Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 120

11. janúar 2023, kl. 16:15 til 18:15, í Fræðslumolanum Austurbrú. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, varamaður
  • Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 780 liður 19

    Fundargerð 120. fundar fræðslunefndar frá 11. janúar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 345 liður 8

    Fundargerð 120. fundar fræðslunefndar frá 11. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Til máls tók Birgir Jónsson.

    Fundargerð 120. fundar fræðslunefndar er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu - rannsókn

    Mál 2301074 Allur ferill málsins

    Davíð Samúelsson, frá samtökunum Hinsegin lífsgæði, mætti til sameiginlegs fundar nefndanna og kynnti rannsókn sem samtökin óska eftir að framkvæma með þátttöku starfsfólks grunnskóla í Fjarðabyggð. Félagið Hinsegin lífsgæði var stofnað í tengslum við verkefnið Hinseginn stuðningur í skólaumhverfinu. Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og jafnréttisnefnd forsætisráðuneytisins og er ætlað að kanna hvað gert er til að stuðla að öryggi og góðri líðan hinsegin nemenda í skólaumhverfinu. Sérstaklega verður horft til þess hvort þörf sé á sérstökum stuðningsaðila fyrir hinsegin nemendur með sérþekkingu á málefnum hinsegin fólks. Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við lektor í kennslu- og kynjafræðum við Háskólann á Akureyri og ráðgjöfum sem starfa að jafnréttis- og menntunarmálum í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Fræðsluyfirvöld Fjarðabyggðar heimila fulltrúum verkefnisins að leita eftir samstarfi við skólastjórnendur um þátttöku í verkefninu með það fyrir augum að þeir tilnefni fulltrúa í hverjum skóla fyrir sig til að taka þátt í því. Samkvæmt samstarfssamningi Hinsegin lífsgæða við mennta- og barnamálaráðuneytið eru verklok áætluð í apríl 2024.

  2. 2. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Haustið 2022 var skipaður sex manna starfshópur, þrír fulltrúar úr fræðslunefnd og þrír fulltrúar úr íþrótta- og tómstundanefnd til þess að vinna að áherslum í fræðslu- og frístundamálum Fjarðabyggðar fyrir árin 2023-2025. Starfshópurinn leitaði eftir hugmyndum hjá starfsfólki fræðslu- og frístundastofnana, Fjarðaforeldrum, íþróttafélögum, ungmennaráði, öldungaráði og fleirum. Fjölmörgum hugmyndum var skilað til starfshópsins sem mótaði í framhaldi drög að áherslum til þriggja ára. Drög að áherslum voru kynnt á opnum kynningarfundi í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar mánudaginn 9. janúar þar sem þátttakendur sögðu sitt álit og komu með ábendingar um breytingar. Fundurinn var í streymi þannig að þeir sem ekki gátu mætt til fundarins gátu tekið þátt í gegnum netið. Fyrir fundi fræðslunefndar liggja áherslur í fræðslu- og frístundamálum 2023-2025 með áorðnum breytingum eftir kynningarfundinn.Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi áherslur og vísar til bæjarráðs.

  3. 3. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-2023

    Mál 2210162 Allur ferill málsins

    Skólastjóri Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar og skólastjóri Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdals kynntu skólanámskrá skólanna fyrir skólaárið 2022-2023 og svöruðu spurningum nefndarfólks. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skólanámskrár og þakkar skólastjórum fyrir greinargóð svör og upplýsandi kynningu.

  4. 4. Skóladagatöl 2023-2024

    Mál 2301073 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd fór yfir verklagsreglur um staðfestingu skóladagatala og minnisblað fræðslustjóra. Frekari umræðu um skóladagatöl frestað til næsta fundar nefndarinnar.