Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 777

19. desember 2022, kl. 08:30 til 09:50, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 344 liður 1

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð bæjarráðs frá 19. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2022-2023

    Mál 2212082 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi matvælaráðuneytisins um úthlutun byggðkvóta til Fjarðabyggðar fyrir fiskveiðiárið 2022-2023 ásamt leiðbeiningum um sérreglur byggðakvóta.

    Bæjarráð samþykkir að almennar reglur við úthlutun byggðakvóta gildi fyrir fiskveiðiárið 2022 til 2023 og felur atvinnu- og þróunarstjóra að upplýsa ráðuneytið.

  2. 2. Samningur um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsvísu

    Mál 2209032 Allur ferill málsins

    Framlögð til staðfestingar uppfærð drög að samnningi og reglum fyrir umdæmisráð Landsbyggða vegna barnaverndarþjónustu.

    Bæjarráð samþykkir uppfærðan samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  3. 3. Valdaframsal barnaverndarþjónustu

    Mál 2212065 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að valdframsali til tilgreindra starfsmanna barnaverndarþjónustu til fullnaðarafgreiðslu mála í samræmi við breytingar á barnaverndarlögum 80/2002 ásamt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs og erindi frá mennta- og barnamálaráðuneyti.

    Bæjarráð samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að vinna að uppfærslu samþykkta sveitarfélagsins og erindisbréfa nefnda vegna breytinganna. Vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar en stefnt er að aukafundi í bæjarstjórn 28. desember nk.

  4. 4. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2022 - endurskoðunaráætlun

    Mál 2212099 Allur ferill málsins

    Framlögð kynning vegna endurskoðunar ársreiknings 2022 sem send er bæjarráði í samræmi við lögum um endurskoðendur og endurskoðun nr. 94/2019, sem tóku gildi 1. janúar 2020. Samkvæmt ákvæðum þeirra laga ber endurskoðendum m.a. að upplýsa endurskoðunarnefndir um áhættumat og nálgun við endurskoðun ársins. Þar sem endurskoðunarnefndir eru ekki skipaðar gegnir bæjarstjórn því hlutverki.

  5. 5. Heilsukort Fjarðabyggðar

    Mál 2211069 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslur bæjarráðs tillögu um heilsu og fjölskyldukort Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð vísar tillögunni til deildarstjóra íþróttamála að nýju þar sem áhrif breytinga verði metnar fyrir notendur sem og kostnaðaráhrif þeirra. Þá verði tillaga að gjaldskrám útfærðar sem innifeli fjölskyldu- og heilsukortið og tekið upp með fjárhagsáætlunargerð 2024.

  6. 6. Auglýsingasamningur 2021-2023

    Mál 2107110 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til umfjöllunar bæjarráðs auglýsingastyrk til Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð frestar afgreiðslu og felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn félagsins.

  7. 7. Fræðslunefnd - 119

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 119. fundar fræðslunefndar frá 14. desember 2022 lögð fram til afgreiðslu

    1. 7.1 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
    2. 7.2 Rekstrarkostnaður grunnskóla sveitarfélaga árið 20212211066
    3. 7.3 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-20232210162
    4. 7.4 Fundaáætlun fræðslunefndar vorið 20232212085
  8. 8. Félagsmálanefnd - 160

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 160. fundar félagsmálanefndar frá 13. desember 2022 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 8.1 Kynning á verkefninu Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu2212075
    2. 8.2 Rannsóknarverkefni Sprettur2212076
  9. 9. Íþrótta- og tómstundanefnd - 110

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 110. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 14. desember 2022 lögð fram til afgreiðslu

    1. 9.1 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
    2. 9.2 Kynning á verkefninu Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu
    3. 9.3 Vallarvinnusamningur við KFF 2021 - 2023
    4. 9.4 Auglýsingasamningur 2021-2023
    5. 9.5 Heilsukort Fjarðabyggðar
    6. 9.6 Umsókn tónlistarskóla Fjarðabyggðar að frístundastyrk
    7. 9.7 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2022
  10. 10. Barnaverndarnefnd 2022

    Mál 2202112 Allur ferill málsins

    Framlögð til afgreiðslu fundargerð barnaverndarnefndar frá 13. desember sl.