Bæjarráð, fundur 778
28. desember 2022, kl. 12:00 til 13:15, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 345 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Kristinn Þór Jónasson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Jóhanna Sigfúsdóttir og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð 778. fundar bæjarráðs er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Mál 2108124 Allur ferill málsins
Framlagður sem trúnaðarmál endanlegur lóðaleigusamningur við CI ETF I Fjarðarorka HoldCo ehf. vegna vegna lóðar undir grænan orkugarð á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 2023
Mál 2211145 Allur ferill málsins
Fram lögð niðurstaða verðfyrirspurnar í akstur almenningssamgangna í Fjarðabyggð, tilraunaverkefni á árinu 2023. Eitt tilboð barst í verkefnið frá Ís Travel Austurland ehf.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Ís Travel og felur bæjarstjóra undirritun samnings þegar niðurstöður liggja fyrir varðandi tilboð í legg 2 í útboði. Samningur lagður fyrir bæjarráð til kynningar.
-
3. Útsvar 2023
Mál 2210206 Allur ferill málsins
Tillaga að nýju álagninarhlutfalli útsvars 2023 lögð fram. Hámarksútsvar sveitarfélaga, sem ákveðið er í 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sem er nú 14,52%, skal hækkað um 0,22% samhliða lækkun á tekjuskatti um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum.
Bæjarráð samþykkir að útsvarshlutfall árið 2023 hækki sem nemi 0,22% og verði 14,74% sbr. ákvæði um breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 16. desember 2022 og vísar staðfestingu útsvarshlutfalls til afgreiðslu bæjarstjórnar.