Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 159

15. nóvember 2022, kl. 16:00 til 17:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Inga Rún Beck Sigfúsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 773 liður 12

    Fundargerð 159. fundar félagmálanefndar frá 15.11 tekinn til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 342 liður 5

    Fundargerð 159. fundar félagsmálanefndar frá 15. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu. Engin tók til máls

    Fundargerð 159. fundar félagsmálanefndar frá 15. nóvember er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar

    Mál 2209228 Allur ferill málsins

    Formaður félagsmálanefndar kynnti erindi frá UNICEF á Íslandi um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð. Félagsmálanefnd tekur undir erindið og minnir á mikilvægi þess að leita umsagnar ungmennaráðs.

  2. 2. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2023

    Mál 2210044 Allur ferill málsins

    Umsókn um rekstarstyrk fyrir árið 2023 fyrir Kvennaathvarfið. Félagsmálanefnd samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið um 500 þúsund krónur árið 2023.

  3. 3. Umsókn um styrk vegna barnabókaefnis á táknmáli

    Mál 2210164 Allur ferill málsins

    Umsókn um styrk vegna barnabókaefnis á táknmáli. Félagsmálanefnd þakkar fyrir erindið en telur sig ekki geta orðið við þessari styrkbeiðni.

  4. 4. Til umsagnar 382. mál frá nefndasviði Alþingis um útlendinga

    Mál 2210198 Allur ferill málsins

    Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um útlendinga (alþjóðleg vernd), 382. mál.

    Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. nóvember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

  5. 5. Styrkbeiðni vegna Stígamóta 2023

    Mál 2211045 Allur ferill málsins

    Styrkbeiðni vegna Stígamóta 2023. Félagsmálanefnd samþykkir að styrkja samtökin Stígamót um 500.000 krónur árið 2023.

  6. 6. Samningur við Brák-Bríet um félagslegt húsnæði

    Mál 2211026 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs upplýsir nefndina um samningsdrög Fjarðabyggðar og Brákar-Bríetar um félagslegt leiguhúsnæði.

  7. 7. Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og Samtakanna 78

    Mál 2211055 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd telur Samtökin´78 gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í fræðslustarfi fyrir samfélagið í heild. Það er mikilvægt að sveitarfélög séu leiðandi í jafnréttismálum og er hinsegin fræðsla stór hluti af þeim. Nauðsynlegt er að sporna við óæskilegri orðræðu og fordómum sem eiga sér stað í auknum mæli í samfélaginu. Félagsmálanefnd fagnar fjölbreytileikanum í Fjarðabyggð og vill sýna stuðning sinn í verki. Með þriggja ára þjónustusamningi við Samtökin´78 verður fræðslan markvissari og hægt er að skipuleggja vinnuna fram í tímann. Við viljum að virðing og mannréttindi séu höfð að leiðarljósi í okkar samfélagi og því teljum við mikilvægt að koma á slíku samstarfi.