Sumarlokun leikskóla 2023
Mál 2210192 Fyrst á dagskrá 16. nóvember 2022, síðast 24. nóvember 2022. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Fræðslunefnd, fundur 118 liður 2
Fyrir liggur minnisblað um sumarlokun leikskóla. Í minnisblaðinu er gert ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum og er það í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum og niðurstöðu starfshóps um sumaropnun leikskóla. Þá kemur fram að sumarlokun leikskólanna verði stillt af þannig að sumarlokun leikskólanna fimm spanni u.þ.b. tvo mánuði sumarsins. Lagt er til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2023 verði þessi:
Dalborg Eskifirði 21.06-18.07 báðir dagar meðtaldir
Lesa alla bókunina (71 orð til viðbótar)
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 03.07-28.07 báðir dagar meðtaldir
Kæribær Fáskrúðsfirði 03.07-28.07 báðir dagar meðtaldir
Lyngholt Reyðarfirði 12.07-09.08 báðir dagar meðtaldir
Eyrarvellir Norðfirði 21.07-18.08 báðir dagar meðtaldir
Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.
Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
-
Bæjarráð, fundur 773 liður 13.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 118“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 342 liður 3.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 118“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.