Bæjarstjórn, fundur 344
28. desember 2022, kl. 15:00 til 15:23, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, forseti bæjarstjórnar
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Birgir Jónsson, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Bæjarráð - 777
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:01:52
Enginn tók til máls.
Fundargerð bæjarráðs frá 19. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2022-20232212082
- 1.2 Samningur um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsvísu2209032
- 1.3 Valdaframsal barnaverndarþjónustu2212065
- 1.4 Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2022 - endurskoðunaráætlun2212099
- 1.5 Heilsukort Fjarðabyggðar2211069
- 1.6 Auglýsingasamningur 2021-20232107110
- 1.7 Fræðslunefnd - 1192212011F
- 1.8 Félagsmálanefnd - 1602212009F
- 1.9 Íþrótta- og tómstundanefnd - 1102212003F
- 1.10 Barnaverndarnefnd 20222202112
-
2. Fræðslunefnd - 119
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 14. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
- 2.2 Rekstrarkostnaður grunnskóla sveitarfélaga árið 20212211066
- 2.3 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-20232210162
- 2.4 Fundaáætlun fræðslunefndar vorið 20232212085
-
3. Félagsmálanefnd - 160
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:02:48
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Kynning á verkefninu Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu2212075
- 3.2 Rannsóknarverkefni Sprettur2212076
-
4. Íþrótta- og tómstundanefnd - 110
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:03:16
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 14. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
- 4.2 Kynning á verkefninu Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu
- 4.3 Vallarvinnusamningur við KFF 2021 - 2023
- 4.4 Auglýsingasamningur 2021-2023
- 4.5 Heilsukort Fjarðabyggðar
- 4.6 Umsókn tónlistarskóla Fjarðabyggðar að frístundastyrk
- 4.7 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2022
-
5. Barnaverndarnefnd 2022
Mál 2202112 Allur ferill málsins
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 145. frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.
-
6. Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Mál 2108124 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:03:44
Bæjarstjóri mælti fyrir lóðarleigusamningi.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar lóðarleigusamningi Fjarðabyggðar og CI ETF I Fjarðarorku HoldCo ehf. vegna vegna lóðar undir grænan orkugarð á Reyðarfirði. Lóðarleigusamningur og gögn honum tengd eru lögð fram sem trúnaðarmál.
Til máls tók Ragnar Sigurðsson.
Bæjarstjórn samþykkir lóðarleigusamning Fjarðabyggðar og CI ETF I Fjarðarorku HoldCo ehf. með 9 atkvæðum og felur bæjarstjóra undirritun hans og skjala honum tengdum.
-
7. Útsvar 2023
Mál 2210206 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:11:40
Bæjarstjóri mælti fyrir breytingu á álagningarhlutfalli útsvars.
Framlögð tillaga að nýju álagninarhlutfalli útsvars 2023. Hámarksútsvar sveitarfélaga, sem ákveðið er í 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sem er nú 14,52%, skal hækkað um 0,22% samhliða lækkun á tekjuskatti um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum. Um er að ræða tilfærslu á milli tekjuskatts og útsvars og hefur ákvörðun ekki áhrif á heildar skattbyrði einstaklinga.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að útsvarshlutfall árið 2023 hækki sem nemi 0,22% og verði 14,74% sbr. ákvæði um breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga, dags.
16. desember 2022.
-
8. Vegna valdaframsal barnaverndarþjónustu - fyrri umræða
Mál 2212065 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:15:52
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir valdaframsali.
Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn drögum að valdframsali til tilgreindra starfsmanna barnaverndarþjónustu til fullnaðarafgreiðslu mála í samræmi við breytingar á barnaverndarlögum 80/2002.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa drögum að valdaframsali til starfsmanna barnaverndar til síðari umræðu bæjarstjórnar.
-
9. Fjallskilasamþykkt SSA - síðari umræða
Mál 2208175 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:16:48
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir fjallskilasamþykkt við síðari umræðu.
Vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur.