Fræðslunefnd, fundur 119
14. desember 2022, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, varamaður
- Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 777 liður 7
Fundargerð 119. fundar fræðslunefndar frá 14. desember 2022 lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 344 liður 2
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 14. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Mál 1808078 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd og íþrótta- og tómstundanefnd Fjarðabyggðar ákváðu að funda sameiginlega um fyrirliggjandi drög að áherslum í fræðslu- og frístundamálum Fjarðabyggðar fyrir árin 2023-2025. Drögin eru unnin af starfshópi sem skipaður var til verksins, en í honum sitja þrír fulltrúar fræðslunefndar og þrír fulltrúar íþrótta- og tómstundanefndar ásamt þremur starfsmönnum nefndanna. Að baki draga að áherslum liggur hugmyndavinna sem unnin var af starfsfólki fræðslu- og frístundastofnana í Fjarðabyggð, Fjarðaforeldrum, fulltrúum íþróttafélaga í Fjarðabyggð, fulltrúm eldriborgara og ungmennaráði. Drögin voru lögð fram til kynningar og rædd. Ákveðið að hafa opinn fund 9. janúar á Fáskrúðsfirði þar sem áherslur yrðu kynntar og hægt að gera athugasemdir og halda í kjölfarið sameiginlegan fund hjá nefndunum 11. janúar.
-
2. Rekstrarkostnaður grunnskóla sveitarfélaga árið 2021
Mál 2211066 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar rekstrarupplýsingar grunnskóla fyrir árið 2021.
-
3. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-2023
Mál 2210162 Allur ferill málsins
Skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar kynnti starfsáætlun og skólanámskrá skólans fyrir skólaárið 2022-2023 og svaraði spurningum nefndarfólks. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlun og skólanámskrá og þakkar skólastjóra fyrir greinargóð svör og upplýsandi kynningu.
-
4. Fundaáætlun fræðslunefndar vorið 2023
Mál 2212085 Allur ferill málsins
Fyrir liggja drög að fundaáætlun fræðslunefndar fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2023. Fræðslunefnd samþykkir fundaáætlunina.