Bæjarráð, fundur 776
12. desember 2022, kl. 08:30 til 11:45, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 343 liður 4
Fundargerðir bæjarráðs lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 12. desember er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2204062 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál rekstraryfirlit yfir rekstur og fjárfestingar Fjarðabyggðar janúar - október 2022 auk yfirlit yfir launakostnað og skatttekjur janúar - nóvember 2022. Einnig yfirlit yfir rekstur deilda fyrir tímabilið janúar - september.
-
2. Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 4
Mál 2212027 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2022 þar sem gerðar eru breytingar er varða barnaverd og slökkvilið í rekstri og framkvæmdir eignasjóða.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
Mál 2205271 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026 til síðari umræðu ásamt tillögum að breytingum á milli umræðna auk breytinga á forsendum áætlunarinnar.
Bæjarráð samþykkir með tveim atkvæðum tillögur að breytingum fyrir sitt leyti og vísar þeim ásamt fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára fjárhagsáætlun áranna 2024 til 2026 til síðari umræðu. Ragnar Sigurðsson situr hjá við afgreiðslu.
-
4. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2022
Mál 2208049 Allur ferill málsins
Lántaka hjá Ofanflóðasjóði. Gert er ráð fyrir að samþykkið fyrir lántökunni hjá Ofanflóðasjóði berist á þriðjudaginn en ekki verði komið útgefið skuldabréf til að leggja fyrir bæjarstjórnarfund.
Bæjarráð samþykir fyrir sitt leyti lántökuna og vísar staðfestingu lántökunnar til bæjarstjórnar.
-
5. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023
Mál 2209117 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs árið 2023sem tekur tillit til breytinga á lögum um meðhöndlun úrgangs, sbr. breytingarlög nr. 103/2021 sem m.a. innleiða endurskoðaða tilskipun Evrópusambandsins 2008/98/EB um úrgang og skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis. Tillagan hefur verið kynnt í mannvirkja- og veitunefnd og umhverfis- og skipulagsnefnd.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá fyrir meðhöldun úrgangs árið 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
-
6. Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2023
Mál 2209114 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað um gjaldskrá minjasafna fyrir árið 2023 og hækkanir sem ákveðnar voru samhliða fjárhagsáætlunargerð 2022.
Bæjarráð samþykkir að gjaldskrá 2023 verði óbreytt frá fyrri tillögu.
-
7. Gjaldskrá bókasafna 2023
Mál 2210048 Allur ferill málsins
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá bókasafna 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá bókasafna 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
-
8. Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 2023
Mál 2209113 Allur ferill málsins
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá tónlistarskóla 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá tónlistarskóla 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
-
9. Gjaldskrár sundlauga 2023
Mál 2209115 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá Sundlauga 2023. Tillagan gerir ráð fyrir 5,6% hækkun gjaldskrár í takti við þjóðhagsspá.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá sundlauga 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
-
10. Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2023
Mál 2209160 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2023. Tillagan gerir ráð fyrir 5,6% hækkun gjaldskrár í takti við þjóðhagsspá.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá líkamsræktarstöðvar 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
-
11. Gjaldskrá skíðasvæðis 2023
Mál 2209157 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá skíðasvæðis 2023. Tillagan gerir ráð fyrir 5,6% hækkun gjaldskrár í takti við þjóðhagsspá.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá skíðasvæðis 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
-
12. Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2023
Mál 2209163 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburða 2023. Tillagan gerir ráð fyrir 5,6% hækkun gjaldskrár í takti við þjóðhagsspá.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir fyrir árið 2023 með viðbót um gjald fyrir nýtt íþróttahús á Reyðarfirði. Tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
-
13. Gjaldskrá íþróttahúsa 2023
Mál 2209164 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá íþróttahúsa 2023. Tillagan gerir ráð fyrir 5,6% hækkun gjaldskrár í takti við þjóðhagsspá.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá íþróttahúsa 2023 með viðbót um gjald fyrir afnot af nýju íþróttahúsi á Reyðarfirði og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
-
14. Reglur um kjör kjörinna fulltrúa
Mál 2212036 Allur ferill málsins
Framlagðar uppfærðar reglur um launakjör kjörinna fulltrúa en þær eru uppfærðar miðað við samþykkt bæjarráðs um að ungmennaráð fái þóknun fyrir störf sín.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til bæjarstjórnar til staðfestingar.
-
15. Erindi frá áhugahóp um framtíð íþróttamála á Eskifirði
Mál 2212054 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá áhugahóp um framtíð íþróttamála á Eskifirði.
Bæjarráð þakkar erindið og vísar því til stefnumörkunar bæjarstjórnar um íþróttamannvirki í Fjarðabyggð.
-
16. Erindi til bæjarráðs frá íbúasamtökum Eskifjarðar
Mál 2212067 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Íbúasamtaka Eskifjarðar vegna starfsmannamáls til kynningar. Lagt fram svarbréf til kynningar fyrir bæjarráð sem trúnaðarmál.
-
17. Stytting vinnuvikunnar, betri vinnutími
Mál 2008127 Allur ferill málsins
Framlagðar útfærslur að styttingu vinnuvikunnar hjá kennurum og skólastjórnendum í grunn- og tónlistarskólum.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur um styttingu vinnutímans í grunnskólum og tónlistarskólum.
-
18. Endurnýjun kjarasamningsumboðs og samkomulag um launaupplýsingar
Mál 2211117 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um endurnýjun á kjarasamningsumboði Fjarðabyggðar til sambandsins en um er að ræða uppfærslu umboðsins sem felur í sér fullnaðarframsal kjarasamningsgerðar er Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fram lögð drög kjarasamningsumboðs og vinnslusamnings vegna persónuverndar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti endurnýjun kjarasamningsumboðsins og vísar staðfestingu umboðsins til bæjarstjórnar. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að undirrita vinnslusamning vegna persónuverndar.
-
19. Mannvirkja- og veitunefnd - 8
Fundargerð 8. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 3. desember lögð fram til afgreiðslu.
- 19.1 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20232209117
-
20. Hafnarstjórn - 288
Fundargerð 288.fundar hafnarstjórnar frá 5. desember lögð fram til afgreiðslu.
- 20.1 Ráðstefnan Lagarlíf 20222209012
- 20.2 SeaTrade Global 20232212012
- 20.3 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20232209172
- 20.4 Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn2012071
- 20.5 Umsókn um styrk til fjögurra menningarverkefna2211087
- 20.6 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 20222211173
- 20.7 Vinnustofa Hafið tekur ekki lengur við2211088
- 20.8 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20222202086
-
21. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 13
Fundargerð 13. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 6. desember lögð fram til afgreiðslu.
- 21.1 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20232209117
- 21.2 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði1703117
- 21.3 Strandgata 9A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2211036
- 21.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 3C2212007
- 21.5 Umsókn um leyfi fyrir staðsetningu flugeldasýningar 20222211174
- 21.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85A2212009
- 21.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Lambeyrarbraut 102212011
- 21.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 302212008
- 21.9 Þjóðlendumál á Austfjörðum - kynning á kröfum ríkisins2202036
- 21.10 Tilkynning fyrir brennur 20222211126
- 21.11 Girðingar í Breiðdal2211131
- 21.12 Ákall eftir endurnýjun á lóðaleigusamningum2212004
- 21.13 Ný staðsetning gámasvæða2209189
- 21.14 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Helgafell 32212024
- 21.15 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 152212019
- 21.16 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Víðimýri 32212022
- 21.17 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Heiðarvegur 142212020
- 21.18 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hamarsgata 142212021
- 21.19 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 322212018
- 21.20 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Blómsturvellir 372212028
-
22. Íþrótta- og tómstundanefnd - 109
Fundargerð 109. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 5. desember lögð fram til afgreiðslu.
- 22.1 Gjaldskrár sundlauga 2023
- 22.2 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2023
- 22.3 Gjaldskrá skíðasvæðis 2023
- 22.4 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2023
- 22.5 Gjaldskrá íþróttahúsa 2023