í sýningarhúsnæði safnsins eftir áramótin. Sýningar safnsins hafi orðið fyrir tjóni.
Stjórn Menningarstofu og Safnastofnunar leggur til við bæjarráð að tryggð verði varsla muna. Þá telur stjórnin að ekki sé hægt að hafa sýningu í núverandi húsnæði miðað við ástand þess. Nauðsynlegt er að bregðast sem fyrst við til að forða frekara tjóni á sýningum.